Vikan - 09.12.1976, Side 10
BLÁSIÐ NÝJU
LÍFI í HÁRIÐ!
BRAUN hársnyrtitækin eru ein þau fullkomnustu á
markaðinum — og hönnunin sérlega glæsileg.
ATHYGLISVERÐAST
er það nýjasta frá BRAUN — hársnyrtisettið PLUS 2, en
þá er bætt við venjulegt sett úðara og lokkajárni. Þetta
þýðiraðsjálfsögðu, aðþérgetiðætíðblásið nýju lífi í hárið
— fyrirvaralaust.
GOTT VERÐ
Þetta glæsilega hársnyrtisett er á góðu verði — kostar
kr. 11.900 (október 1976, gæti hækkað fyrirvaralítið).
FLEIRI GERÐIR
Seljumennfremur BRAUN krullujárn, hárþurrkurog hár-
burstasett sem eru nokkuð ódýrari en PLUS 2.
KAUPMENN - KAUPFÉLÖG:
Vinsamlegast gerið pantanir á BRAUN vörum
sem fyrst.
Verslunin
(heildsala — smása|g)
Skólavörðustíg 1 —3, Bergstaðastræti 7
SvartillXXI.
Þegar strákur og stelpa fara /
s/eik, sem þú kallar svo, kyssast
þau á sérstakan hátt, og er sú
aöferö einnig nefnd franskur sog-
koss. Þú getur fengiö nánari lýs-
ingar á öllum tilburöum i sam-
bandi viö þetta í bók, sem nefnist
Listin aö kyssa, en einnig er fjallaö
um þetta í kynfræðslubókum.
Síblæði nefnist þaö, þegar
blóörennsli stöövast ekki af sjálfu
sér. Er þá yfir/eitt átt viö minni
háttar sár. Oft stafar þetta af því,
aö storknunarefni vantar í blóöiö,
en til eru lyf viö þessu.
Þaö þykir æskilegt, að stúlkur
séu komnar yfir tvltugt áður en
þær hefja notkun getnaðarvarna,
eins og pillunnar og lykkjunnar.
Ekki eru þó sett nein aldurstak-
mörk / þessu sambandi heldur eru
tæknar /átnir dæma um, hvort viö-
komandi hafi þörf fyrir slíka hluti.
ARKITEKTÚR 0. FL.
Kæri Póstur!
Mig langar til þess að spyrja
þig nokkurra spurninga.
1. Er einhver kona hér á landi
meistari í húsasmíði og ef svo er,
hvað heitirhún?
2. Hvar fær maður verslunarleyfi?
3. í hvaða skóla þarf maöur að
fara til þess að verða arkitekt,
utan- eða innanhúss?
4. Hvernig fara saman meyja
(kona) og Ijón (karl)? En hrútur
(kona) og bogmaður (karl)?
5. Hvað lestu úr skriftinni og hvað
heldur þú að ég sé gömul?
Ég bið kærlega að heilsa rusla-
fötunni, ef bréfið lendir þá ekki í
henni. Svo þakka ég fyrir allt efni
Vikunnar, þó svo að það mætti
vera miklu betra. Finnst mér, að
það mætti birta meira af fræðslu-
efni.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna,
Mær.
Pósturinn gerði allt, sem í hans
valdi stóð til þess aö fá upp/ýsing-
ar um það, hvort einhver kona
heföi oröiö meistari í húsasmfði.
Engin kona fannst á skrám yfir
sl/ka meistara, en þaö er þó ekki
a/veg örugg heimild.
Verslunarleyfi veitir borgarfóg-
etinn i fíeykjavík, en annars bæjar-
fógetar og sýslumenn úti á lands-
byggöinni. Ákveðin skilyröi þarf
aö uppfylla til þess að fá leyfið.
Umsækjandi veröur aö vera ísl-
enskur ríkisborgari og fjárráða.
Hann veröur einnig að hafa
menntun á sviöi verslunar eöa þá
starfsreynslu, sem er metin hverju
sinni. Heildsöluleyfi kostar
200.000 krónur, en smásöluleyfi
50.000 krónur.
Arkitektúr er ekki hægt að læra
hér á landi. Flestir íslenskir arki-
tektar hafa því numiö í háskóla í
Danmörku eða Þýskalandi. Inn-
tökuskilyröi eru stúdentspróf, og
námið tekur fjögur ár að jafnaöi.
Ástasamband meyjar og Ijóns
getur sja/dnast b/essast, en þau
geta hins vegar oröiö mjög góöir
vinir. Hrútur og bogmaður geta
átt allvel saman, en veröa þó bæöi
aö vera tillitssöm.
DANS- OG TÓNLISTARNÁM.
Sæll og blessaður Póstur minn!
Ég skrifa þér nú í fyrsta sinn,
svo að þú verður að fyrirgefa ef
þetta er eitthvað klaufalegt hjá
mér.
Ég ætla að biðja þig um að
hjálpa mér með nokkur atriði:
Heldur þú að ég geti farið í
einhvern framhaldsskóla (iðnskóla
verslunarskóla o.s.frv.) og stund-
að um leið dans- og tónlistarnám?
Ég meina hvort tónlistarskólar
starfi á kvöldin eða seinnipart
dags.
Hvar er hægt að kaupa Jesú-
skó? Þegar þú lest úr skriftinni
fer það þá bara eftir því hvernig
stafirnir eru, en ekki eftir orðalagi
eða bréfsefni? Gætir þú ekki
komið með þátt í Vikunni, þar sem
þú myndir kenna fólki að lesa úr
skrift?
Ég þakka svo gott blað og vona
að þú birtir bréfið mitt.
Bagga.
Þaö ætti aö vera gerlegt fyrir þig
að stunda dans- og tónlistarnám
jafnframt ööru námi. Kvöldskólar
starfa í báðum greinum, og margt |
fólk leggur stund á þetta sem
tómstundagaman. Pósturinn veit
nú ekki alveg við hvað þú átt,
þegar þú talar um Jesúskó. Ef þú
átt viö þá skótegund, sem
venjulega eru nefndir sandalar, þá
fást þeir i f/estum skóbúöum. Þaö
er algjört hernaðar/eyndarmál.
10 VIKAN 50. TBL.