Vikan - 22.04.1982, Blaðsíða 50
Eldhús Vikcinnar
Jón Ásgeir
tók saman
Hlynsíróp
Sætindi voru alvanaleg hjá kanadískum
indíánum löngu áður en Kólumbus fann
Ameríku. Evrópubúar vissu varla hvað
sykur var og kunnu því síður aðferðir til að
framleiða hann. Frumbyggjar Ameríku
voru einna fyrstir til að framleiða sykurinn,
þeir ristu einfaldlega rákir í trjábörkinn á
hlyni og nóg var af honum í Kanada.
Safinn í trjánum stígur að vori til, þegar
nætur eru kaldar en farið að hlýna að degi
til. Þá vellur sætur safinn úr rákunum og
það er um að gera að ná honum þar.
Skógarmenn náðu safanum í stampa og
suðu hann svo langtímum saman. Við það
gufaði vatnið burt úr vökvanum og eftir
stóð gullinbrún sósan.
Evrópsku innflytjendumir lærðu
vinnsluna og hún varð mikilvæg atvinnu-
grein þeirra sem búa við kröpp kjör í
Quebec og Ontario. Einn hlynur gefur af
Svínarrf með
htynsírópsjafningi
Fyrir 8 manns.
2 kíló svínarif með kjötinu á
JAFNINGURINN:
30 grömm sesam-fræ
1 hvítlaukslauf
1 engiferrót í sírópi
1 hnífsoddsmergð af neguldufti
2 matskeiðar matarolía
6 matskeiðar hlynsíróp (maple sirup)
5 matskeiðar sojasósa
7 matskeiðar kjötseyði (máske
skyndilögun)
2 matskeiðar viskí
1 stór laukur
Tilreiðsla: Biðjið kjötkaupmanninn að deila
svínarifjunum í átta hluta. Ristið sesam-
fræin á þurri pönnu. þar til gullinbrún og
látið þau kólna. Flysjið hvitlaukslaufið og
hlutið í smátt. Skerið afhýdda engiferrótina
á stóra teninga. Blandið öllu saman og
bragðbætið með neguldufti. Þeytið duglega
saman matarolíu, hlynsiróp, sojasósu og
seyði og bætið saman við það sem áður var
komið. Hrærið viskíi og smásöxuðum
lauknum út í.
Leggið svínarifin í skál og hellið sósunni
yfir. Látið rifin liggja í leginum í fimm
Ídukkutíma og veltið þeim af og til á
meðan. Veiðið svo kjötið upp úr og grillið
undir heitu grilli í 25 mínútur (20 mínútur á
miðhillunni, fimm mínútur á þeirri efstu.
Veltið rifjunum oft og strjúkið sósu yfir
þau ef þarf.
Hes/ihnetukökur
170 grömm smjör og litið eitt að auki fyrir
bökunarformið
175 grömm sykur
4egg
1 hrista salt
6 matskeiðar hlynsíróp (maple sirup)
125 grömm muldir heslihnetukjarnar
(þessar algengu, kúlulaga)
85 grömm hveiti
1 sléttfull teskeið af lyftidufti
8 matskeiðar hlynsíróp til að væta kökuna
1 pakki suðusúkkulaði í hjúpinn
2 matskeiðar ristaðir muldir heslihnetu-
kjarnar
Tilreiðsla: Hrærið smjörið í skál þar til það
er kremkennt. Þeytið sykurinn og eggin
saman við og kryddið með einni salthristu.
Hrærið síðan hlynsírópinu saman við.
Blandið saman muldum heslihnetu-
kjörnum, hveiti og lyftidufti og hrærið
saman við hitt. Steypið deiginu í feitiborið
23 sentímetra langt bökunarform. Gerið
skoru eftir miðjunni, setjið í heitan ofn og
bakið í eina klukkustund við 175 gráða hita
á miðhillu. Hækkið hitann síðustu 15
mínúturnar og breiðið álþynnu yfir kökuna
sé hún farin að dökkna.
Losið kökuna úr forminu, leggið á grind
og stingið göt í hana með trépinna. Látið
hlynsírópið drjúpa í götin og dreifið um
yfirborðið, einnig á hliðarnar. Látið allt
kólna.
Bræðið súkkulaðið í skál yfir heitu vatni,
strjúkið því yfir kökuna og sáldrið loks
heslihnetum yfir.
sér um 40 lítra af safa ár hvert, en þver-
málið jafngildir í það minnsta 25 sentí-
metrum.
Sírópið frá Kanada verður sífellt
vinsælla, það er enda alveg tært og fullt af
bætiefnum. Gömlu kanadísku upp-
skriftirnar standa enn fyrir sínu og bragðast
evrópskum laukum jafnvel og þeim í
Ameríku.
K/attar með hlynsírópi
200 grömm hveiti
2 sléttfullar teskeiðar af lyftidufti
1 teskeið salt
100 grömm smjör
112 lítri mjólk
3egg
2 matskeiðar hlynsíróp (maple sirup)
jurtafeiti til steikingar.
Tilreiðsla: Sigtið hveiti, lyftiduft og salt
saman í skál. Látið smjörið renna við
vægan hita, hellið því af pönnunni saman
við mjólk, egg og hlynsíróp, hrærið vel
saman og látið standa í eina klukkustund.
Hitið lítið eitt af jurtafeiti á pönnu, hellið
deiginu á pönnuna með lítilli ausu, þannig
að úr verði klattar sem eru um 12 sentí-
metrar að þvermáli. Látið klattana bakast
gullinbrúna báðum megin.
Staflið klöttunum á disk sem stendur í
volgum ofni og hellið upphituðu hlynsírópi
yfir þá rétt í þann mund er þeir skulu fram-
reiddir. Gott er að bera fram þunnar flesk-
sneiðar (beikon) sem hafa verið steiktar
stökkar á pönnu við meðalhita. Látið
feitina renna vel af þeim áður en þær eru
bornar fram.
SO Vlkan 16. tbl.