Vikan - 07.02.1980, Qupperneq 34
Fimm mínútur með Willy Breinholst
Zobrini
og mauriim
Zobrini var fæddur flakkari.
Hið frjálsa líf listamannsins var
honum í blóð borið og reyndar
var það engin tilviljun að hann
skyldi koma í heiminn á litlum
sígaunavagni sem staðsettur var
miðja vegu á milli parisar-
hjólsins og speglasalarins. Á
unga aldri hafði hann lagt lífs-
hættulegan mótorhjólaakstur
fyrir sig, sem sýningaratriði að
sjálfsögðu, og undir listamanns-
nafninu Kapteinn Billy King
sýndi hann og kynnti alklædd
sæljón og lamadýr úr Andes-
fjöllunum sem gat ropað, fyrir-
bæri sem aldrei fyrr hafði sést
norðan Alpafjallanna. Siðar
sneri hann sér í auknum mæli að
ýmsum eldleikjum og var eitt
atriði hans frægt víða um lönd,
en það fólst í því að hann hellti
einhverjum ókjörum af bensíni
yfir bringuna á sér, kveikti svo í
og lét brenna þar til sýningar-
tjaldið var farið að lykta af
sviðnu mannakjöti. Einnig hafði
hann verið einkaumboðsmaður
austurlenskra magadansmeyja,
hann hafði verið með sinn eigin
flóasirkus og hann hafði í
nokkur ár æpt sig hásan til að fá
fólk til að lita á feitustu konu
heims sem hét Zuleima og vó
700 ensk pund. Þeir sem keyptu
sér aðgöngumiða fengu að
ganga í kringum hana og skoða
nákvæmlega. Einn daginn
gerðist það að Zuleima settist
óvart ofan á Zobrini með þeim
afleiðingum að hann þurfti að
dvelja 6 mán ði á sjúkrahúsi rg
gangast undir nokkra uppskurði
til að koma beinunum á sinn
fyrri stað. Heldur dró úr frama
Zobrinis eftir þennan atburð,
hann náði sér aldrei almenni-
lega. Eftir slysið byrjaði hann að
sýna þríhöfða kálf og hænu sem
gat galað eins og hani í minnsta
tjaldinu í Tívolí. En fólk virtist
ekki hafa neinn sérlegan áhuga á
slíku lengur, það var hvorki
hægt að lifa né deyja af þessu
starfi og því var það að Zobrini
greip til þess ráðs að stela
peningakassa skemmtigarðsins
úr skrifstofu forstjórans kvöld
eitt er hann var á leið heim úr
vinnu. Fyrir vikið fékk hann að
dúsa i tvö ár á bak við lás og slá,
og það er eiginlega hér sem
sagan af Zobrini hefst.
Honum leiddist vistin í fang-
elsinu, timinn leið svo ofur
hægt. Svo var það dag einn að
hann kom auga á lítinn maur
sem skreið á kantinum á blikk-
krúsinni hans.
Þá fékk hann hugmynd.
— Ég verð að temja þetta litla
dýr, hugsaði hann með sér. — 1
Ef ég get tamið sæljón, lamadýr
og flær þá hlýt ég að geta tamið
einn maur.
Nú hófust miklar æfingar hjá
blessuðum maurnum. Hann átti
að læra að standa á einum fæti
en það gekk ekkert allt of vel að
koma honum í skilning um svo
einfaldan hlut þar sem maurinn
var bæði latur og ónámfús. Að
lokum tókst það þó. Þarna stóð
maurinn á miðju borðinu — á
einum fæti.
— Óhó! hrópaði Zobrini,
þetta er stórkostlegt. Ég skal
gera þig að fimleikastjörnu og
þegar ég svo slepp út héðan þá
get ég grætt stórfé á því að sýna
þig-
En maurinn átti enn langt í
Ilrúlurinn 2l.m;irv 20.;i|»ril \;iulið 2l.npril 2l.ni;ii
Tiibumrnir 22.mui 2l.júni
Kr.'hhinn 22. júni 23. juli
l.júniú 24.júli 24. úijú'l
Mt't jan 24.niíúsl 2.4.stpl.
Stundum getur reynst
nauðsynlegt að sýna
ákveðni til að verða
ekki undir í baráttunni.
Það má þó ekki fara út
í öfgar. Ef það hendir
þig þá skaltu hafa í
huga að afsökunarbeiðni
kostar ekki neitt.
Þú ert of eftirgefanlegur
við óviðkomandi fólk
því þetra er að eiga fáa
en góða vini. Helgin
nýtist vel til alls konar
athafna sem skapa
hreyfingu og þvi meiri
tilbreyting því betra.
í þessari viku virðast
vandamál þín ætla að
leysast á farsælan máta.
Gættu þess að láta það
ekki stíga þér til höfuðs
því ekki er öruggt að
þessi heppni muni end-
ast þegar til lengdar
lætur.
Gerðu allt til þess að ná
langþráðu takmarki og í
þvi efni skaltu varast að
spila um of einleik. Þér
hættir til að sýna ekki
tilfinningarnar fyrr en á
herðir og þá er oftast
allt um seinan.
Mikið verður um að
vera þessa vikuna og
annríkið vill koma
hressilega niður á tauga-
kerfinu. Það liggur
ekkert á og um að gera
að njóta líðandi stundar,
því kemst þótt hægt
fari.
Á næstunni gerist
nokkuð sem þig hefur
ekki lengi dreymt um að
gæti hent. Þetta veldur
talsverðum breytingum
á einkamálunum en
láttu ekki fagurgala og
smjaður annarra rugla
þig í kollinum.
Gleðstu yfir góðu gengi
vina þinna því þú munt
njóta góðs af. Þú lendir
í samkvæmi um helgina
og er þér fyrir þestu að
fara þar að öllu með gát
því einhver fylgist mjög
náið með athöfnum
þínum.
Sporúdrckinn 24.okl. 2.4.iió\.
Þér hættir til að lifa I
eigin draumaheimi og
það gæti komið þér í
koll siðar meir. Undan-
farið hefur þú vanrækt
vini þína og ef sam-
bandið slitnar er það að
mestu þín eigin sök.
Hogmaúurinn 24.nó\. 21.úcs
Gamall draumur virðist
ætla að rætast á
óvæntan máta og til
þess að svo verði muntu
þurfa að leggja talsvert
á þig. Farðu varlega í
sambandi við fjármálin,
því þar er ekki allt sem
sýnist.
Slcingcilin 22. úcs. 20. jan.
Talaðu ekki svona
mikið, þvi töluð orð
verða aldrei aftur tekin.
íhugaðu vandlega hvað
þú segir, sérstaklega í
samskiptum við gamlan
vin, sem er með
viðkvæmara móti þessa
stundina.
Valnshcrinn 2l.jan. l'Áíchi.
Mundu að flas er ekki
til fagnaðar og ýmislegt
óvænt á eftir að gerast í
vikunni. Þér vex að visu
þor við alla erfiðleika en
það er óþarfi að gera sér
hlutina erfiðari en
nauðsynlegt er.
Kiskarnir 20.fchr. 20.mars
Þunglyndið sem
veturinn hefur gróður-
sett í brjósti þér virðist
þverra óðum og fram-
kvæmdagleðin gerir vart
við sig á nýjan leik.
Skemmtilegt fólk og
fjörug samkvæmi setja
svip sinn á tilveruna.
34 Víkan 6. tbl.