Vikan


Vikan - 07.02.1980, Side 63

Vikan - 07.02.1980, Side 63
skemmtunar). Ég er búin að vera hrifin af sama stráknum í 1 ár. Hann er 3 árum eldri en ég. Ég fer alveg í kerfi ef égá að tala eitthvað við hann og það gengur ekkert hjá mér. Hvað á ég að gera? Þú værir mjög elskulegur ef þú myndir svara þessum spurningum fyrir mig. Bæ, bæ. B P.S. Ertu maðureða kona? Plakat af Leif Garrett og grein um hann birtist i 24. tbl. 1979. Heimilisfangið er: Leif Garrett, c/o Scotti Bros. Entertainment, 9229 Sunset Blvd., Los Angeles, California 90069, USA. Hann hljóp út og vinkona mín á eftir Kæri Póstur! Ég er í miklum vanda. Þannig er mál með vexti að ég var með strák sem við skulum kalla X. Á föstudaginn fór ég með vinkonu minni í partí og X fór með mér líka. Hann var eitthvað að reyna við vinkonu mína. Hún tók vel í það. X tók mig með sér inn á W. C. og sagði mér að hann nennti ekki að vera með svona leiðinlegri og Ijótri stelpu lengur. Síðan hljóp hann út og vinkona mín á eftir. Núna eru þau byrjuð saman en það versta við þetta er að þau tala hvorugt við mig og þegar ég hitti þau hlæja þau að mér. Kæri Póstur, ekki segja mér að gleyma honum því það get ég ekki. Bless. Ein einmana. Það er fjarri því að Pósturinn ráðleggi þér að gleyma honum því þetta getur orðið þér víti til varnaðar síðar og hvatning til að gæta þín bæði á honum og hans líkum. Hrósaðu happi yfir að hafa losnað svo auðveldlega við kauða því hann hefði getað orðið þér til trafala síðar. Á þínum aldri er það eitt af lögmálunum að ástin endist ekki til eilífðar og því er nauðsyn- legt að geta tekið ósigri í þeim efnum með hörku. Hins vegar er framkoma eins og þú lýsir einungis tákn þess hve einstök mannleysa drengurinn er og varla von til að þú hefðir haft mikið gagn og gaman af sambandi við hann þegar til lengdar léti. Hvað „vinkonu” þína varðar má reyndar nota sömu skap- gerðarlýsingu. Þetta hefur alls ekki verið vinátta sem neitt er byggjandi á. Það má reyndar með nokkrum rétti segja að þau tvö hæfi hvort öðru fullkomlega og í raun réttri ættirðu að vera himinglöð að hafa losnað svo auðveldlega við þau bæði á einu bretti. Láttu framkomu þeirra ekki hafa nein áhrif á þig og sýndu þeim mestu fyrirlitningu ef þau reyna að hafa samband við þig að fyrra bragði. Þyngdin væri hæfileg eitthvað á milli 54 og 56 kíló nema þú sért því bcinastærri, þá máttu vega aðeins meira. Svo að lokum: Góða skemmtun! Ertu maður eða kona? Kæri Póstur! Ég vona að þú getir hjálpað mér. Getur þú sagt mér heimilisfangið hjá Leif Garrett? Og hafið þið birt plakat af honum? Ef svo er, í hvaða tölublaði? Svo er ég með smá ástar- vandamál handa þér (svona til Já, þakka þér fyrir, Pósturinn hafði mjög gaman af ástar- vandamáli þínu! Þér til ráðlegg- ingar í málinu hefur Pósturinn fremur lítið, nema að hætta að fara í kerfi og vera alveg ósegjanlega skemmtileg næst þegar þið hittist. Það er álVeg óhætt að fullyrða að Pósturinn er maður, en hvort hann er svo kona því til viðbótar skal ósagt látið. Stelpur sem koma óléttar heim aftur Kæri Póstur. Það er langbest að koma sér bara beint að efninu og athuga hvort þú vitir ráð. Þannig er mál með vexti að ég var í vist I fyrra úti á landi og ég kynntist fullt af skemmti- legum krökkum og það var frá- bært stuð. Þegar ég kom heim sagði mamma að ég væri svo breytt o.s.frv. (Hún getur ekki skilið að krakkar breytist með aldrinum). Hún vill ekki að ég fari aftur þangað næsta sumar en konan sem ég var hjá er búin að bjóða mér að vera þar aftur. Mamma heldur að ég komi ólétt heim aftur. Svo er hún alltaf að segja mér frá hinum og þessum stelpum sem hafa farið út á land og komið óléttar heim aftur. Jæja, nú skal ég ekki eyða meira af þínu dýrmæta plássi. Þakka fyrirframfyrir birting- una' Vikuaðdáandi. P.S. Hvernig væri að birta plakat af Michael Jackson? Það er mjög eðlilegt að móðir þín hafi áhyggjur af þér og vilji alls ekki að þú lendir í neinum vandræðum. Hins vegar getur Pósturinn ekki skilið að það geti staðist að stúlkur verði frekar vanfærar úti á landi heldur en bara hér á höfuðborgarsvæðinu. Þið mæðgurnar ættuð að ræða saman af alvöru um þetta og hljótið að geta komið ykkur saman um ákjósanlega lausn. Getur ekki verið að þú hafir mis- skilið eitthvað, sem hún hefur reynt að útskýra fyrir þér, og ástæðan fyrir andstöðu hennar sé allt önnur en þú segir í bréfl þínu? Getnaðarvarnir eru orðnar það fullkomnar að það ætti að vera hægur vandinn fyrir þá, sem áhuga hafa á, að koma í veg fyrir ótímabæran getnað og það ættir þú að gera móður þinni Ijóst. Hins vegar máttu alls ekki túlka orð Póstsins svo að hann sé að ráðleggja þér að koma á kynferðislegu sambandi við einn eða neinn. En ef svo skyldi fara sakar ekki að hafa kynnt sér getnaðarvarnir og nýta þá kunnáttu þegar þar að kemur. Plakathugmyndin er í athugun. Þarftu endilcga að lifa þig svona inn i hlutverkið? í guðanna bænum hættu, Asgeir! 6. tbl. Vikan 63

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.