Vikan

Tölublað

Vikan - 11.09.1975, Blaðsíða 15

Vikan - 11.09.1975, Blaðsíða 15
dvöl i Hollywood, var hann samt kominn með heila hirð i kringum sig. bað geisaði frá honum i einkalifinu, en hann skorti til- finnanlega öryggið, sem hinar stórstjörnurnar höfðu yfirleitt i rikum mæli. Bak viö þrjóskuna glitti i næman og viðkvæman ung- ling. 1 leit sinni að einhverju eða ein- hverjum varö á vegi hans Pier Angeli. Hún, sem siðar svipti sig lifi, var þá ein af ungu fegurðar- disunum i Hollywood, þegar James hitti hana. Allt benti til þess, að hún yrði heillastjarna hans og orörómur barst um aö þau myndu ganga i hjónaband. Ursula Andress var eina konan, sem hryggbraut James Dean. Nýtt James Dean æði er nú i fullum gangi. Þrjár kvikmyndir hans eru nú sýndar fyrir fullum húsum og nafn hans er ennþá einu sinni i fréttunum á siðum blaðanna. Það eru ennþá seldar galla- buxur út á nafn hans og kynþokka. Hvað var við þennan unga mann, sem gerir það, að goðsögnin um hann lifir enn þann dag i dag, —tuttugu árum eftir lát hans? baö var Pier, sem baö hans, en James hryggbraut hana. Hann var ekki orðinn nógu þroskaður til að búa með annarri manneskju. Ursula Andress hryggbraut hann. Ný stjarna ljómaði þá á himni Hollywood og mjög fljótlega sáust þau, hún og James Dean saman öllum stundum. bað var Ursula Andress. Hún fór með honum til Texas og meðan á töku „Giant” gtóð, bað hann hennar. bað var 26. september 1955. Hún hrygg- braut hann á þeim forsendum, að það myndi skaða framamögu- leika hennar að ganga i hjóna- band. Hún var þá glæsilegasta kynbomban. Tveim dögum eftir bónorðiö ók hann inn i dauðann. — Ég hefi aldrei kynnst nokkr- um manni, sem haföi þvilikt aðdráttarafl. Hann var svo allt öðru visi en allir hinir. Mér finnst óbærilegt að hugsa til þess, að ef til vill hefur það verið eigingirni min, sem rak hann i dauðann. En ég held að James hafi samt ekki ætlað aö svipta sig lifi, hann vildi lifa. brátt fyrir þunglyndi og vangaveltur, var hann haldinn mikilli lifslöngun og hann átti svo margt ógert, sagði Ursula Andress siöar. Lengra hefur ekki verið hægt að skyggnast i sambandið á milli þeirra. bað vissu allir, að James átti erfitt með að kyngja mótlæti, en það var lika vist, aö allur áhugi hans og ást beindist fyrst og fremst að leikstarfseminni og hann þráði það framar öðru að verða frægur kvikmyndaleikari. Hann náði þvi marki. Hann bar höfuð og herðar yfir þá kynslóö leikara. A kvikmyndatjaldinu var hann sú fyrirmynd, sem unga fólkið þráði, i gallabuxum og peysugopa. bað var sennilega vegna þess, að unga fólkið sá sig sjálft á þann hátt. Hann þráði bliðu, hann var persónugervingur vonleysisins, sem setti svip sinn á ungu kynslóöina á sjötta tugnum. begar hann geröist uppreisnar- gjarn i hlutverkum sinum, náöi boðskapurinn til allrar ungu kyn- slóðarinnar. bað er eins með hann og Humphrey Bogart, hann géngur aftur. Goðsögnin um James Dean var og er útbreiddari en mann heföi grunaö. betta er kannski vegna þess, að hann dó, svo ungur og aö i kringum dauða hans, hafa veriö svo margar sög- ur á lofti. baö er sennilega best að trúa þvi, að hann sé raunverulega lát- inn og að þessi kjaftasaga um aö hann hafi orðiö geöveikur sé uppspuni einn. En það er eitt, sem aldrei gleymist, James Dean varð fyrirmynd og söguhetja heillar unglingakynslóðar. Hvað heföi oröið úr honum, ef hann heföi ekki látiö lifiö, þegar sólin var hæst á himni þennan septemberdag fyrir tuttugu árum? baö er ómögulegt aö segja. Hann var aðeins tuttugu og fjögra ára. * 37. TBL. VIKAN 15

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.