Vikan

Tölublað

Vikan - 11.09.1975, Blaðsíða 38

Vikan - 11.09.1975, Blaðsíða 38
HUNDARNIR SEM LÁTA ENGAN DRUKKPi Þeir heita Jayet, Erick, Jessie eöa Barón. Þeir eru sérstaklega kraftalega byggðir og svarthærð- ir —• frá toppi til táar. Jayet og fé- lagar hans eru semsé hundar. Nánar tiltekið nýfundnalands- hundar. Þeir, sem hafa á þessu sumri farið i sumarleyfi til frönsku strandanna — bæði við Miðjarð- arhaf og Atlantshaf — hafa marg- ir séð Jayet og'félaga, sem nú eru þjáiíaðir i björgunarsundi á sex stöðum við strendur Frakklands. Frakkar komu fyrir löngu auga á frábæra sundhæfni þessara gerðarlegu hunda, sem verða allt að sjötiu sentimetra háir á herða- kambinn og allt að fimmtiu kiló á þyngd. Þegar á átjándu öld sögðu franskir sjómenn frá þvi heima i Frakklandi, að við strendur Ný- fundnalands hefðu þeir séð „risa- vaxna hunda, sem litu út eins og birnir”, og hafi þeir synt kringum báta fiskimannanna og hjálpað þeim við að draga netin. Það fylgdi einnig sögunni, að hund- arnir hefðu iðulega bjargað fólki frá drukknun. Og löngu siðarurðu þessar sög- ur sjómannanna til þess að franska lögreglan ákvað að reyna að þjálfa nýfundnalandshunda til björgunarsunds. Þjálfunin, sem i fyrstu fór fram á hundamiðstöð frönsku lögreglunnar vakti furðu margra, þvi' að við hana kom i ljós, að hundarnir voru ótrúlega næmir. Aður en langt um leið, höfðu þeir lært hvernig þeir áttu að snúa meðvitundarlausum manni i vatni á bakið og synda siðan með hann til lands. Hund- arnir reyndust einnig svo hug- rakkir, að þeir stukku óttalausir úr þyrlum i sjóinn. Rannsóknir leiddu i ljós, að nýfundnalands- hundur gat að meðaltali synt tutt- ugu kilómetra án þess að lýjast, og að ekki þurfti nema einn hund til þess að draga gúmmibát með átta mönnum innanborðs. Fregnirnar af þjálfun og frá- bærri hæfni nýfundnalandshund- anna hefur vakið mikla athygli . ..

x

Vikan

Gerð af titli:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
0042-6105
Tungumál:
Árgangar:
62
Fjöldi tölublaða/hefta:
2823
Skráðar greinar:
1
Gefið út:
1938-2000
Myndað til:
2000
Útgáfustaðir:
Efnisorð:
Lýsing:
Tímarit.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað: 37. Tölublað (11.09.1975)
https://timarit.is/issue/299170

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

37. Tölublað (11.09.1975)

Aðgerðir: