Vikan - 29.12.1975, Blaðsíða 40
FRAMHJÁHALD.
Kæri draumráðandi!
Mig langar til að biðja þig að ráða fyrir mig draum,
sem mig dreymdi fyrir stuttu.
Hann var svona:
Mér fannst ég vera stödd í Reykjavík, en ég á heirma
úti á landi. Ég var þar með kærastanum mínum, sem á
heima þar, og við vorum heima hjá honum.
Síðan fór ég út og inn í stórt hús, þar sem
margt fólk, sem ég kannaðist ekki við, var samankomið.
Ég var dálitla stund þarna inni, en fór síðan út og settist
á stól — mig minnir, að það hafi verið hjólastóll, en ég
er alheilbrigð. Þá kom til mín strákur, sem mér fannst ég
þekkja — fannst hann vera vinur kærastans míns.
Hann tók í höndina á mér og spurði mig, hvort hann
mætti fylgja mér heim, og ég sagði það vera í lagi.
Hann leiddi mig alla leið, þangað til við vorum komin
skammt frá húsinu. Þá tók hann utan um mig og
kyssti mig eins og ég væri stelpan hans. Meðan við
vorum þarna að kveðjast og kyssast, kom kærastinn
minn, og varð hann mjög reiður, og ætlaði að ráðast
á strákinn, en ég hljóp á móti honum, og gat stöðvað
hann, en hinn hljóp bara í burtu. Þegar hann var farinn,
fór ég að afsaka mig og segja, að ég hefði ekki ætlað að
gera þetta. Svo fór ég að gráta og sagðist aldrei ætla
að gera þetta aftur. Kærastinn minn var ekkert reiður við
mig. Hann kyssti mig þara, og sagðist alveg skilja
þetta allt, en ég fékk aldrei almennilega að vita, hvað
hann skildi, því ég vaknaði um leið og ég spurði hann
að því.
Kæri draumráðandi! Ætlarðu að reyna að ráða þennan
draum fyrir mig, því að þetta er í annað sinn, sem mig
dreymir, að ég haldi framhjá, og í bæði skiptin hélt ég
framhjá sama stráknum? Og í bæði skiptin sá ég jafnmik-
ið eftir því.
Ég vil taka það fram, að þessi draumur var óvenju-
lega skír.
Með kveðju.
J.J. að vestan.
Þessir draumar eru ekki hættulegir, langt frá því.
Þó máttu eiga von á því, að þú fréttir um þig einhverjar
kjaftasögur, sem eiga við engin rök að styðjast, en
láttu það ekki á þig fá. Þær koma söguberanum einum
í koll.
SKOTSÁR.
Kæri draumráðandi!
Mig dreymir mjög sjaldan þannig, að ég muni draum-
ana daginn eftir, en draumurinn, sem ég ætla að biðja
þig að ráða, var alveg sérstaklega skír, og hann hefur
valdið mér talsverðum heilabrotum.
Draumurinn var á þessa leið:
Mér fannst ég vera í húsi nokkru ásamt einhverjum,
sem ég veit ekki, hver var. Við vorum í einhvers konar
bardaga við einhvern í húsinu á móti. Sajmt sá ég aldrei
tmgdreymdi
nein vopn. Allt í einu geng ég tram, en í sama bili
verð ég fyrir skoti beint í hjartastað. Birtist mér þá allt í
einu frændi minn, sem heitir Einar. Ég faðmaði hann
lengi að mér, og á meðan sagði hann stöðugt við mig:
Þú deyrð, þú ert að deyja, en ég faðmaði hann aðeins
betur að mér, og þaö var eins og snertingin við hann
græddi skotsárið, svo ég varð alheil. Ég tek það fram, að
í draumnum bar ég á móti því, að ég væri að deyja.
Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna.
X.
Þú verður fyrir hjartasorg, en einhver verður til að
græða hana. Ekki þarf það að vera Einar frændi þinn,
þótt hann kæmi fram í draumnum sem sá, sem það gerir.
STEINAR DETTA ÚR HRING.
Kæri þáttur!
Ég hef nú aldrei skrifað þér áður, en mig langar til
að biðja þig að ráða þennan draum, sem mig dreymdi
fyrir nokkru.
Mér fannst ég vera með hring, sem ég á, og setti ég
hann upp í mig. Þá fannst mér hann detta í sundur, þar
sem steinninn er í honum. Ég tók brotið og setti það
á borðið hjá mér,- og þá fannst mér, að steinarnir
væru orðnir tveir, og var annar svolítið stærri. Mér
fannst það hlyti að vera svo dýrt að gera við þetta, að ég
fer niður á bæjarskrifstofu til að spyrjast fyrir um, hvort
ég geti fengið eitthvað af viðgerðarkostnaðinum greiddan
úr tryggingum, en þar var mér sagt, að það tæki því
ekki, þar sem það tæki svo langan tíma.
Ég fór með það og fannst þetta þá allt f einu vera
allt í lagi.
Demant.
Þú bregst að öllum líkindum einhverjum, sem heldur
þig vera vin sinn.
Svartil Sigurbjargar:
Yfir öllum draumi þínum er einhver sérstök ró og frið-
ur, sem hlýtur að vitap gott. Annars er hann torráðinn og
á margan hátt svo undarlegur, að erfitt er að átta sig á
merkingu hans. í fljótu bragði virðist þó mega ætla,
að hann sé fyrirboði þess, að vinur þinn leiti eftir nánari
kunningsskap við þig___ekkert skal þó um það fullyrt___
og þú sért ekki mótfallin nánari kynnum.
Svar til E.J.
Grátur er fyrir góðu í draumi. Hringurinn og sú
breyting, sem á honum varð hins vegar fyrir vinslitum.
Sennilega losnar þú við frekari afskipti af kunningja, sem
þú ert orðin leið á.
Svartil K.S.
Láttu drauminn ekki á þig fá og haltu þínu striki, að
vísu getur svo fariö, að þú verðir fyrir smávegis töfum
á leið þinni að takmarkinu, en þær eru svo smávægi-
legar, að það tekur því ekki að setja þær fyrir sig.