Vikan - 07.02.1980, Blaðsíða 14
Andlit í spéspegli
Það eru
tvær hliðar á öllum
OG ANDLITI
•••
Helgi Tómasson
Flestir hafa líklega tekið eftir því
að hægri og vinstri hluti andlits
fólks virðast oft ekki vera eins. Fólk
sem horfst er í augu við breytist
þegar horft er á spegilmynd þess.
VIKAN ákvað að sannprófa
þessa kenningu með því að taka
nokkrar Ijósmyndir af góðkunningj-
um fólksins i landinu, framkalla
sömu hlið andlitsins tvisvar, snúa
annarri hliðinni við og skeyta
helmingana saman. Hér á síðunni
getur að líta árangurinn.
Gunnar Þórðarson, hljóm-
listarmaður, virðist eftir breyting-
una hafa fengið einum of mikið af
hinu „Ijúfa lífi”, en Helgi Tómas- i
son ballettdansari heldur sér bara (
vel og virðast báðar hliðar andlits
hans bara áþekkar. Ragnheiður !
Steindórsdóttir, leikkona, breytist
aftur á móti til hins verra, þorum
við að fullyrða, og litlar líkur á því ‘
að hún hlyti mörg kvikmynda-
hlutverkin í framtíðinni ef hægri
hluti andlits hennar væri
nákvæmlega eins og sá vinstri. Egill
Ólafsson er nokkuð þursalegur
svona dags daglega og ekki skánar
hann við breytinguna. Og svo er
það Guðmundur J. Guðmundsson,
alþingismaður og formaður
Verkamannasambandsins. Best
gætum við trúað að vinnuveitendur
yrðu skjótari til samninga en venju-
lega ef Guðmundur birtist svona á
sig kominn á samningafundi.
En þetta er allt leikur.
14 Vlkan 6. tbl.