Vikan - 30.10.1980, Blaðsíða 40
Framhaldssaga
ÞJÓÐEYÐING
Þegar maður er sannfærður
um réttmæti gerða sinna getur mað-
ur ekki látið staðar numið aðeins
vegna þess að verkið sé manni ógeðfellt
eða aðrir misskilji (rað. Þar er hið sanna
hugrekki fólgið: að vinna verk sem oft
eru ógeðsleg og virðast grimmdarleg en
eru nauðsynleg vegna glæsilegs tak
marks og langtímaáætlunar.
„Það sem við gerum er siðferðilega
rétt," sagði ég, „og sögulega nauðsyn
legt.”
Hann gekk aftur að mér og ég hélt að
hann myndi drepa mig I þetta sinn.
En hann nam skyndilega staðar og
hvislaði: „Ég skil þetta of vel. Ég skil
ykkur alltof vel. Komdu þér út.”
Reiði hans og órökvísi ullu mér kviða.
En svo framarlega sem hann starfar
fyrir Hoess, gerir vegi, endurskipuleggur
verksmiðjur, kemur hann að gagni. Auk
þess virðist hann halda svikaraeðli sínu
leyndu fyrir öðrum en sjálfum sér — og
mér.
Frásögn Rúdís
Faðir minn komst að dauða móður
minnar daginn eftir að hún var send I
gasklefann. Um kvöldið, þegar þeir
Lowy höfðu lokið starfi sínu við veginn,
fóru þeir I kvennahluta búðanna með
falsaða passa upp á vasann.
Þeir komu að tómum skála. Kven-
kapó, einn þeirra sem fylgdu móður
minni áleiðis í dauðann, sagði þeim að
allar konur á þessu svæði hefðu verið
sendar í klefana.
Mennirnir buguðust og grétu. Þeir
gátu fátt sagt hvor við annan, engin
huggunarorð.
Einhver sagði mér að faðir minn hefði
farið inn og setið drykklanga stund á
koju móður minnar. Hann leitaði i tösku
hennar, snerti fátæklegar eigurnar og
tók þaðan möppu með nótnablöðum —
gömlu, gulnuðu og snjáðu nótnaheftin
hennar heiman að frá okkur i Groning-
strasse. Mozart, Beethoven, Schubert,
Vivaldi.
„Djöfullinn hirði þá,” sagði Lowy
grátandi. „Hvers vegna neitar aldrei
neinn þeim um neitt? Hvers vegna kasta
bandamenn ekki sprengjum hér á járn-
brautalínurnar, á ofnana og gasklef
ana?”
Faðir minn átti hvorki svör eða hugg-
un handa honum.
Sunnudaginn 18. april 1943 komust
Baráttusamtök gyðinga, þar sem Móses
frændi minn, sem eilt sinn var hlédræg-
ur lyfsali, var nú orðinn þýðingarmikill
meðlimur, að þvi að Þjóðverjar ætluðu
að gera árás með miklu liði. Árásin átti
að hefjast klukkan tvö næstu nótt.
Anelevitz kallaði undirforingja sina á
sinn fund. Vopnum var úthlutað. Menn
voru sendir á lykilstaði i gettóinu. Þetta
yrði barátta upp á líf og dauða.
Vopnaðir þátttakendur, en Móses
frændi minn var einn þeirra, voru u.þ.b.
fimm hundruð.
Það sem þau ekki vissu var að von
Stroop, SS-hershöfðinginn sem var yfir
aðgerðunum, hafði sjö þúsund manns til
taks til að drepa þau — Waffen SS,
venjulegar sveitir hermanna, þar með
talið stórskotalið, skriðdrekar og flug-
vélar, tvær sveitir þýskrar lögreglu,
pólsk lögreglusveit, valdir SD-menn og
sveit úkrainskra, lettneskra og lithá-
enskra aðstoðarmanna.
Vopnuðu gyðingarnir voru sendir í
litlum hópum á þrjú þýðingarmestu
svæðin í gettóinu — miðsvæðis nálægt
Nalewki- og Zemenhof-götum og I verk-
smiðjuhverfið skammt frá Leszno-götu.
1 ibúð hátt í húsi sátu Móses frændi
og Zalman við glugga og biðu. Það var
dimmt í herberginu en þó ótrúlegt megi
virðas't var fjölskyldan sem þarna bjó að
búa sig undir páskahald. Kona var að
setja kertastjaka á borðið, matzohs,
haggadah.
