Vikan - 15.04.1982, Blaðsíða 43
og almennilegt hjól í staðinn
fyrir þetta járnarusl sem ég
skrölti um á þegar ég er að
rukka. Það væri sko gott.
Virðingarfyllst, Sveinn Áki.
Adamsen, hinn ungi forstjóri,
krumpaði alla seðlana saman í
einu og fleygði í bréfakörfuna.
Af þeim fimm hundruð
hugmyndum, sem komu í
kassann á næstu vikum, var
aðeins ein sem hann fór eftir og
það var hér sem unga, fallega
skrifstofustúlkan, hún Jytta
Lind, kom inn í myndina. Hún
hafði lengi velt þeirri hugmynd
fyrir sér að taka þátt í flóðinu af
hugmyndaseðlum. Hugmynd-
irnar voru meira eða minna af
góðum hvötum framsetí-ar og
henni fannst að hennar
hugmynd væri frískleg og
frábær, einmitt hennar hug-
mynd. Hún sá ekki fram á
Þýö.: Anna
Stjörnuspá
annað en Adamsen myndi fara
eftir henni.
Svo hún gerði alvöru úr að
skrifa og vélritaði hugmyndina
með mikilli natni á pappírs-
snepil, braut saman, setti í eitt af
hvítu umslögum fyrirtækisins og
setti í tillögukassann Það var
reyndar svo, — þegar Adamsen,
hinn ungi forstjóri, tæmdi
kassann næsta dag fylgdi hann
þvi eftir að kalla hana inn tii sín.
— Fáðu þér sæti, sagði hann
vingjarnlega og fröken Jytta
settist.
Adamsen, hinn ungi forstjóri,
sveiflaði blaðinu, sem hugmynd
Jyttu var vélrituð á, eins og til
að kæla sig.
— Það ert þú sem hefur
komið með þessa hugmynd, er
það ekki? spurði hann.
Fröken Jytta kinkaði kolli.
— Hvenær fékkstu þessa
hugmynd?
— Ja, ég hef lengið gengið
með hana í kollinum en ég trúði
því satt að segja ekki að þú læsir
seðlana. En svo komst ég að því
að þú gerðir það því Sveinn Áki
var inni hjá þér i fyrradag og
fékk að heyra það út af því hvað
hann hafði sett í kassann! En
hann fékk samt sem áður nýtt
hjól! Svo mér fannst að ég ætti
þá að láta mína hugmynd
ilakka.
Adamsen forstjóri kinkaði
kolli áhugasamur.
— Og svo ég segi það nú
umbúðalaust, fröken Lind, þá
finnst mér að hún sé mjög
aðgengileg. Mér finnst verst að
hafa ekki fengið hana sjálfur
fyrir löngu. Ég er ákveðinn í að
fara að ráðum þínum. Og það
nú þegar!
Svo tók Adamsen forstjóri
Jyttu í fangið, kyssti hana og
bað hana um að verða konan
llnilurinn 2l.m.irs .20. ;«|iril
Missætti á heimilinu fer
mjög í taugarnar á þér.
Þér er i lófa lagið að
bæta ástandið. Þú hefur
fjarlægst fjölskylduna
undanfarið svo nú er
tími til að athuga málið
gaumgæfilega.
kr. íihinn 22.júní J.Vjulí
Þú færð símtal sem
kollvarpar öllum
áformum þínum. Fjöl-
skylda þin sýnir mikið
umburðarlyndi og þú
átt að kunna að meta
það. lnnan tíðar verður
þú að einbeita þér að
ákveðnu verkefni sem
tekur hug þinn allan.
N.iuiið 21.tipríI 2l.mai
Þú hefur lengi beðið
eftir ákveðnum
breytingum á högum
þínum. Þú neyðist til að
sætta þig við nýjar
aðstæður. Þér hættir til
að festa þig I ákveðnum
hugmyndum. Reyndu að
sýna umburðarlyndi.
I.jonió 24.jiili 24. iiíii»l
Varastu óhóf I mat
og drykk á næstunni.
Þú ert ekki eins hress og
þú hefur verið undan-
farið. Þú færð umbun
fyrir vel unnið verk á
næstunni og það mun
gleðja þig mjög.
Ttihurarnir 22.mai 2l. júni
Það er létt yfir þér þessa
dagana. Þú hefur fengið
nýtt verkefni
i hendurnar, sem þér
finnst mjög áhuga-
vekjandi. Þú átt von á
heimboði þar sem þú
verður hrókur alls
fagnaðar. Eyddu tima
með gömlum vini.
Vikan verður notaleg,
ekki mikið um að vera
en nóg samt. Þú hefur
nú tækifæri til að vinna
verk sem lengi hafa
setið á hakanum. Gættu
ýtrustu kurteisi við
mann sem þér er I nöp
við. Það er óþarfi að
gefa færi á sér.
yJgFa* ■'Jra
ér
\oiíin 24.>l'|}(. 2.Vnkl. Sponlilrckinn 24.okl. 2,\.uó«. Rogmaúurinn 24.nói. 2l.dcs
Alls kyns freistingar
hlaðast að þér: ef þú
byrjar á því að láta
undan er hætt við að þú
standist enga þeirra.
Fjárhagur þinn leyfir
ekki slíka vitleysu svo
það er best að þú ihugir
þetta mál gaumgæfilega.
Þú átt I erfiðleikum með
að slaka á og ná þér
niður eftir erfiðan tima.
Þú þreytir þína nánustu
mikið með hamagangi
þinum og írafári. Lífið
er alltof skemmtilegt til
að eyða því I svona
stress.
Nýr vinur á hug þinn
allan. Þú ættir ekki að
treysta ókunnugu fólki
um of. Gamlir vinir,
sem löngu hafa sannað
velvild sína í þinn garð,
eiga annað skilið en að
vera kastað út í horn
eins og blautri tusku.
Umtal um náinn
fjölskyldumeðlim fær
mjög á þig. Þá mátt
ekki taka svona slúður
of alvarlega. Undirrót
þess er öfundsýki sem á
sér enga stoð I raun-
veruleikanum. Gættu
þess að missa ekki
stjórn á skapi þínu.
Talnshcrinn 2l.jan. I*>.fchr.
Þú hefur verið mjög
upptekinn af ákveðnu
áhugamáli. Fjölskylda
þín er langþreytt á þvi
að sjá þig aldrei nema á
hlaupum. Þú sinnir ekki
henni og ekki vinnunni.
Flugsaðu málið og
bættu um betur.
I iskarnir 20. fchr. 20.mars
Þú færð erfitt hlutverk
á næstunni og það
reynir mjög á þolrifin.
Þér er treyst til þess að
þegja yfir leyndarmáli
og þú verður að
standast þá raun.
Óvænt ferðalag færir
þér ógleymanlegar
ánægjustundir.
X5> tbl. Vikan 43