Vikan - 29.07.1982, Síða 27
Smésaga
„Minn er heiðurinn,” tautaði Michael.
Frú Larsen faðmaði hann að sér og sagði:
„Viltu ekki búa hér allt árið? Þá gætiröu
kannski fengiö tengdaföður þinn til að fylgja
þínu fordæmi.”
Bróðir Alice og mágkona hennar voru að
sýna barninu lauf af hlyn í stofunni. Telpan
var aðeins tæplega eins árs og horföi hrifin á
þau. I hvert einasta skipti sem Michael sótti
bolla og diska sá hann hana stara stórum,
brúnum augum á pabba sinn sem sönglaöi:
„Sko, laufin litlu.” Mamma hennar var feim-
in bóndastúlka sem hélt sig viö hlið mannsins
í veislunni. Michael haföi eilitla ánægju af aö
sjá að hún virtist enn feimnari við Larsen-
hjónin heldur en hann. Nú hélt hún á barninu í
kjöltunni og brosti óstyrk til gráðhærðs, feit-
lagins manns sem stóð handan við borðstofu-
borðiö.
„Er hún ekki sæt! ” sagði maðurinn.
Mágkona Alice hló og sagði: „Þeim líst á
þig, Jennie. Sérðu, hvað allir eru hrifnir af
þér?”
Michael sneri sér aftur að diskunum. Hann
stakk höndunum niður í heitt sápuvatnið,
þvoði sleipa diskana og reyndi að hugsa um
allt bæði meö og á móti svo aö hann gæti
komist að niöurstöðu sem væri hans eigin
ákvörðun. Þaö var þetta litla kraftaverk —
því að ekki gat hann sagst vera ónæmur fyrir
henni. Jenny var með mjúkt, brúnt hár —
mamma hennar kallaði hana biðukolluna og
stakk hárinu undir húfuna þegar það slapp
fram eins og það gerði yfirleitt — og hönd sem
greip ótrúlega fast og ákveðið um fingurinn á
manni. Allt það jarðneska tók viö þegar
kraftaverkið fór að fölna. Þaö varð að aga
barn, senda það í skóla og til tannlæknis,
kenna því að binda skóreimar og þakka fyrir
sig. Vildi hann gera það? Michael þvoði diska,
skolaði af þeim sápuna og vissi ekki hvað
hann átti aðgera.
Þaö kallaði einhver á hann. Hann átti að
koma út í garðinn, þar átti að taka fjölskyldu-
mynd. Hann fór frá diskunum og út. Frændi
stóð gleiður neðst í stiganum út að túninu.
Hann starði inn í vélina og veifaði til Larsen-
fólksins, sem stóð skammt frá, því að hann
var að reyna að fá þau til að standa þéttar
saman. „Komdu til okkar,” öskraði John Lar-
sen. Utstæð blá augun og hátt ennið voru
miðpunktur hópsins. Alice hafði dregið upp
pilsið og kraup á kné við hlið hópsins og
Michael tók sér stöðu fyrir aftan hana. Amma
Larsen var á hægri hönd hans og bisaði við að
halda jafnvæginu á háu hælunum.
Michael fannst yfirleitt skemmtilegt aö
vera innan um þessa afkomendur víkinganna.
Eftir fjögur ár fannst honum hann enn vera
eins og geit í nautabópi. Núna fann hann til
herpings fyrir brjóstinu. Hann langaði mest til
að taka fyrir andlitið eöa stökkva frá þeim.
Það var ekki fyrr en búið var aö taka mynd-
ina, frosin brosin horfin og allir farnir að
hlæja, sem hann fann að hann óttaðist þessar
myndir sem átti að geyma handa komandi
kynslóð.
Hvaö hefði forfaðir hans sagt — Rabbí
Abraham Lowenthal frá Frankfurt, samtíma-
maður Moses Mendelsohns? Það var að vísu
efnilegt líffræðilega séð að blanda saman
Lowenthal og Larsen en menningarlega séö
gat það orðið hroðalegt. Hann hafði búið í
hamingjusömu hjónabandi með Alice Larsen
en það var annaö með börnin. Michael gekk
um garöinn og brosti viðutan við ljóshærða
tengdafólkinu.
Þetta var ekki aöalvandinn því að Alice var
ekki sérlega trúuö. Hún sagðist ekki vilja
skipta um trú — því að hún heföi ekki eytt
meirihluta unglingsáranna í uppreisn gegn
einni trú til að skipta yfir í aðra tíu árum síðar
— en hún vildi gjarnan ala barn upp eftir
gamalli hefð og hún kunni vel við siöi gyðinga.
Kannski rabbíinn gamli hefði skiliö að gamlar
venjur áttu ekki lengur við ef hann hefði
komið til nýrri tíma og séð þotur, síma, tölvur
og annað slíkt — nú gat enginn verið einangr-
aður. Hann myndi bæta við kyniö, ekki draga
úr getu þess.
STUTT OG
LAGGOTT
SVAR
Gr estirnir höfðu dregist saman í hópa eftir
kynjum. Karlmennirnir stóðu viö bílskúrinn
og höfðu hendur í vösum. Þeir kvörtuöu und-
an byggingarkostnaði, vöxtunum, olíuverð-
inu. Konurnar hnöppuðust kringum Larsen
ömmu sem sat stíf og teinrétt í sólstól því að
hún neitaði að setjast í sófann eins og væri
veriö að bjóöa henni leg í líkkistu. Hún brosti
til þeirra allra, hverrar fyrir sig, og hallaði
svo undir flatt þegar konurnar voru að tala
um allt sem þær höfðu fengið að borða. Allar
höföu þær hjálpað til og nú hrósuðu þær hver
annarri en gerðu lítiö úr eigin framlagi, svo
ákaft að loks hlógu þær allar. Alice stóð yst í
hópnum og leit af og til til karlmannanna og
svo tómlega á Michael. Hann hitti hana milli
bílskúrsins og matarborðsins úti.