1 hóp Mósesar frænda voru auk Zal-
mans, sem sat hjá honum við gluggann,
Eva Lubin og Aaron. Aaron svaf baka
til i herberginu ofan á skotfærakassa. Á
þeim svæðum sem ég nefndi áðan voru
ámóta hópar vopnaðra gyðinga. Göt-
urnar voru mannauðar.
Zalman geispaði. „Páskar, Weiss. 19.
apríl 1943.”
„Ég er hræddur um að við fáum
engan seder,” sagði Móses frændi.
„Við hefðum getað verið við einn í
gærkvöldi. SS bauð okkur. Heyrðirðu
ekki I bílnum þeirra með kallkerfið þegar
hann ók hér um?”
„O, jú, jú," sagði Móses frændi. „Fór
einhver?”
„Ekki einu sinni Elia spámaður.”
„En leiðinlegt. Ég hefði kannski farið
ef ég hefði ekki haft þetta verk að vinna.
Veistu, Zalman, að þegar ég var krakki
fékk ég aldrei að spyrja spurninganna
fjögurra. Kannski hefði von Stroop hers-
höfðingi veitt mér þann heiður i gær
kvöldi.”
„Ef til vill. Áður en hann hefði skotið
þig”
Eva man eftir því að frændi minn fór
allt í einu að rifja upp minningar um
bróður sinn og mágkonu, foreldra mina.
Hann átti sér enga fjölskyldu lengur, var
piparsveinn. Hann saknaði þeirra, vildi
fá þau.
„Já,” sagði Zalman. „Við gætum
þurft á lækni að halda núna.”
„Til að hjúkra þeim sáru?”
Zalman kinkaði kolli.
„Ég hallast helst að því, að skjóta þá
ef þeim er ekki viðbjargandi. Við vitum
við hverja er að eiga.”
Þeir ræddu nýjar sögur sem voru á
kreiki — sveit gyðingalögreglu, sem
átti að taka þátt i árásinni, var tekin af
lifi hjá skotsveit; Himmler var kominn
til Varsjár til að sjá endalok gettósins.
„Ég vildi að við værum ekki svona
fá,” sagði Móses.
„Þetta fólk,” sagði Zalman með nokk-
urri samúð, „þetta fólk, fólkið okkar, var
ekki þjálfað til að fara með byssur.”
„Var ég þjálfaður til þess?”
Báðir mennirnir rýndu út á dimma
götuna. Það héngu sionistafánar utan á
mörgum húsum — bláhvita stjarnan,
bláu rendurnar. Þar voru líka pólskir
fánar og áskoranir til Pólverja um að
taka þátt í baráttunni. Vonin um að þeir
gerðu það lifði til hinstu stundar.
Móses tók til máls. „Á morgun er af-
mælisdagur Hitlers. SS lofaði að við
yrðum afmælisgjöfin hans. Varsjá
verður hreinsuð til að halda upp á af-
mæli foringjans.”
" „Kerti á kökuna hans,” sagði Eva.
Móses andvarpaði. „Ég hélt ekki að
ég myndi nokkurn tima sætta mig við að
deyja. En ég er sáttur. Anelevitz hefur
kennt mér ýmislegt. Heimurinn fær að
vita að við gengum ekki öll burt þegj-
andi og hljóðalaust.”
Það var kveikt í bakherberginu.
„Slökktu ljósið,” skipaði Eva kon-
unni.
„Ég er að taka til fyrir páskana.”
„Taktu til I myrkri,” sagði Eva.
„Páskar,” sagði Zalman. „Þeir fara
enn að siðum. Ég er ekki að gagnrýna
það, Weiss. Ég er bara orðlaus. Kannski
þyrftum við færri hefðir, færri bænir —
og fleiri byssur.v
Gamall maður var að biðjast fyrir i
bakherberginu. Hann var með bænasjal,
kollhúfu og opna bænabók. Hann
beygði sig og sveigði i upphafinni sælu.
„Vertu umburðarlyndur, Zalman.
Þannig var ævi þeirra. Þau þekktu ekki
annað og þetta hélt þeim lengi saman.
Kannski tengir það okkur þegar þessu
helviti er lokið.”
40 Vlkan 44. tbl.