Vikan - 29.07.1982, Blaðsíða 45
Þunglyndu snillingarnir frá Manchester
Popp
won’t set you free.” Þetta var
eins konar spásögn eða fyrirboði
eins og síðar kom fram.
Um svipaö leyti og Unknown
Pleasures kom út kom einnig frá
hljómsveitinni lítil plata með lög-
unum Transmission og Novelty.
Sú plata hlaut mjög góðar
viðtökur og fór hátt á vinsælda-
lista „independent” fvrirtæki-
anna í Bretlandi.
Dauðsfall
Eftir þetta hóf hljómsveitin að
spila á hljómleikum um allt Bret-
land. Hljómleikar hennar voru
jafnathyglisverðir og plöturnar.
Kristaltær hljómurinn barst frá
sviðinu á meðan söngvarinn
dansaði brjálæðislega um eins og
lífið væri í veði. Hljómsveitin jók
stöðugt vinsældir sínar og
snemma á árinu 1980 hófust
upptökur á stóru plötunni Closer,
með Hannett aftur í upptöku-
stjórastól.
Eftir að upptökum á þeirri
plötu og laginu Love will tear us
apart lauk hélt hljómsveitin tón-
leika í Birmingham, þann 3. maí.
Hálfum mánuði síðar var Ian
Curtis liðið lík. Hann hafði hengt
sig í eldhúsinu heima hjá sér.
Þetta var gífurlegt áfall eins og
geta má nærri, ekki einungis
fyrir hljómsveitina heldur einnig
fyrir hina fjölmörgu aðdáendur
og tónlistarlíf í Bretlandi yfir-
leitt. Hljómsveitin haföi smám
saman verið að fá viðurkenningu
sem ein af leiðandi hljómsveitum
í bresku tónlistarlífi, merkasta
hljómsveit sem komið hafði fram
á sjónarsviðiö síðan Sex Pistols
ruddust fram.
Stóra platan Closer og litla
platan Love will tear us apart,
sem komu út skömmu eftir
dauða Curtis, sýndu þetta og
sönnuðu. Joy Division náöi þar
fullkomnum tökum á tónlist
sinni. Myrk og ægifögur tónlistin
virtist á einhvern hátt staðfesta
að Curtis hefði ekki verið ætlaö
lengra líf. Hann varö píslarvottur
allra þeirra bresku ungmenna
sem lifa í þjóðfélagi Thatchers.
Lagið Love will tear us apart
er eitt af mestu meistaraverkum
í rokktónlist nútímans. Á þeirri
plötu og einnig á litlu plötunni
Atmosphere, sem kom á eftir,
nota þeir synthesizera til að auka
fjölbreytnina.
Nýskipan
Eftir dauöa Curtis ákváðu hinir
meðlimirnir að halda áfram
undir nafninu New Order. Ekki
voru allir sáttir við það nafn,
þótti fasistabragð að því.
New Order gáfu út lögin Cele-
bration og In a lonely place á lít-
illi plötu snemma á árinu 1981:
Þau voru bæði samin af Joy
Division og voru talin með bestu
lögum ársins. Það var Bernard
Albrecht sem tók við söngnum af
Curtis. Margir bjuggust við að
með dauða Curtis væri sögu
hljómsveitarinnar sem skapandi
afls lokiö. Reyndar virtist
mörgum að stóra platan Move-
ment, sem New Order sendu frá
sér á miðju ári 1981, sannaði
þetta. New Order væri eins og
Pink Floyd, snillingslaust flak.
En Movement er aö mínu viti
meistaraverk.
Um svipað leyti og Movement
kom út sendi Factory frá sér
safnplötu með áður óútkomnum
lögum Joy Division, Still. Þarna
eru til dæmis hin frábæru lög
Dead Souls og Sound of Music.
Einnig var þar hljóðritun frá
síðustu hljómleikum Joy Division
í Birminghamháskóla.
Að undanförnu hafa New Order
sent frá sér tvær litlar plötur,
Everything’s gone green og
Temptation. Aðeins sú fyrri er
komin til landsins og eru þar
þrjú lög, hvert öðru betra.
Tónlistin er fjörugri en áður,
byggist nú meira á áslætti og
synthesizerum. Til liðs við hljóm-
sveitina er komin Gillian Morr-
isy, eiginkona trommuleikarans.
Hún leikur á synthesizera og
gítar.
Það lítur út fyrir að New Order
muni halda áfram á sömu braut
og Joy Division og skapa frum-
lega og mikilvæga tónlist. Olíklegt er
að hljómsveitin verði Pink Floyd
níunda áratugarins, súperhljómsveit
sem er tóm að innan.
Hér er listi yfir þær plötur sem LITLAR PLOTUR:
fengist hafa með Joy Divis- Transmission
ion/New Order hér a landi. Love will tear us apart
JOY DIVISION: Atmosphere
Electric Circus. Safnplata rncð NEWORDER: llii|
Manchesterhljómsvcitum, þar á STOR PLATA: ggjgj
meðal Joy Division. Movement
STORAR PLÖTUR: LITLAR PLOTUR: ■ j '4
Uuknown Plcasurcs Closer Slill Ceremony Everythings gone green.
30. tbl. Vikan 45