Vikan - 07.02.1980, Blaðsíða 63
skemmtunar). Ég er búin að
vera hrifin af sama stráknum í
1 ár. Hann er 3 árum eldri en
ég. Ég fer alveg í kerfi ef égá
að tala eitthvað við hann og
það gengur ekkert hjá mér.
Hvað á ég að gera?
Þú værir mjög elskulegur ef
þú myndir svara þessum
spurningum fyrir mig.
Bæ, bæ.
B
P.S. Ertu maðureða kona?
Plakat af Leif Garrett og grein
um hann birtist i 24. tbl. 1979.
Heimilisfangið er: Leif Garrett,
c/o Scotti Bros. Entertainment,
9229 Sunset Blvd., Los Angeles,
California 90069, USA.
Hann hljóp út og vinkona
mín á eftir
Kæri Póstur!
Ég er í miklum vanda. Þannig er mál með vexti að ég var
með strák sem við skulum kalla X. Á föstudaginn fór ég
með vinkonu minni í partí og X fór með mér líka. Hann
var eitthvað að reyna við vinkonu mína. Hún tók vel í það.
X tók mig með sér inn á W. C. og sagði mér að hann nennti
ekki að vera með svona leiðinlegri og Ijótri stelpu lengur.
Síðan hljóp hann út og vinkona mín á eftir.
Núna eru þau byrjuð saman en það versta við þetta er
að þau tala hvorugt við mig og þegar ég hitti þau hlæja þau
að mér.
Kæri Póstur, ekki segja mér að gleyma honum því það
get ég ekki.
Bless.
Ein einmana.
Það er fjarri því að Pósturinn ráðleggi þér að gleyma honum
því þetta getur orðið þér víti til varnaðar síðar og hvatning til
að gæta þín bæði á honum og hans líkum. Hrósaðu happi yfir
að hafa losnað svo auðveldlega við kauða því hann hefði
getað orðið þér til trafala síðar. Á þínum aldri er það eitt af
lögmálunum að ástin endist ekki til eilífðar og því er nauðsyn-
legt að geta tekið ósigri í þeim efnum með hörku. Hins vegar
er framkoma eins og þú lýsir einungis tákn þess hve einstök
mannleysa drengurinn er og varla von til að þú hefðir haft
mikið gagn og gaman af sambandi við hann þegar til lengdar
léti.
Hvað „vinkonu” þína varðar má reyndar nota sömu skap-
gerðarlýsingu. Þetta hefur alls ekki verið vinátta sem neitt er
byggjandi á. Það má reyndar með nokkrum rétti segja að þau
tvö hæfi hvort öðru fullkomlega og í raun réttri ættirðu að
vera himinglöð að hafa losnað svo auðveldlega við þau bæði á
einu bretti.
Láttu framkomu þeirra ekki hafa nein áhrif á þig og sýndu
þeim mestu fyrirlitningu ef þau reyna að hafa samband við þig
að fyrra bragði.
Þyngdin væri hæfileg
eitthvað á milli 54 og 56 kíló
nema þú sért því bcinastærri, þá
máttu vega aðeins meira. Svo að
lokum: Góða skemmtun!
Ertu maður eða
kona?
Kæri Póstur!
Ég vona að þú getir hjálpað
mér. Getur þú sagt mér
heimilisfangið hjá Leif Garrett?
Og hafið þið birt plakat af
honum? Ef svo er, í hvaða
tölublaði?
Svo er ég með smá ástar-
vandamál handa þér (svona til
Já, þakka þér fyrir, Pósturinn
hafði mjög gaman af ástar-
vandamáli þínu! Þér til ráðlegg-
ingar í málinu hefur Pósturinn
fremur lítið, nema að hætta að
fara í kerfi og vera alveg
ósegjanlega skemmtileg næst
þegar þið hittist.
Það er álVeg óhætt að fullyrða
að Pósturinn er maður, en hvort
hann er svo kona því til viðbótar
skal ósagt látið.
Stelpur sem
koma óléttar
heim aftur
Kæri Póstur.
Það er langbest að koma sér
bara beint að efninu og athuga
hvort þú vitir ráð.
Þannig er mál með vexti að
ég var í vist I fyrra úti á landi
og ég kynntist fullt af skemmti-
legum krökkum og það var frá-
bært stuð. Þegar ég kom heim
sagði mamma að ég væri svo
breytt o.s.frv. (Hún getur ekki
skilið að krakkar breytist með
aldrinum). Hún vill ekki að ég
fari aftur þangað næsta sumar
en konan sem ég var hjá er
búin að bjóða mér að vera þar
aftur. Mamma heldur að ég
komi ólétt heim aftur. Svo er
hún alltaf að segja mér frá
hinum og þessum stelpum sem
hafa farið út á land og komið
óléttar heim aftur.
Jæja, nú skal ég ekki eyða
meira af þínu dýrmæta plássi.
Þakka fyrirframfyrir birting-
una' Vikuaðdáandi.
P.S. Hvernig væri að birta
plakat af Michael Jackson?
Það er mjög eðlilegt að móðir
þín hafi áhyggjur af þér og vilji
alls ekki að þú lendir í neinum
vandræðum. Hins vegar getur
Pósturinn ekki skilið að það geti
staðist að stúlkur verði frekar
vanfærar úti á landi heldur en
bara hér á höfuðborgarsvæðinu.
Þið mæðgurnar ættuð að ræða
saman af alvöru um þetta og
hljótið að geta komið ykkur
saman um ákjósanlega lausn.
Getur ekki verið að þú hafir mis-
skilið eitthvað, sem hún hefur
reynt að útskýra fyrir þér, og
ástæðan fyrir andstöðu hennar
sé allt önnur en þú segir í bréfl
þínu?
Getnaðarvarnir eru orðnar
það fullkomnar að það ætti að
vera hægur vandinn fyrir þá,
sem áhuga hafa á, að koma í
veg fyrir ótímabæran getnað og
það ættir þú að gera móður
þinni Ijóst. Hins vegar máttu alls
ekki túlka orð Póstsins svo að
hann sé að ráðleggja þér að
koma á kynferðislegu sambandi
við einn eða neinn. En ef svo
skyldi fara sakar ekki að hafa
kynnt sér getnaðarvarnir og
nýta þá kunnáttu þegar þar að
kemur.
Plakathugmyndin er í
athugun.
Þarftu endilcga að lifa þig svona inn i hlutverkið? í guðanna bænum hættu,
Asgeir!
6. tbl. Vikan 63