Vikan - 07.02.1980, Blaðsíða 24
Borðfélagar
Eg ætla aö panta
Atíi Heimir Sveinsson tónskáld:
Heljarslóðarorrusta
og hreindýrasteik
„Ef ég ætti þcss kost að sitja i róleg-
heitum eina kvóldstund með Benedikt
BORÐ
FYRIR
rpT T/^\ á góðum
1 VU stað
Fátt er unaðslegra en að njóta góðs matar í
þægilegu umhverfi. En þótt maturinn sé
óaðfinnanlegur, stólarnir góðir og borðið fallegt
þá er það allt einskis virði sé félagsskapurinn
slæmur og eins og menn vita þá er oft betra að
borða einn en að standa í slíku. Yfir borðum er
góður og skemmtilegur félagi á við hundrað
sósur og allt krydd heimsins. Aldrei verða
samrœður afslappaðri og meira uppbyggjandi
en við kertaljós og góðan mat. En góðir borð-
félagar eru ekki á hverju strái.
Segjum nú sem svo, lesandi góður, að þú
fengir að velja þér borðfélaga eina kvöldstund,
ekki eingöngu á meðal lifenda heldur úr saman-
lagðri veraldarsögunni. Hvern veldirðu og
hvað myndirðu bjóða honum upp á? Við
spurðum nokkra íslendinga þessarar
spurningar.
Gröndal skáldi myndi ég svo sannarlega
þiggja það. Hann hlýtur að hafa verið
afskaplega skemmtilegur maður ef
marka má bækur hans, Heljarslóðar-
orrustu og Dægradvöl.
Ég myndi bjóða honum upp á íslensk-
an mat, Þingvallasilung i forrétt með
góðu Rinarvini, siðan myndi ég bera
fram hreindýrasteik með góðu frönsku
rauðvíni og i lokin rjómapönnukökur
meðarmensku koníaki. Þeir brugga gott
koniak i Armeníu. Mér var eitt sinn
gefin flaska af því þar austur frá.”
Sóro Halldór Gröndal
sóknarprestur:
Jesús Kristur
„Ég myndi bjóða Jesú Kristi og færa á
borð fyrir hann alit það besta sem ég
ætti vegna þess að ég elska hann."
Svavar Gests
hljómplötuútgefandi:
Góð sósa skilyrði
„Ég myndi bjóða Khomeini i mat ef
ég fengi góða sósu út á hann. Og ekki
hafa neinn eftirrétt.”
Gunn vör Braga
dagskrárfulltríii:
Villibráð með
Napoleon Bonapartí
„Ég vildi snæða með Napoleon. Þar
er á ferð gífurlegur andlegur jötunn og
atorkumaður. Og þótt sporin sem hann
steig hafi verið misjöfn þá flutti hann
áfram ákveðinn sprota úr frönsku bylting-
unni — hnignun lénsveldisins og fram-
gang borgarastéttarinnar — þrátt fyrir
allt. Yfir borðum hefði ég sérstakan
áhuga á að ræða lögbókina hans, Code,
sem er fyrsta sameiginlega lögbókin fyrir
Frakkland.
Ég geri að sjálfsögðu ráð fyrir þvi
að Napoleon kæmi hingað til Íslands og
borðaði með mér á heimili minu og þar
myndi ég bjóða upp á villibráð, hrein-
dýrahrygg, og i eftirrétt ost, þrúgur og
Bordeaux rauðvín. Borðið myndi ég
skreyta með þungum silfurstjökum og
klingjandi kristal."
24 Vikan 6. tbl.