Vikan - 20.10.1983, Qupperneq 5
STUTT VIÐTAL VIÐ JOSEPH M. NALL,
YFIRMANN SVEITARINNAR
Við hittum yfirmann deildarinnar stuttlega að máli. Hann heit-
ir Joseph M. Nall. Okkur lék forvitni á að vita hvað rekstur
deildarinnar kostaði. Nall var tregur til að gefa upp nokkrar tölur
en nefndi þó að sveitin hefði til ráðstöfunar á fjárlögum 335.000
dollara, eöa nærri 9,4 milljónir króna.
— Hins vegar er þetta aðeins brot af kostnaöinum við deildina.
Laun starfsmanna og margt annað er borgað úr öðrum sjóðum
þannig aö þetta er mun hærri upphæð. (Shields sagöi okkur að
hann hef ði 30.000 dollara eöa um 840.000 krónur í árslaun.)
Nall sagði að deildin hér væri þekkt fyrir hæfni sína. Þetta væri
mjög skemmtilegt og gefandi starf og það væri sóst eftir að koma
til landsins.
— Menn eru hér í eitt til tvö ár, það fer eftir því hvort þeir hafa
fjölskyldu sína með. Síðan flytjast þeir til annarra stöðva Jolly
Green Giants eða fara í störf þar sem þörf er á kunnáttu þeirra.
Þýskalandi, á Spáni, í Kóreu,
Japan, á Filippseyjum og í öllum
Bandaríkjunum, og sinnir alls
staðar sama hlutverki. Við vorum
mikið í Víetnam, eingöngu í
björgunarstörfum. Þegar fjölda-
sjálfsmorðin urðu í Jonesville í
Guayana flaug Jolly Green Giant-
sveit frá Flórída á staðinn og tók
eldsneyti á leiðinni.
Minkabúin
hættusvæði
Shields sýndi okkur bækistöðvar
deildarinnar, sem eru eins og hús
inni í húsi, í flugskýlinu mikla.
Kort eru á öllum veggjum, sem
sýna ýmist Island, hluta af Islandi
eða hafiö umhverfis landið. Inn á
eitt kortið voru merktir nokkrir
rauðir hringir og sagði blaðafull-
trúinn okkur aö þetta væru minka-
búin á Islandi. Þeim væri strang-
lega bannað að fljúga yfir þau sök-
um þess að þá ætu læðumar af-
kvæmi sin, yrðu ófrjóar eða aðrar
hörmungar dyndu yfir.
Ég spurði hvort aðstæður hér á
Islandi væru erfiðar með tilliti til
þyrluflugs.
— Aðmörguleyti.Enþyrlumar
sem við erum með, Sikorsky HH-
3, em vel fallnar til starfa hér.
Kuldinn fer vel með vélamar í
þeim og á Islandi þurfum við ekki
að fljúga mjög hátt yfir sjávar-
mál. — Slíkt gerir þyrlum erfitt
fyrir.
Shields greinir frá því að þyrlur
séu viðkvæmar. Vegna snúnings
rotor-blaðanna, eða þyrluvængj-
anna, hristist allt og skekst og viö-
hald verður mikið og vandasamt.
Sjúklingi með
tannpínu bjargað
Eins og áður segir kom sveitin
til Islands árið 1971.1 henni em 50
manns, þar af 10 flugmenn. Hinir
40 em viðgerðarmenn, björgunar-
menn, flugvélstjórar og aðrir
aðstoðarmenn.
I áhöfn hverrar þyrlu eru 5
menn, flugstjórinn, aðstoðarflug-
stjóri, flugvélstjóri og tveir
björgunarmenn. Hinir síðast-
nefndu em þjálfaðir í neyðarhjálp
við sjúklinga, þannig að ástand
sjúklinganna versni ekki á leið í
sjúkrahús. Shields var spurður að
því hvemig þjálfun flugmanna
væri háttað.
— Þaðtekur?mánuðiaðlæraá
þyrlu og síðan 4 mánuði í viðbót að
læra björgunarflug á þyrlu. Síðan
erum við í stöðugri þjálfun til að
missa ekki niður kunnáttuna.
Meðal þess erfiðasta sem við
gerum er aö taka eldsneyti á flugi.
Við gerum það í nær hverri
björgunarferð. Þá er skotið út
rana úr þyrlunni. Hann grípur
oliuleiöslu sem liggur út frá
Hercules-fylgdarvél. Þetta er
mjög vandasamt. Það er líka
erfitt að svífa kyrr í loftinu yfir
skipi sem verið er að taka slasaða
eða sjúka menn úr.
Shields greindi frá því að mikið
væri um aö sovésk skip bæðu um
aðstoð. Stundum hefði verið vafi á
hvort útkall hefði átt rétt á sér,
eins og þegar sjúklingur á einu
sovéska skipinu hefði reynst vera
með tannpínu, að vísu mjög
slæma. Hvert útkall er nefnilega
mjög dýrt, gróflega áætlað taldi
Shields það kosta 150.000 krónur.
Hann vildi þó ekki taka ábyrgð á
tölunum.
Viðgerðarmennimir þurfa jafn-
langan þjálfunartíma og flug-
stjóramir. Starf þeirra er eins
mikilvægt því að viðhald á þyrlun-
um er vandasamt og erfitt starf.
Segja má að björgunarsveitin sé
ein stór heild, þar sem hver treyst-
ir öðrum. Tengiliður viðgerðar-
mannanna og flugstjóranna er
flugvélstjórinn sem fer yfir vélina
fyrir hvert flugtak og lætur flug-
mennina vita hvort allt sé í lagi.
Bless
Þegar við fórum frá stöðinni var
ein þyrlan að æfa svif rétt hjá flug-
skýlinu. Hinar tvær þyrlumar
vom inni, önnur í viðgerð en hin að
mestu tilbúin í næsta björgunar-
flug. Jolly Green Giants em til-
búnir 24 tima á sólarhring ef eitt-
hvaðkemur upþá.
Hvað svo sem segja má um
vamarliðið verður því ekki neitaö
að mikið öryggi er af björgunar-
sveit þess. Em Islendingar tilbún-
ir til að kaupa þrjár þyrlur á
6.000.000 dollara eða 180.000.000
króna og hafa 50 manns í fullri
vinnu við björgunarstörf til að
auka þjóðarstoltið? Þangað til
þeirri spumingu verður svarað
játandi er eins gott að hafa Jolly
Green Giants.
42. tbl. Vlkan s