Vikan - 30.10.1980, Síða 43
Róttamann aru þvtngaðir tH þaaa
afl yfirgafa Þýakaland og aru fluttir
nauflugir til PflHanda i upphafi
atyjaldarinnar.
Skotfærin voru þrotin og Móses,
Zalman og þau hin hölluðu sér upp að
rökum veggjum byrgisins.
„Hve margir dagar, Zalman?"
„Við byrjuðum 19. april. Nú er 9.
mai. Tuttugu dagar og þeir eru ekki enn
búniraðsigraokkur.”
Frændi minn sagði: „Við gáfum
Hitler aldrei afmælisgjöfina hans.”
„Víst gerðum við það. En ekki þá sem
hann vildi fá.”
Anelevitz tók nýprentað blaðið úr
blekugum höndum Evu Lubin og tók að
lesa:
„Það er verið að brenna þúsundir
kvenna okkar og barna lifandi inni í hús-
unum. Logandi fólk stekkur líkl og
kyndlar út um gluggana. En við berj-
umst áfram. Þetta er barátta fyrir ykkar
frelsi og okkar. Við munum hefna fyrir
Auschwitz, Treblinka, Belzec og Maida-
nek. Lengi lifi frelsið. Dauða fyrir morð-
óða og glæphneigða innrásarmennina.
Lengi lifi baráttan upp á líf og dauða
gegn þýsku villimönnunum.”
Ungur gettóskæruliði í búningi þýsks
fanga kom til þeirra. Anelevitz rétti
honum dreifiritið. „Vittu hvort þú
kemst i gegn með þetta. Gangi þér vel.”
Eva leit döpur á prentvélina. „Síðasti
Pappirinn okkar,” sagði hún.
En SS hafði eftirlit með svæðinu. Það
var fylgst með öllum hugsanlegum út-
göngum úr byrgjunum, öllum ræsum,
kjallaradyrum, og útskotum.
Ungi maðurinn með dreifiritið kom út
um kjallaradyr þaktar möl og tveir SS-
menn skutu hann til bana.
Hinbiðuinniíbyrginu.
„Ég hef aldrei verið sérlega hugaður
maður,” sagði Móses frændi.
„Þá ekki ég,” bætti Zalman við.
Eva brosti til þeirra. „Þið eruð nógu
hugrakkir."
„En ég er búinn að læra nokkuð,"
sagði Móses. „Við eigum öll eftir að
deyja, svo hví ekki að gera það þess
virði?”
Meðan þau röbbuðu þannig saman i
hálfum hljóðum, biðu og lögðu við
hlustir eftir skothríðinni, sem við og við
heyrðist frá götunni fyrir ofan þau, koni
Aaron lafmóður og hlaupandi til þeirra.
Hann hafði fylgt unga manninum í
nasistabúningnum til útgangsins. „Þeir
skutu hann,” sagði Aaron. „Þeir vita
það.” 4
Nú heyrðu þau raddir fyrir ofan sig,
drunurnar i herbíl, skipanir kallaðar.
Skyndilega tók beiskur og kæfandi
þefur að berast inn í byrgið.
„Einhvers konar gas,” sagði Móses.
„Allir eiga að hylja andlit sín. . . notið
rakan klút.”
Eva minnist mæðra sem hnipruðu sig
saman með börn sín. Nú var uppi grátur
og gnistran tanna. Gamall maður tók að
biðjast fyrir.
Anelevitz stóð á fætur. „Þessu er
lokið,” sagði hann rólega.
Zalman kom upp að honum.
„Pillurnar?”
„Þær eru ekki nægilega margar fyrir
alla.”
„Kannski vilja einhverjir fara, taka
áhættuna aðfara út.”
Anelevitz kinkaði kolli. „Þeim er það
frjálst.”
Fólk hóstaði. Auk þess skullu
sprengjuskot á þykkum veggjunum yfir
byrginu. Langt og mjótt herbergið
titraði. Endalokin voru í nánd.
Móses frændi gekk að hópi fólks. „Ef
einhver vill fara ... þá skal ég fylgja
honum.”
„Og ég skal fylgja sumum,” sagði Eva
Lubin.
Aaron og nokkrir aðrir vildu fara með
Mósesaðeinni undankomuleiðinni. Eva
ætlaði að leita að annarri — gömlu
holræsi sem hætt var að nota og lá út
fyrir vegginn.
Móses faðmaði Zalman og Anelevitz.
„Verið þið sælir, vinir mínir.”
Zalman hristi hönd frænda míns.
„Vertu sæll, Weiss. Við kynntumsl
eiginlega ekki sérlega vel."
„Næst bætum við úr því, Zalman.”
„Auðvitað.”
Einhver byrjaði að syngja gettó-lögin.
Svo sungu þau Hatikvah," sionista-
sálminn.
Röð myndaðist fyrir aftan Móses.
önnur fyrir aftan Evu.
„Ég ber rétta nafnið." sagði frændi
minn. „en ég er hræddur um að ég leiði
ykkur ekki inn i fyrirheitna landið.
Haldið röðina. Aaron, vertu aftastur.
Göngum fram virðulega og hugrökk.”
Hann gekk af stað. Eva hélt i aðra átt.
SS beið eftir þeim. Þið hafið ef til vill
séð þá frægu Ijósmynd — tekna og
óvopnaða gyðinga sem koma upp úr holu
i steinahrúgu og glottaudi hermennina
sem fylgjast með þeim og miða á þá riffl-
um sinum.
í byrginu undir þeim kusu Anelevitz
og margir hinna að svipta sig lifi, líkt og
hetjurnar I Masada.
„Ykkur verður ekkert gert,” sagði
þýskur liðþjálfi. „Það verður aðeins
leitað á ykkur og síðan fer fram
skráning. Snúið ykkur að veggnum og n
lyftiðhöndum hátt.”
Þau sneru sér við, Móses, Aaron, allir
vinir þeirra í andspyrnuhreyfingunni.
„Svona börn," sagði Móses frændi.
„Höldumst öll i hendur og biðjumst
fyrir. Vill einhver hefja bænina? Ég er
svolftið farinn að ryðga.”
Hannyrðaverslun
Margrétar S.
Sigurjónsdóttur
Skólabraut 37. simi 93-2076
Akranesi.
Hannyrðir, garn> stykkjavara,
alls konar fatnaður,
gallabuxur, jakkar
og margt margt fleira.
Leitið ekki iangt yfir skammt.
44. tbl. Vlkan 43