Vikan - 15.04.1982, Síða 44
Texti: Jón Ásgeir
Vonandi fer ekki fyrir neinum eins og
fyrir Vestur Þjóðverjanum Giinther
Ruschenbeck. Eftir að hafa mænu-
skaddast þannig að hann var lamaður lá
hann á spænsku sjúkrahúsi i nær hálfan
mánuð áður en systur hans tókst að
koma honum á sérhæft sjúkrahús í
Vestur Þýskalandi. Gúnther lést, —
ekki vegna slyssins heldur vegna ófull-
nægjandi meðferðar og óþarfa tafa við
heirnflutninginn. „Hefðum við fengið
hann til meðferðar fyrr hefðum við
bjargað honum,” segja vestur þýsku
læknarnir í Karlsruhe-sjúkrahúsinu.
Hvað skal gera?
íslendingurinn, sem lendir í slysi eða
veikist erlendis, hvað verður um hann? í
fyrsta lagi verður hann að leggja út fyrir
öllum kostnaðinum sjálfur ef hann er
staddur utan íslands og annarra Norður-
landa. Þegar heim er komið getur sá,
sem lent hefur í þess háttar vandræðum
erlendis, leitað eftir endurgreiðslum á
útlögðum sjúkrakostnaði. Um þá hlið
verður nánar fjallað síðar í þessari grein.
1 öðru lagi verða menn að vona að
þeir meiðist ekki né sýkist alvarlega og
að þeir séu heppnir með heilbrigðis-
þjónustuna á staðnum. Vestur-
Þjóðverjinn Gúnther, sem við höfum
minnst á, gat enga björg sér veitt sjálfur,
hann lá hreyfingarlaus á sjúkrahúsinu á
nteðan systir hans barðist við skrif-
finnskuna heima fyrir og á Spáni.
Heppnari var vestur-þýsk stúlka sem
lenti í mótorhjólaslysi á Ibiza. Vini
hennar lókst að koma henni til heima-
landsins fjórum dögum eftir slysið. Á
sjúkrahúsi i Túbingen i Vestur-Þýska-
landi kom í Ijós að i djúpu sári á læri
stúlkunnar var ennþá drulla frá slys-
staðnum. Spænsku læknunum hafði
einnig yfirsést sýking í vefinum við
mjaðmarliðinn sem hafði brotnað í
slysinu. Afleiðing sýkingarinnar, sem
smitaði út í kviðarholið, var alvarleg
fyrir vestur-þýsku stúlkuna, hún var sex
vikur i lífshættu og alls fimm mánuði á
sjúkrahúsi.
Góð og slæm
hcilbrigðisþjónusta
Heppin var hún að komast heim, til
að njóta góðrar umönnunar. Heil-
brigðisþjónustan í sólarlöndum er nefni-
lega afskaplega misjöfn. í ntörgum
löndum hafa á undanförnum tuttugu
árum risið miklar ferðamannamið-
stöðvar en ekki að sama skapi heilsu-
gæslumiðstöðvar. Þegar Spánn, með 35
milljónir íbúa, tekur við 38 milljónum
sumargesta liggur á stundum við að heil-
brigðisþjónustan á ferðamanna-
stöðunum hrynji eins og spilaborg.
Sjúkrahúsin yfirfyllast, sjúklingar verða
að liggja á göngunum, læknar eru
störfum ofurhlaðnir þannig að þeim
verða á mistök sem myndu sæta mála
ferlum í heimalandi sjúklingsins.
Mörg hundruð
íslcndinga lcita til
lækna crlcndis á
sumri hvcrju vcgna
sjúkdóma cða slysa
sem þcir hafa lcnt í.
Fróðir mcnn telja að
allt að fimm próscnt
allra scm ferðast
crlcndis þurfi að lcita
læknishjálpar. Og það
cr alls ckki lcttur
lcikur.
44 Vikan 1$. tbl.