Vikan - 29.12.1975, Blaðsíða 2
Þegar við fórum á stúfana til að
fá fóik til að skreyta fyrir okkur
veisluborð, leyfðum við okkur að
vera það bjartsýn að vonast til að
geta talið a.m.k. einn karlmann
á að vera með.
En að fá þrjá herra til að spreyta
sig á borðskreytingum var framar
og ofar öllum okkar vonum. Við
ákváðum því að snúa dæminu við,
I tilefni margrómaðs kvennaárs,
sem reyndar er á síðasta snúning,
en hér mega fylgja óskir um, að
það haldi áfram I hugum og hjört-
um sem flestra um ókomin ár.
Við gáfum því kvenfólkinu frí,
að undanskildum einum verðugum
fulltrúa, Steinunni Lárusdóttur,
húsmóður, en fulltrúar karlkynsins
eru: Hermann Ragnar Stefánsson
danskennari, Sigmundur Guð-
mundsson flugumferðastjóri og
Hilmar B. Jónsson veitingastjóri
Hótels Loftleiða.
Skilyrðin, sem við settum skreyt-
ingameisturum okkar, voru þau,
að þau notuðu aðeins borðbúnað
og muni, sem til væru á heimilun-
um, og þau önnuðust sjálf allan
undirbúning. Að vísu fékk Hilm-
ar undanþágu hjá okkur, þar eð
hann var nýfluttur, ög.skreytti hann
bví jólaborð á vinnustað sínum,
Steinunn hefur lagt á borð fyrir
fjóra 'á stóru kringlóttu borði, sem
hún hefur lagt á rauðan jóladúk,
en eftir borðinu þveru og endilöngu
liggja mynstraðir reflar, og stór
kringlóttur sþegill leggur áherslu á
miðju borðsins. Á honum standa
svo 'rauð kerti, sem speglast og
varþa ævintýraljóma yfir borðið.
Steinunn með jólasveinafjölskyld-
una, sem hún bjó til úr filti• og
notaf síðan sem hettur yfir öl- og
vínflöskur.
Síðustu hönd á borðskreytinguna
lagði Steinunn með því að taka
lófafylli sína af hnetum og kasta
yfir borðið..
brother vasareiknivél
ifc HENTUG JÓLAGJÖF.
íji FYRIR ÁRAMÓTARUPPGJÖRIÐ
BORGARFELL SKÓLAVÖRÐUSTiG 23 SÍMI 11372
TEGUND
408AD
VERÐ KR.
6.795.-
2 VIKAN 52. TBL.