Vikan - 22.04.1982, Blaðsíða 43
Il
Jógaæfingar — IV. hluti
Herðastaðan
Leggist á bakið á gólfið með hendur
niður með hiiðum. Andið rólega að og
frá. Lyftið fótum upp, með hnén
beygð, þar til þið hvílið á herðunum.
Andið að ykkur og réttið úr mjöðmum
og fótieggjum þar tH likaminn er
orðinn þráðbeinn.
Í þessari stöðu eiga fótíeggir ekki að
vera stifir. Liðir mjúkir, vöðvar slakir
og eðlilegir. Höndum á að koma fyrir
þannig að bolurinn sé sem
stöðugastur.
Til að fá meiri mýkt er gott að fara
niður með fæturna, anda frá sér og
láta hnén nema við enni. Rétta síðan
upp og anda að sér. Gera þetta
nokkrum sinnum. Þegar þið eruð búin
að ná jafnvægi, með líkamann þráð-
beinan, þá andið að og frá nokkrum
sinnum.
Látið fæturna siga og andið frá
ykkur.
Plógstaðan
Andið að ykkur og réttið
annan fótinn upp. Þið
megið styðja með lófunum
við bakið ef ykkur finnst
það betra. Látið síðan
fæturna síga, liggið bein á
góífinu með hendur niöur
með hliðum og andið
rólega frá ykkur.
16. tbl. Vikan 43
Þessi æfing er góð fyrir alla hryggsúluna og teygir vel á
hálsinum. Andið frá ykkur um leið og þið teygið fæturna vel
aftur. Látið lófana liggja á gólfi og fæturna hvíla á táberginu.
Andið nokkrum sinnum að og frá.
Það er mjög gott að gera þessa æfingu eftir
plógstöðuna og viðsnúnu æfingarnar. Liggið á
bakinu. Lyftið efrihluta líkamans upp og
hvilið á olnbogunum. Látið höfuðið falla aftur
og andið að og frá þrisvar sinnum.
Á eftir er gott að halda stellingunni nema
hvað þunginn hvílir á hvirflinum og hendurnar
eru í bænastellingu á brjóstinu. Setjið síðan
olnbogana á gótfið, leggið hendur niður með
hliðum, andið frá ykkur og slakið vel á.