Vikan


Vikan - 22.04.1982, Blaðsíða 3

Vikan - 22.04.1982, Blaðsíða 3
Faðir nokkur var að gefa sextán ára syni sínum hollráð: ,,Mundu það, sonur sæll, að halda þig frá börunum. í hvert sinn sem þú ferð á vínveitingastað er djöfullinn I för með þér.” „Hann verður þá að borga fyrir sig sjálfur þvi éger blankur.” ★ Maðurinn minn strokaði út öll hjóna- bandsvandræöi okkar með því að segja eitt einasta orð: Skilnaður! ★ Ég held að sparimerkjagiftingar geti verði stórvarasamar. Þær geta endað með hjónabandi. ★ Þegar litla dðttir mín gifti sig missti ég ekki dóttur mina að heiman. Mér bættist einfaldlega sonur. Þau settust upp hjá okkur. ★ Fæturnir á konunni minni eru að ganga frá mér. Þeir fara alltaf i dýrustu búðimar. ★ Foreldrarnir höfðu þungar áh.vggjur af syninum. Hann var mjög þögull. Það var svo sem allt i lagi meðan hann var lítill. En svo var hann orðinn átta ára og enn ekkert farinn að segja. Þá var það einn dag við hádegisveröarborðiö að stráksi sagði: „Viljið þið gjöra svo vel að rétta mér saltið?” Faðirinn sagði undrandi og glaður: „Hvernig stendur á þvi að þú hefur ekkert sagt í átta ár?” „Hingað til hefur ckkert vcrið athugavert!” ★ „Hvernig stendur á því að þú ætlar að fara að skilja nú, eftir fimmtiu og þriggja ára hjónaband?” „Ja, það er nú svo. herra dómari, að maður getur fengið of mikið af öllu.” ★ Ég ætla að arfleiða konuna mina að öllu sem ég á. Allt sem ég á er bilfarmur af bifreiðaverkstæöisreikningum.” ★ Það eina sem ég veit um ættartré fjölskyldu minnar er að eitt sinn voru ekkert nema apar i því. ★ Maðurinn minn er með vatnshelda rödd. Ekkert sem hann segir getur nokkurn tíma drukknað i orðaflaumi annarra. ★ Tengdapabbi er svo múraður að nafn- númerið hans er leyninúmer. ★ Ég er svo sem ekkert að segja að hann hafi stóran kjaft en hann getur étið banana þversum. ★ Sonur minn heldur að málfrelsi sé það að mega hringja langlinusamtöl enda- laust. ★ Margt smátt ‘HCr sjðum við dæmigcrða mynd frá Paris, kaffihúsastcmmning á sólríkum dcgi. Sumarfrí ti/ Frakklands Vikunni barst þetta bréf fyrir skömmu og er okkur Ijúft að birta það hér með: Frönsk hjón um þritugt, kennarar, eru að undirbúa ferðalag um ísland i júli og vilja kynnast íslandi og lands- mönnum betur en venjuleg skemmti- ferðalög bjóða upp á. Þau eru reiðubúin að gjalda í sömu mynt hvað varðar kynni á Frakklandi. Þau skrifa á frönsku og ensku c heimilisfangiðer: Roselyne et Jean Louis Vieilly 27 Rue du Chateau des Vergnes 63100 Clermont — Ferrand France. í þessari Viku SífflM 16. tbl. 44. árg. 22. aprfl 1982 - Vcrð kr. 33. GREINAR OG VIÐTÖL: 10 Glaumur og gaman. Sagt frá árshátíð á Eskifirði. 12 Innanstokks hjá Ólafi Maríussyni og Jóhönnu Guðrúnu Jónsdóttur. (Hann er ó-ið í P & Ó). 18 Hljómsveitarmenn Q4U (kjúforjú) opinbera sig: „Forstjóri hjá KGB”. 26 Háskólakórinn fór með rétt hljóð til írlands og okkar baldni tíðindamaður þarlendis, Jón Baldvin, segir frá. 30 Grýlurnar á fullri ferð — í viðtali viö Vikuna og á breiö- síðunni. SÖGUR: 24 Dauði milljónamæringsins — áhugaverð smásaga. 