„Amma þín lítur vel út.”
„Já.” Alice hló. „Þetta er í fyrsta skipti
sem hún hefur ekki tekiö mig á eintal. Eg held
að hún hafi sífellt minna og minna að segja
viö ræfilinn hana sonardóttur sína.”
„Það er tími til þess seinna. Hún talar við
þig-”
„Kannski. Ég á ekki heima hér lengur eða
nokkurs staðar annars staðar. í Boston líður
mér líkt og hippa frá mið-vesturríkjunum.
Hérna er ég sú f ína og flotta. ’ ’
„Og allt þetta hef ég gert þér?”
Systir Alice kom meö barn í burðarpoka á
maganum. Alice beit andartak á jaxlinn en
brosti svo. „Hæ, Elizabeth,” sagöi hún við
barnið. Það var aðeins þriggja mánaða.
Vangi þess hvíldi við viöbein móöurinnar og
sólin skein á hnakkann. „Lifir hún lætin af?”
spurði Alice.
Systir hennar var með Larsen-ennið og út-
stæðu, bláu augun og hún sagði frá matar- og
svefnsiðum Elizabeth í löngu máli, lýsti gráti
hennar og magaverkjum. Sagöi hvað hún
væri hrifin af bílferðum, fyrsta brosinu og því
hvað hún væri þæg í margmenni. „Við sjáum
nú til hvernig hún verður á morgun,” sagöi
systir hennar að lokum og ranghvolfdi í sér
augunum. Michael hló og Elizabeth geispaði
og fór að gráta. „Æ, æ,” sagöi systirin. „Kom-
inn tími fyrir matinn.” Mæðgurnar fóru heim
að húsinu og barnið hágrét.
Alice brosti ekki lengur. Fyrst hélt hann að
hún væri reiö því að hún herpti saman varirn-
ar og nasavængirnir voru þandir, en svo sá
hann að hún virti hann aðeins fyrir sér óhvik-
ulu augnaráði og hann hugsaði: Hvers vegna
sérðu mig ekki í friði?
Hann fann sér til undrunar að hitinn steig til
höfuðs honum og hún snerist á hæli og gekk
aftur til kvennanna við borðið. Um stund
skynjaði hann aðeins rakann og hitann sem
lagði frá grasinu. Það hræðilegasta var ekki
að hún skyldi geta hugsað sér að fara frá hon-
um — því að það vissi hann — heldur að hún
gat ekki látið þetta eiga sig. Eitt andartak
hafði hann óttast að hún tæki af honum völdin.
Og þá hvað? Þá heföi hann ekkert — enga
Alice, ekkert rifrildi, ekkert val.
Næstu klukkustundirnar þvaðraöi hann eitt-
hvað við fólkið, borðaði kvöldmat, þvoði upp
fleiri diska, heilsaði nýjum gestum og kvaddi
aðra, en innst inni hnipraöi hann sig saman og
reyndi aö búa sig undir það augnablik er ein-
hver slægi hann til jarðar með nokkrum högg-
um. Seinna um kvöldiö fann hann hana inni í
skálanum. Þar var hún að ræöa sperglarækt-
un við tvo frændur sína. Hún sat í hnipri i
hægindastól og hafði hendurnar í kjöltunni og
hún var þögul og inn í sig eins og lítil stúlka
sem vill ekki vekja á sér athygli eða er sann-
færö um að hún eigi hana ekki skilið. Michael
brosti til hennar en hún skipti ekki um svip.
Frændinn sem hafði tekiö fjölskyldu-
ljósmyndirnar spurði: „Ertu enn í skólanum,
Alice?” og málrómurinn var allt í senn glað-
legur, lítillátur og ógnandi. Alice hló, strauk
yfir hárið og jánkaði þessu. „Þaö er gott,”
sagði frændi hennar og hló líka. Mennirnir
tveir fóru aftur að ræöa garðyrkju.
Michael stóö í gættinni og hugsaði: Hvernig
dirfist þið að koma svona fram við hana? Og
svo nei. Þessi orð stöfuðu af reiöi hennar því
að hann var einn þeirra — hann vildi líka kæfa
hana með sperglum og raunsæi. Hann brosti
til hennar, ekki til að gleðja hana heldur til að
fá hana til að fela óhamingju sína svo að hann
neyddist ekki til að sjá hana. Því að þannig
var þaö. Viðutan, angurvær svipurinn á and-
liti hennar minnti hann á andlit barns eða
gamals bónda. Þessi svipur var ekki honum
að kenna og hann hafði e"kkert vald til aö taka
hann af andlitinu. Um leiö og hann viöur-
kenndi svip hennar gat hann ekki lengur hugs-
að um sársauka hennar sem eigin veikleika.
Hann varð að finna hann eins og hann var —
sársauki hennar ekki síður en hans — því að
hann elskaði hana og ást er ekki aöeins missir
úr fjarlægð heldur líka missir á hlutföllum. I
ást hagar maður sér eins og við á, líkt og ófús
sjúklingur á skuröstofu bregst við eftir
30. tbl. Vikan Z7