Vikan


Vikan - 30.10.1980, Qupperneq 16

Vikan - 30.10.1980, Qupperneq 16
Jónas Kristjónsson skrifar fró Flórent Anddyrifl á Contínontal Ponte Vecchio. (Ljósm. KH) er vifl óróasamasta hom Hórons, oiveg vifl Balestri hefur nóg pláss vifl Arno. (Ljóem. KH) Þotta var hlutí útsýnis okkar úr herberginu ó Baglioni, 700 ára gflmul kirkja. Til hœgri sést hiuti torgsins við járnbrautarstöflina. (Ljósm. KH) Hótel í gömlum höllum Greinarhöfundur á götunni Þetla er allt I lagi, ég sé um mig sjálfur, sagði ég borginmannlega, þegar l'erðaskrifstofan tjáði mér. að ekki væri hægt að útvega neitt af hótelunum á óskalista mínum I Flórens. Þau voru öll sögð fullbókuð. Ég taldi mig kunna aðferðina. Að morgni dags I Flórens klæddi ég mig höfðinglega og lor I hringferð milli hinna eftirsóttu hótela. Ég sagðist vilja herbergi I nokkra daga. bað um að vera settur á biðlista og sagðist koma altur rétt fyrir hádegi. Því miður, var sagt á öllum stöðum. Hér er allt fullt. Og fari einhver óvænt. erum við þegar með of langan biðlista. Það tókst semsagt ekki að taka hótelin á því bragði að heimsækja þau á þeim tíma, þegar þau eru veikust fyrir. Við hjónin vorum þvi á götunni og sáum fram á að þurfa kannski að beita nauðvörn númer tvö, sem gildir aðeins á stórum hótelum. Hún er sú að koma eftir miðnætti, rétta næturverðinum 10.000 lírur og segja honum að útvega herbergi strax. Stóru hótelin liafa nefnilega alltaf herbergi til vara. Ein samfelld sýning Ég áttaði mig ekki á. að við vorum á óvenjulegum tima I Flórens. Borgin var ein samfelld söguleg sýning. Alls staðar i borginni var verið að minnast gullaldar endurreisnartímans I borginni. þegar Medici furstarnir voru voldugustu menn Evrópu. í gamla ráðhúsinu, Palazzo Vecchio. sem byggt var fyrir nærri 700 árum. var búiðað safna saman öllum upprunalegu góbelin veggteppunum, sem fyrir löngu voru komin á flæking út um heim. Hátíðasalurinn var þakinn þessum teppum. Það var undarlegt að sjá þessi brott fluttu teppi passa svo nákvæmlega I salinn. að dyrnar féllu alveg inn I innskot á teppunum. Þessir dagar i Flórens voru eina tækifæri aldarinnar til að sjá Palazzo Vecchio I upprunalegu formi. Allir heimsins áhugamenn um menningarsögu voru einmitt staddir I Flórens til að vera vitni að einstæðum sýningum af þessu tagi. Það var þvi engin furða, þótt erfitt væri að fá húsa- skjól, ekki sist I gömlum. menningar- sögulegum hótelum. Sjálfsvirðing min læknaðist nokkuð. þegar ég gat kennt þessu ástandi um. að „Aðferð númer eitt" til útvegunar skemmtilegra hótela hafði mistekist. En ég gat þvi miður ekki búið sjálfur á þeim hótelum, sem mig langaði til að segja ykkur frá. Útsýni yfir ána Ég komst ekki á Berchelli, 43 herbergja hótel á bakka Arno fljóts. steinsnar frá hinni gömlu Ponte Vecchio brú frá 14. öld. Berchelli er gömul höll frá 15. öld með mjög skemmtilegum herbergjum, sem sum hver hafa ánægju- legt útsýni yfir ána. Uppi á þaki er notalegurgarður. Á Berchelli kostaði tveggja manna herbergi með baði um 25.000 krónur á dag. Síminn er 21 15 30 og heimilis- 16 Vikan 44. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.