Vikan


Vikan - 15.04.1982, Qupperneq 41

Vikan - 15.04.1982, Qupperneq 41
Framhaldssaga KÓRÓNAN Hann horfði tortrygginn á Parkin- son. — Þetta er allt í lagi, Ron, sagði Martin. — Parkinson og Lisbeth vinna með okkur núna. Það var best þanntg. — Já. einmitt, sagði Ron þurrlega. Svo sneri hann sér beint að Martin og lét sem Parkinson væri ekki til. — Hvernig list þér til dæmis á orðið „DUNIl”? Gæti ekki verið það að ræða? — DUNII? Dunini — mans? sagði Parkinson samstundis. Ron lét sem hann heyrði ekki til hans. Hann beiðeftir að heyra álit Martins. Annika kíkti yfir öxlina á Martin. — Jú, gæti ekki þetta verið hluti af D? — Vissulega, en það gæti verið hluti af svo mörgu öðru, sagði Martin. — Auðvitað gætir þú haft á réttu að standa, Ron, og ef mér leyfist líka að vera vitur eftir á, þá verð ég að viður- kenna að mér hafði dottið þetta orð i hug. En „mans”? Ég sá ekkert vit í því. — Þá er eftir ,,.EN..”, sagði Annika. — Hvað færðu út úr þvi, Ron? — Eftir að hafa grannskoðað það, sem eftir er af máðu táknunum, giska ég helst á QENNU, sagði Ron hægt. — „QENNU DUNU”? sagði Martin hugsandi. — Chiunn duini á fornírsku. Mannshöfuð? „Við höfum falið kórón- una og sverðið undir mannshöfðinu á....” Nei, þetta er geðveikislegt! Höfðí hvers? Cadalláns? Nei, Ron. nú erum viðá villigötum. Annika var niðursokkin i athugun á steininum sjálfum. Hún sat á hækjurn sér fyrir framan hann en gætti þess vel að skemma ekki blómin sem hún hafði gróðursett i minningu Feornins. — Nú þegar ég hef heyrt skýringu Rons finnst mér ekkert annað konia til greina, sagði hún. — Auðvitaðekki, sagði Jörgen. — Þú ert greinilega undir hans áhrifavaldi. Martin kraup við hliðina á Anniku.— Lausnin er alls ekki heimskuleg, Ron, hún virðist raunar eiga vel við hér. Það er bara þetta fáránlega „höfuð". Annika þreif allt i einu i handlegginn á honum svo að minnstu munaði að þau misstu bæði jafnvægið. Þau gripu unt steininn til að rétta sig af. — Hvað er að þér? spurði Martin. Annika starði fram fyrir sig. Hún minntist dagsins sem þau komu til Steinheia. Hún sá Martin fyrir sér þar sem hann stóð og hallaði sér upp að steini og horfði út á hafið. — Manstu ekki? Uppi á klettasyllunni beint fyrir ofan húsið? Þar er steinn sem litur út eins og mannshöfuð. Já, alveg rétt! hrópaði Tone upp yfir sig. Martin var alveg ringlaður. — Ég man ekki... — Nei, vegna þess að þú stóðst og hallaðir þér upp að honum, sagði Jörgen. — Annika hefur á réttu að standa. — Parkinson, sagði Martin og sneri sér að kennara sínum. — Nú átt þú næsta leik. Hvað er klettasylla á forn- irsku? Parkinson fór hjá sér. Hann leitaði ör væntingarfullt i heilabúinu. — Ja, það eru náttúrlega orð yfir klett eða berg eða... — Nei, klettasylla! Ég sagði kletta sylla! Getur enginn hjálpað mér? Annika? — Nei, ég hef ekki orðið. Smám saman rofaði til í huga Martins. — „Tsleib”? - Einmitt! sagði Parkinson. — Ég var kominn með það fram á varirnar. — Hvað getur það þá verið á gamla ogammálinu? Við verðum að þýða aftur á bak núna, skiljið þið. t>etta lítur vel út, sagði Jörgen. sem horl'ði á blaðið í höndum Martins — Þarna höfum við L og B, og livað var það sem þú sagðir — tsleib'! — það hefur báða þessa stafi þó að þeir séu kannski ekki á réttum stöðum. — Nei! sagði Martin og réð sér varla. — Nei, vitið þið nú bara hvað! Ég held við höfum orðið. Hvernig er það, Parkinson, ætti ekki tsleib að vera eitt- hvað nálægt SLEBE á þessu forna máli? Parkinson kinkaði spekingslega kolli. — Ef við göngum út frá að táknin hafi.... Jörgen flýtti sér að koma i veg fyrir fyrirlestur sem enginn hafði áhuga á: — Við trúum þvi sein Martin segir. Það sakar að minnsta kosti ekki að lita á steininn þann arna. Annika þaut á fætur. — Komið þið öll, nú skulum viðsjá! Þegar þau komu út úr trjálundinum benti hún áköf upp á klettasylluna beint upp af húsinu. — Sjáið þið þarna uppi! kkur þá eru þad vorverkin í gardinum verkfærin einnig mikið úrvai gróðurhúsa rrrfffrt 'BYGGiNGflUQRURj Tryggvn Haoneseooar SlOUMÚLA 37-SlMAR 83290- 83360 15. tbl. Vikan 41
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.