Vikan - 30.10.1980, Blaðsíða 16
Jónas Kristjónsson skrifar fró Flórent
Anddyrifl á Contínontal
Ponte Vecchio. (Ljósm. KH)
er vifl óróasamasta hom Hórons, oiveg vifl
Balestri hefur nóg pláss vifl Arno.
(Ljóem. KH)
Þotta var hlutí útsýnis okkar úr herberginu ó Baglioni, 700 ára gflmul
kirkja. Til hœgri sést hiuti torgsins við járnbrautarstöflina. (Ljósm. KH)
Hótel í gömlum höllum
Greinarhöfundur á götunni
Þetla er allt I lagi, ég sé um mig
sjálfur, sagði ég borginmannlega, þegar
l'erðaskrifstofan tjáði mér. að ekki væri
hægt að útvega neitt af hótelunum á
óskalista mínum I Flórens. Þau voru öll
sögð fullbókuð.
Ég taldi mig kunna aðferðina. Að
morgni dags I Flórens klæddi ég mig
höfðinglega og lor I hringferð milli
hinna eftirsóttu hótela. Ég sagðist vilja
herbergi I nokkra daga. bað um að vera
settur á biðlista og sagðist koma altur
rétt fyrir hádegi.
Því miður, var sagt á öllum stöðum.
Hér er allt fullt. Og fari einhver óvænt.
erum við þegar með of langan biðlista.
Það tókst semsagt ekki að taka hótelin á
því bragði að heimsækja þau á þeim
tíma, þegar þau eru veikust fyrir.
Við hjónin vorum þvi á götunni og
sáum fram á að þurfa kannski að beita
nauðvörn númer tvö, sem gildir aðeins á
stórum hótelum. Hún er sú að koma
eftir miðnætti, rétta næturverðinum
10.000 lírur og segja honum að útvega
herbergi strax. Stóru hótelin liafa
nefnilega alltaf herbergi til vara.
Ein samfelld sýning
Ég áttaði mig ekki á. að við vorum á
óvenjulegum tima I Flórens. Borgin var
ein samfelld söguleg sýning. Alls staðar i
borginni var verið að minnast gullaldar
endurreisnartímans I borginni. þegar
Medici furstarnir voru voldugustu menn
Evrópu.
í gamla ráðhúsinu, Palazzo Vecchio.
sem byggt var fyrir nærri 700 árum. var
búiðað safna saman öllum upprunalegu
góbelin veggteppunum, sem fyrir löngu
voru komin á flæking út um heim.
Hátíðasalurinn var þakinn þessum
teppum.
Það var undarlegt að sjá þessi brott
fluttu teppi passa svo nákvæmlega I
salinn. að dyrnar féllu alveg inn I
innskot á teppunum. Þessir dagar i
Flórens voru eina tækifæri aldarinnar til
að sjá Palazzo Vecchio I upprunalegu
formi.
Allir heimsins áhugamenn um
menningarsögu voru einmitt staddir I
Flórens til að vera vitni að einstæðum
sýningum af þessu tagi. Það var þvi
engin furða, þótt erfitt væri að fá húsa-
skjól, ekki sist I gömlum. menningar-
sögulegum hótelum.
Sjálfsvirðing min læknaðist nokkuð.
þegar ég gat kennt þessu ástandi um. að
„Aðferð númer eitt" til útvegunar
skemmtilegra hótela hafði mistekist. En
ég gat þvi miður ekki búið sjálfur á þeim
hótelum, sem mig langaði til að segja
ykkur frá.
Útsýni yfir ána
Ég komst ekki á Berchelli, 43
herbergja hótel á bakka Arno fljóts.
steinsnar frá hinni gömlu Ponte Vecchio
brú frá 14. öld. Berchelli er gömul höll
frá 15. öld með mjög skemmtilegum
herbergjum, sem sum hver hafa ánægju-
legt útsýni yfir ána. Uppi á þaki er
notalegurgarður.
Á Berchelli kostaði tveggja manna
herbergi með baði um 25.000 krónur á
dag. Síminn er 21 15 30 og heimilis-
16 Vikan 44. tbl.