Vikan - 29.12.1975, Blaðsíða 12
PASSAP
DUÖMATIC
Eina prjónavéiin/ sem
hægt er að tengja við
rafmagnsdrif
Simi 26788
Dósturinn
....EN HANN MÁ HAFA TiU
STELPUR.
Kæri góði póstur!
Ég hef aldrei skrifað þér áður, en
hef alltaf ætlað mér að gera það
— og nú verður loks af því.. En
það er best að koma sér að efn-
inu.
Mamma og pabbi verða alveg
vitlaus, ef þau sjá mig tala við
stráka, — og ég tala nú ekki um,
ef ég kæmi með strák heim. En
bróðir minn, sem er einu ári yngri
en ég má hafa stelpur inni hjá
sér (til dæmis tíu stelpur). Mér
finnst þetta alveg hryllilegt, — en
þér? Svo má hann vera úti til
hálftólf á kvöldin, en ég í mesta
lagi til hálfellefu.
Og þetta með Vogaskóla: Hvers
vegna er allt í einu verið að troða
menntaskóla þangað?
Jæja, ég ætla núna að hætta að
kvarta þetta við þig.
Og svo þetta venjulega: Hvernig
er skriftin og hvað lestu úr henni?
Hvernig passa tvíburinn (stelpa)
og steingeitin (strákur) saman?
Vertu blessuð að sinni.
Ein sem ér einmana.
P.S. Ég vona að þetta bréf lendi
ekki I rusiakörfunni frægu (er hún
ekki full?).
Póstinum finnst alls ekki sanngjarnt
að leyfa honum litla bróður þínum
að vera lengur úti. Hins vegar er
það ólíkt hættuminna að láta hann
Ihafa tíu stelþur inni hjá sér heldur
en eina. Svo kannski þú œttir næst
að reyna að fá að hafa fimm stráka
inni hjá þér. Ef til vill verða þá
foreldrar þínir rólegri en áður.
Ertu nú alveg viss um að hann
bróðir þinn fái að hafa TÍU stelpur
inni hjá sér? Hann hlýtur þá að
hafa fremur stórt herbergi.
Saga þín virðist fremur ótrúleg,
nú á þessum síðustu og bestu kven-
réttindatímum. Ertu nú alveg viss
um að þú hafir sagt alveg satt og
rétt frá öllum málavöxtum? Ég gæti
trúað að þú værir ekki fyllilega
sanngjörn í garð joreldra þinna.
Sennilega hefur verið full þörf
fyrir menntaskóla í hverfinu.
Skriftin lýsir bæði hreinskilni og
fljótfærni.
Sagt er að tvíburastelþa sé heldur
hvikul fyrir steingeitarstrák.
Kuslafatan er tœmd reglulega og
tekur því endalaust við bréfum.
TVÆR HÖRMULEGA MJÖAR,
HRIFNAR AF TVEIMUR....
Hæ Póstur!
Við erum hér tvær stelpur af
suðurlandi. Við erum þrettán ára og
hörmulega mjóar.
Nú ætlum við að leggja fyrir þig
spurningar:
1. Hvernig eigum við, að fara að
því að fita okkur?
2. Við efum hrifnar af tveimur
strákum, hvernig eigum við að
nálgast þá?
3. Hvernig fara mærin (stelpa) og
bogmaður (strákur) saman, en
drekastrákur og bogmannsstelpa?
Fyrirfram þakkir fyrir birtinguna.
M.J, og K.S.
Jahérna! Margt er mannanna
bölið. Sumir eru of feitir, aðrir of
mjóir, með alltof stóran sitjanda....
Það er nokkuð augljóst að ekki eru
allir eins. Þess vegna er það ekki
svo mjög mikilvægt að hafa hina
einu og réttu þyngd. Ef þið eruð
ákveðnar í að fita ykkur ættuð
þið að verða ykkur úti um Vikurnar,
sem komu út fyrst eftir áramót í
fyrra. Þar var Vikan með heljarmik-
inn megrunarkúr. Forðist síðan það,
sem þátttakendum í megrunarkúrn-
um var ráðlagt að gera, en fram-
kvæmið það, sem alls ekki mátti
gera í kúrnum. Það hlýtur að bera
einhvern árangur.
Þetta með strákana. Eelið ykkur
bak við næsta skúr, þegar þið vitið
að þeir eiga leið hjá. Takið síðan
undir ykkur stökk og...
Nei annars, bíðið í þrjú ár.
Þrettán ár eru nú ekki svo mjög hár
aldur. Látið ykkur bara dreyma um
þá, það er oft miklu meira sþenn-
andi.
Um bogmann og meyju er það
12 VIKAN 52.TBL.