Vikan - 09.12.1976, Blaðsíða 84
Spáin pildlrfrá fimmrudejíi til miðvikudags
HRÚT'JRINN 21. mars - 20. april _ Horfur eru á því, að allt muni ganga þér í hag eins og ráð hefur verið gert fyrir. Þú ert samt áhyggjufullur út af erfiðleikum, sem biða þín i framtiðinni.
f§# NAUTiÐ 21. apríl - 21. mai Þú skalt skipuleggja vinnu þina og láta ekkert utanaðkomandi trufla áætlanir þínar h’’að svo sem á dynur. Það gæti reynst happadrjúgt að gera leynilegan samning.
TVÍBURARNIR 22. maí - 21. júní Þú ert að leggja lokahönd á verk, sem hefur kostað þig talsvert umstang, en þú þarft ekki að sjá eftir því vegna þess hve vel þér hefur tekist til.
Uff’ KRABBINN 22. júni - 23. júii Samstarfsmenn þínir munu reynast þér vel, er þú þarft að leita aðstoðar þeirra. Vikan getur reynst þér nokkuð útlátasöm, en þú skalt gæta hófs í aðgerðum þinum.
LJÓNIÐ 24.júii -- 24. agúst Þú veist vel hvers þú mátt þín og notfærir þér það, en hafðu samt gát á, að þú skaðir ekki neinn með gerðum þínum. Vertu varkár í umferðinni.
wHSI' MEYJAN 24. ágúst — 23. sept. Þú hefur tilhneigingu til þess að dveljast í einveru og hafa hægt um þig, en nú skaltu hressa þig upp og ef þú finnur ekki næg verkefni heimafyrir, leitaðu þá annað.
VOGIN 24. sept — 23. okt. Þú ert afkastarr.estur ef enginn er til að > trufla þig. Þú vinnur leynilega að verkefni, sem þú ætlar svo öðrum að njóta. Þetta verk mun veita þér mikla ánægju.
SPORÐDREKINN 24. okt. - 23. nóv. Efnahagur þinn er ef til vill ekki sem bestur, en með hugkvæmni og nýtni þarf hann alls ekki að vera svo bágborinn. Athugaðu málin. Happatalan er fjórir.
BOGMAÐURINN 24. nóv. - 21. des. Þú skalt gera þig ánægðan með ástandið eins og það er, þvi það er orðið of seint að ráða bót á því, í bili. Vikan verður þér ánægjuleg og hátíðleg á margan hátt.
STEINGEITIN 22. des. - 20. jan. Ráðleggingar og aðstoð náinna félaga þinna koma þér að miklu gagni, eins og málum er nú háttað. Það er ekki ólíklegt að þú fáir kunningjaheimsókn langt að.
VATNSBERINN 21. jan. - 19. febr. Þú varst hygginn að vera búinn að undirbúa þennan annatima og þú munt njóta þess, þótt þú hafir samt sem áður mikið meira en nóg að gera. Þú færð óvæntar fréttir.
fHlí FISKARNIR 20. febr. - 20. mars Þú tekur þátt í einhverju skemmtilegu, sem snertir þá mest er næst þér standa. Persóna, sem þú hefur lengi átt í brösum með, býður þér nú aftur viháttu sína.
STcJQRNUSPfl
Ef þœr œpa segjumst við skjóta inn
i miðjan telpnahópinn. Og þœr
•munu trúa því, að minnsta kosti
nógu lengi til þess að við komumst
með þœr áleiðis niður að veginum.
Og þegar við höfum lokið okkur af
höldum við Milan áfram niður á
þjóðveginn og göngum að gras-
flötinni. „Við misstum af vinkonum
okkar,” munum við segja við feita
ítalann, ef hann er þá ekki farinn.
,,Því miður.” Já, þvi miður og
næstum því of auðvelt. Ludvik
hefði átt að senda okkur á eftir
þeim Krieger og Mennery, en láta
hina tvo annast þennan barnaleik.
Milan stansaði og talaði við
eina nunnuna. Hann er að spyrjast
fyrir um þær, hugsaði Jan. Milan
er varkár, en hann er einum of
hræddur við að gera skyssur. Við
höfum svo sem líka verið óheppnir,
alveg þangað til núna. Æ, flýttu þér
nú Milan, sagði hann í hljóði. Þetta
er tímasóun.
En það reyndist þó ekki vera.
Þeir gátu nú sparað sér að leita í
kirkjunni. „Þær voru hér,” sagði
Milan lágt, „fyrir tíu mínútum
síðan. Nunnan sagðist halda að þær
hefðu farið aftur niður að bílunum.”
„Nújá, hélt hún það?” Reiði Jans
snérist upp í athöfn. Hann flýtti sér
framhjá klukkuturninum og ýtti
gamla hróinu, sem var að toga í
klukkustrengina til hliðar. Milan
fór á eftir honum. Að baki þeirra
heyrðist nunnan kalla kvíðafullri
röddu. „Ekkiþangað signore.” Þeir
héldu áfram án þess að líta við.
„Ekki þangað signore,” kallaði
gamli maðurinn og hætti að hringja
til þess að orð hans heyrðust betur.
Fífl, hugsaði Milan og var nú
kominn á stíg, sem var þakinn
furunálum. Eru þau svo vitlaus að
halda að við hefðum ekki hitt Irinu
Kusak og amerisku konuna, ef þær
hefðu farið aftur sömu leið? Nei,
þær hafa farið í þessa átt. Og ef til
vill af ásettu ráði. Þær hafa ætlað
sér að komast niður á þjóðveginn og
því næst að bílnum og aka svo til
Sviss. Hafði þeim mistekist enn
einu sinni? Nei, ekki ef þeir hefðu
hraðann á. Þær hafa aðeins tíu
mínútna forskot eða svo. Við ætt-
um þvi að ná þeim. Þær verða að fara
varlega niður þennan stíg. Við
verðum búnir að góma þær áður en
þær komast niður á þjóðveginn.
„Flýttu þér,” sagði hann við Jan.
En þess þurfti ekki því að Jan fór
eins hratt og hann komst. Hann var
með skammbyssuna í vinstri hendi,
en hafði hægri höndina lausa til
þess að styðja sig við steinnibbur
og kvistótta trjáboli.
Þetta er hroðaleg leið, hugsaði
Milan. Er mögulegt að þær hafi
farið hér niður? Já, um annað var
ekki að ræða. Það lágu aðeins tvær
leiðir niður þessa fjandans hæð og
þær höfðu ekki farið þá leið sem
þeir komu upp. Svo mikið var
víst. Okkur mun því takast að kló-
festa þær, hugsaði hann og horfði á
þverhnípið, sem var á vinstri hönd.
Þeim megin einstigisins var aðeins
lágur malarhryggur, en aurskriða
FYRIR ALLA
ALLTAF OG ALLS STAÐAR
Kjartan Magnússon hf. símar 83333, 83335.
84 VIKAN 50. TBL.