Vikan - 07.02.1980, Side 42
Framhaldssaga
Smáauglýsingar
BIAÐSINS
Þverholti11 sími 2 70 22
Opið til kl.1Ó í kvöld
bók í b/aðformi
fæstá næsta b/aðsö/ustað
þá væri skaðinn skeður og búið væri að
opna flóðgáttir almennings.
Vitandi það sem þau áttu í vændum
hafði Bill talað við systur Veronicu
Joseph, abbadísina i Mount Carmel
kirkjulega kvennaskólanum, daginn sem
þær tóku á móti ivy, og þær ætluðu að
undirbúa hana undir skriðuna sem kæmi
þegar málið væri orðið opinbert.
Scott Velie ávarpaði dóminn. „Þessi
kviðdómur er stéttinni að skapi, herra
dómari.”
„Gott,” sagði Langley dómari.
„Eiðtaka mun nú fara fram.”
Janice sá að Hoover leit upp. Hún sá
Hoover horfa á kviðdóminn, blíðlegt
útlit huldi stálvilja sem framfylgdi eigin-
girni sinni án sýnilegs áhuga á þeim
óbætanlega harmi sem hann olli þeim.
Janice vissi að þrátt fyrir traust Velies
og sjálfstraust Bills yrði þaðeinhliða þrái
Hoovers sem yrði yfirsterkari i lokin.
Á þessu dapurlega augnabliki vissi
hún að þau ynnu ekki málið.
Scott Velie opnaði málið I réttinum.
Aðalinnihaldið í athugasemdum hans
var að samkvæmt lögum væri ekki hægt
að verja ólöglegar aðferðir. Engar mild-
andi kringumstæður gætu sýknað í slíku
tilviki.
„Þetta er lagadómstóll,” sagði hann
hátíðlega við kviðdóminn. „Ekki kirkja
sem útbýtir fyrirgefningu guðs, heldur
lagadómstóll sem úthlutar manni
réttlæti!”
„Mér skildist af ávarpi þínu,” sagði
Bill við hádegisverðinn, „að þú sért
næstum viss um að þeir ætli að byggja
vörnina á trú Hoovers á endurholdgun.”
Þau voru á veitingahúsi stutt frá
réttinum. Þar voru dómarar og skjól-
stæðingar þeirra í yfirgnæfandi
meirihluta. Brice Mack, lögfræðingur
Hoovers, hafði alltaf frátekið borð
þarna.
Velie kinkaði kolli í áttina til þess.
„Sérðu fólkið þarna, sem er með Mack?
Það er allt upptekið við að leita að
vitnum sem sanna kenningu Hoovers
um endurholdgun. Þetta eru allt fylgis-
menn á launum. Og þetta er ekki allt
sem Hoover borgar fyrir. Þau eru með
maharisha á Waldorf hótelinu. Hann
heitir Gupta Pradesh og er frægur fyrir
að vera einn fremsti jógi Indlands. Þau
komu fljúgandi með hann alla leið frá
Kalkútta.
Svo er það einkalögregluþjónn að
nafni Brennigan. Hann hefur verið að
reyna að fiska eitthvað upp um mar-
traðir Ivy og hefur verið að flækjast fyrir
utan stofu Kaplans læknis.”
„Getur Mack komið með hann í
réttinn til að bera vitni?” spurði Janice.
„Auðvitað. En það þýðir ekki að
öllum spurningum hans verði svarað.”
„Hvað áttu við?” sagði Bill.
„Allt samband milli sjúklings og
læknis er einkamál i New York ríki og
má ekki birta nema i sérstökum til-
4Z Vikan 6. tbl.