36 Framhaldssagan Kórónan, 11. hluti. 44 Skemmtisaga Willy Breinholst: Stúlkan og silfurhálsmeniö. ÚTLITIÐ: 4 Hárgreiðslan skal vera síð og sumarleg. 8 Þá er að bregða notalegri vorpeysu á prjónana. 17 Höfuðkúpa mannsins gefur ekki mannvirkjum eftir... 42 Hugsið um heilsuna, hreyfið ykkur. IV. þáttur um jóga- æfingar. 48 Hársnúningar. ÝMISLEGT: 22 íþróttir í Grikklandi enu forna. 34 Sjónvarpsþáttur sem sló í gegn í Bretlandi í fyrra: Brideshead Revisited. - Orðið - Kvöldbæn útvarpsins, Orð kvöldsins — ritningarorð og bæn, hefur nú verið við lýði i rúmt ár. „Um daginn var hringt til okkar,” sagði séra Bernharður Guðmundsson, sem velur texta og 'lesara, „og pantaðar á snældu tuttugu bænir eða svo til Englands." Það var Helgi Zoega, umboðsmaður islenskra skipa i Hull, sem bað um bænirnar handa islenskum sjómönnum. „Þetta er oft eina kvöldkveðjan sem fólk fær,” sagði séra Bernharður ennfremur. Orð kvöldsins eru ekki eina guðsorðið sem flutt er i útvarp virka daga. Morgunbœn, flutt af presti, hefur lengi verið við lýði, en Morgunorð, hugvekja leikmanns, eru ný af nálinni, byrjuðu 1. janúar 1981 eins og Ord kvöldsins. Um morgunorð sjá sex manns í hverjum mánuði, þrir karlar og þrjár konur. Reynt er að hafa þrjár kynslóðir i hverjum mánuði, í febrúar var yngsta konan til að mynda 24 ára og sú elsta 82. „Ég reyni að hlusta á fólk og hvað það hefur fram að færa,” segir séra Bernharður, „þegar ég er að leita að fólki til að flytja morgunorð, og svo fáum við lika ábendingar.” 44 Stjörnuspá. 49 Hlynsíróp í eldhúsi Vikunnar._____ 62 Pósturinn (og lukkuplötukcppnin). VIKAN. Utgcfandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Sigurður Hrciðar Hrciðarsson. Blaðamcnn: Anna Ólafsdóttir Björnsson, Borghildur Anna Jónsdóttir, Hrafnhildur Svcinsdóttir, Jón Ásgcir Sigurðsson, Þórcy Einarsdóttir. Útlitstoiknari: Þorbcrgur Kristinsson. Ljósmyndari: Ragnar Th. Sigurðsson. RITSTJÓRN I SÍÐUMÚLA 23, sími 27022. AUGLÝSINGAR: Gcir R. Andcrscn, simi 85320. AFGREIÐSLA OG DREIFING i Þvcrholti 11, simi 27022.Pósthólf 533. Vcrð i lausasölu 33,00 kr. Askriftarvcrð 110,00 kr. á mánuði, 330,00 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslcga cða 660,00 kr. fyrir 26 blöð hálfsárslcga. Áskriftarvcrð grciðist fyrirfram, gjalddagar nóvcmbcr, fcbrúar, mai og águst. Áskrift í Rcykjavík og Kópavogi grciðist mánaðarlcga. Um málefni neytenda er fjallað I samréði við Neytendasamtökin. Forsíða Eflaust má deila um hvað orðið grýla táknar, og út frá þeim grundvelli velta vöngum yfir þvi hvort það er réttnetni á þessar föngulegu kvinnur að kalla þær Grýlur. En nafnið hafa þær valið sjálfar, eins og þær gera allt sitt sjálfar i musikinni sem þær framleiða. Þær halda sig mjög við jörðina á þessari forsiðumynd Ragnars Th. en inni i blaðinu fljúga þær hærra. 16. tbl. Vikan 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.