Vikan - 29.07.1982, Page 15
Hústjöld eru talsrerl frá-
bnigöin þessnin göinlii göön mei)
skáþnkiiiii. I>an kor\u fgrsl nni
þin) tegti sem öll luis rnrii bgggö
meö llötniii þökiiin. Einhrer
tengsl hafa án efa reriö þar a
inilli. Aö rísa eru þessi ngjii og
finii hástjöld flest meö srolitlu
risi sem keiiinr í reg fgrir aö folk
þnrfi aö halda fötiiin nndir lek■
anniii og siiin ern hreinl eins og
liiiiistn einbylishás. 1‘ar er stofa
og slalti af herbergjum. gluggar
og rmirí. Allt þetta kostar aiiöeit-
aö peninga og fált riö þri aö
segja.
1. / grundvallaratriðum eru öll
hústjöld eins, grind og tjald eða
tjöld. Grindin er miklu stcerri og
meiri en í venjulegum tjöldum en
þá kemur í staðinn smáhjálp. Eins
og sjá má eru stengurnar fastar
saman á gormum og því lítill vafi
hvar hver á að vera. Þœr bókstaf-
lega smella sjálfar saman.
2. Grindin er öll komin saman og
dúkurinn breiddur yfir. Síðan er
farið inn í tjaldið og strekkt. Nú
eru það ekki stög heldur ganga
súlurnar sundur og saman. Við
ýtum þeim sundur eins og hœgt er.
Þetta tjald, sem myndin er af, er
2ja manna, með lítið herbergi og
anddyri. Herbergið er i rauninni
heilt tjald með botni og öllu. Nú er
farið með það tjald inn í það sem
upp er komið og fest með smellum
á þar til gerðar festingar á
mœninum.
3. Loks er betra að tylla iillu
saman niður eins og öðrum
tjöldum og bjóða siðan til veislu.
fríi frá vinnu! Og svo var nú þaö,
tjaldið komst upp.
5 Ekki slæmt þótt mænirinn liggi
utan á eins og pípulagnir á bresk-
um húsum. Við völdum að hafa
þetta svona vegna þess að þetta er
betra ef himinn er settur yfir. Þá
liggur hann ekki ofan á tjaldinu
sjálfu, heldur mæninum. Svona
eru þeir stundum sniðugir þessir
arkitektar. En hvemig ætla þeir
tjaldinu að standa? Neiiii, tjaldið
er að detta!!! Engan æsing, við
björgum því.
6 Stög. Þvílík unaðsleg
uppfinning — ætli það hafi verið
Edisonur eða hvað hann hét? Það
byrja bara tveir, hvor sínu megin
tjaldsins, fremst, og strekkja
aftur með því þangað til þeir
rekast saman. Og núna notum við
hæla en ekki pinna. Eruði búin að
læra þetta? HÆLA! Hælunum
troðum við ofan í blásaklausa
fósturjörðina og reynum að finna
þeim góða festu. Þeir selja meira
að segja sérstaka plasthamra til
að lemja á þá ef menn eru vöðva-
litlir. Reynið svo að muna að hafa
súlumar inni beinar svo að tjaldið
verði rétt og ekki rífa botninn
(mamma yrði brjáluð!).— BÚIÐ
og bara eftir að strekkja gafl-
stögin. Það má mikið vera ef ein-
hver á ekki eftir að detta um þau!
Vel á minnst, þetta þama á mynd-
inni er strekkjari ef ykkur langar
til að vita það.
6 Það er hreint ekki svo mikið
mál að skella tjaldhimni yfir allt
saman ef lítur út fyrir raka
(þennan úr skýjunum).
Himinninn er festur niður með
hælum sem fara í teygjur og
vinsamlega snúið kúptu hlið
hælanna út, annars slitna
teygjurnar. Að innan er kanturinn
festur niður með pinnum svo að
allt fjúki ekki norður og vestur í
ballarahaf. — Núna er bara eitt
enn sem þarf að muna: rífiö ekki
pinna á botninum upp með tjald-
inu þegar þið takið tjaldið niður —
notið fingurna. Sérfræðingarnir
segja líka að súlurnar eigi að taka
úr tjaldinu áöur en byrjaö er að
losa pinna og hæla þannig að tjald-
iö detti niður. Eftirleikinn ættu nú
allir að kunna — ef ekki, þá er
ráðlegt að lesa leiðbeiningarnar
afturábak! Góða skemmtun og
heimferð! l m
30. tbl. Vikan 15