Vikan - 15.04.1982, Blaðsíða 15
Vitað er að mótun foreldra hefur áhrif
á hvernig maka börnin velja seinna
meir. Karlmaður sem hefur átt ráðríka
móður sem hann hefur verið mjög háður
er til dæmis líklegri til að leita sér að
konu sem getur tekið ábyrgð en konu
sem þyrfti að treysta á hann í einu
og öllu. Það er hins vegar ekki einungis
val á maka sem tengist fyrirmyndum í
bernsku heldur einnig við hverju maður
býst í sambúð. Kona sem hefur átt
föður sem brást vonum hennar óskar
gjarnan eftir að eignast eiginmann sem
er andstæða föður. Hún býst oft við að
eiginmaðurinn eigi að uppfylla það sem
hún fór á mis við.
Val á maka er flókið fyrirbrigði og
valda margir þættir því að einmitt þessi
en ekki hinn fellur betur i geð. En eitt er
víst, að upplifun á sambandi foreldra í
bernsku ræður þar einhverju um. Það er
margreynt úr fjölskyldumeðferð þegar
hjón reyna að skilja og gera upp sitt
samband.
Fjölskyldan tekur
ákveðinni þróun
Fyrsta stigið hjá nýstofnaðri fjöl-
skyldu er að losa um tengslin við upp-
runafjölskylduna og reyna að fá til-
Fjölskyldumál
finningalegum þörfum fullnægt hjá
maka. Eftir að sambúð hefurr hafist
þurfa einstaklingarnir að læra hvernig á
að taka tillit hvor til annars á mörgum
sviðum þannig að sambúðin verði full-
nægjandi fyrir báða.
Annað stig sambúðar einkennist
gjarnan af því að barn fæðist í fjöl-
skylduna og fólk verður að reyna sig í
nýju hlutverki, foreldrahlutverkinu.
Með tilkomu barns er algengt að sam-
bandið milli hjóna breytist. Samband
getur versnað ef mikið hefur gengið á
áður en barnið fæddist eða ef sambúðin
hefur staðið stutt yfir.
Þriðja stig í þróun fjölskyldu er
gjarnan timabilið þegar foreldrar hætta
að vera foreldrar lítilla barna og verða
foreldrar stórra barna — unglinga. Hér
reynir á hvort fjölskyldan getur hjálpað
börnunum til þess að verða sjálfstæðir
einstaklingar. Þetta tímabil er oft erfið-
leikatímabil í fjölskyldum.
Fjórða stig fjölskyldunnar einkennist
af því þegar börnin flytja endanlega að
heiman. Hér reynir á hvort hjónin geta
sleppt börnunum og byggt sjálf sig upp,
lifað lífinu að nýju sem sjálfstæðir ein-
staklingar. Þetta reynist mörgum erfitt
— sérstaklega konum sem hafa einungis
helgað sig börnum og heimili.
Fimmta stig í fjölskyldu einkennist af
því að líkamlegir og andlegir kraftar
þverra. Þau verkefni sem áður var tekist
á við minnka. Það reynist oft erfitt að
verða gamall en þá skiptir máli i ellinni
hvort viðkomandi einstaklingi finnst að
lífið hafi verið ánægjulegt og tengslin
við aðra góð — sérstaklega fjölskyldu-
tengslin. , _
L5
L~>v
Spennum beltin
ALLTAF
ekki stundum
iiar0*" |—'
SIÐU
inm
Árs ábyrgð
Fullkomin
viðgerða-
og varahluta
þjónusta
ir oþnari fyrir |
stað þess að ^
Styður þú á
ilýjum bílnum,
opnast sjálfkrafa og
kveikir Ijós. Þú ekur inn, styður
á hnappinn og hurðin lokast.
í tækinu er sérstakur rafeinda-
minnislykill þannig að ekkert
annað tæki getur opnað þinn
skúr — eða þína vörugeymslu.
Kynnist þessari tækni, sláið á
þráðinn — við erum í síma
86544.
meimi
heitir
Fyrir fjölskylduna
fyrirtæki
bílageymslur
w FRA U.S.A.
FYRIRLIGGJANDI: Bílskúrshurðarjárn. Einangraðar a
\\
bílskúrshuröir.
15 tbl. Vikan lf