Vikan


Vikan - 11.08.1977, Page 55

Vikan - 11.08.1977, Page 55
Kolkrabbar í dýragörðum, sem þjást af einmanakennd, fremja sjálfsmorð með því að éta sína eigin griparma. Risakolkrabbinn hefur stærra auga en nokkur önnur lifandi vera, það er stærra en höfuð fullorðins manns. ★ Kvenfólkið í Kashmír skiptir um föt einu sinni á ári — á vorin. ★ Laun þeirra hæstlaunuðu í Engl- andi eru nokkuð há. 10% þeirra fá laun, sem eru 15 sinnum hærri en laun 10% þeirra lægstlaunuðu. En í Bandaríkjunum eru laun þeirra hæstlaunuðu 29 sinnum hærri en þeirra lægstlaunuðu, og í Frakk- landi eru þau 76 sinnum hærri! ★ Simpansi nokkur Pierré að nafni, málaði myndir af fullum krafti. Myndir hans seldust vel og gagnrýnendur hældu þeim áður en allt komst upp. Pierre var mjög taugaveiklaður og hann át einn banana á mínútu að meðaltali, þegar hann var að mála. ★ ★ Kjúklingar og gæsir í Bretlandi framleiða sex milljónir tonna af úrgangi á ári. Svín gefa af sér aðeins eina milljón en kýr fram- leiða hvorki meira né minna en 100 milljónir tonna á ári. ★ Það mun vera gamall siður hjá kvenfólki í Perú, þegar það finnur óvanalega Ijóta kartöflu, að hlaupa með hana að næsta karlmanni og klessa henni í andlit hans. ★ Ormategund nokkur (sem er sníkjudýr) býr um sig undir augnalokum flóðhestsins og lifir góðu lífi á tárum hans. ★ Robert Spears var ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum, en saklaus fundinn, þegar hann bar fyrir sig að um sjálfsvörn hefði verið að ræða. Tekið var fram í kærunni að hann hefði fleygt líkinu í Ohio-ána. Eftir að sýknudómurinn hafði verið kveðinn upp og hann látinn laus var hann samstundis kærður aftur — og nú fyrir að henda rusli i ána! ★ Þegar það fréttist árið 1851 að fyrirhugað væri að setja bað- herbergi í Hvíta húsið í Bandaríkj- unum, urðu uppi háværar raddir um óþarfa eyðslusemi. ★ Lifandi apa rak á land í Englandi þegar stríðið við Napóleon stóð yfir. Hann var tekinn fastur og álitið að þarna væri kominn njósnari frakka. Apinn hafði enga verjendur og að málalokum var hann leiddur út og hengdur. ★ WILJIRÐU GOTT • • • lappa af í næði, eða þá hitta setustofu, veitingasal eða þá er að leita til Hótel Esju. angað er auðvelt að komast aka erfiðar umferðargötur, og tisvagna er rétt við hótelið. arnar og jþróttahöllin í Laugardal, tistaðir af ýmsu tagi næsta nagrenni. Næsta heimsókn inn verður skemmtileg tilbreyting og góð hvíld. OMIN Á HÓTEL ESJU — SIMI 82200 Tíu sinnum fleiri mexikanar deyja af flugnabiti en slöngubiti. 32. TBL. VIKAN 55

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.