Vikan - 09.02.1984, Blaðsíða 5
Beau gerði vel við ríka og virta
gesti, bauð þá velkomna með
hátíðlegri athöfn, hringt var
kirkjuklukkum og hvaö eina. Svo
var gestunum boðið að kaupa
miöa á helstu menningarviðburði
um leið og þeir fengu reikninginn
fyrir móttökurnar. Hluta af
tekjunum fengu fátæklingar í
Bath, Beau stofnaði ásamt tveim
öðrum menningarvitum „Sjúkra-
húsið viö Lindina” þar sem fátækt
fólk fékk ókeypis læknishjálp.
Á dögum Nash var það sam-
kvæmisskylda að fara í laugarnar
dag hvern, í eitthvert baðhúsanna
í miöborginni. Eitt þeirra, „The
King’s Bath”, er sambyggt Dælu-
salnum, en þar gerðust hlutirnir.
Þarna viö borðin og hvetjandi tón-
list af ýmsu tæi skiptust bæjarbú-
ar á slúðursögum, nörtuöu í sæta-
brauð og dreyptu á heilsulindar-
vatni.
Raunar áttu Rómverjar upptök-
in þegar málið er kannaö ofan í
kjölinn. Þeir voru á kafi í land-
vinningum fram á sjöttu öld og
byggöu meöal annars mikla bað-
húsamiðstöð í Bath (= bað). Enn
er verið að grafa upp mjög merki-
legar og áhugaverðar fornminjar í
Bath.
Heilsulindin í borgarmiðju er
eina heita uppsprettan í Englandi.
Þarna gusast fram 1,1 milljón
lítra af 48,9 gráða heitu vatni á
hverjum sólarhring. Steinsnar frá
uppsprettunni, Dælustöðinni og
baðhúsunum í miðborginni rennur
áin Avon í gegnum Bath.
Borgin er í afskaplega fögru
sveitahéraði, skammt frá vestur-
strönd Englands. Hún byggðist
eins og áður segir upp í kringum
heita vatnið og heilsubótaráhuga
landsmanna og fór uppbyggingin
að mestu fram á átjándu öld, þeg-
ar ríkidæmi Breta var sem mest.
Þarna geta menn þjálfað kroppinn
eins og á dögum Beau Nash og í
Bath er líka margt sem menning-
arhugurinn girnist, til dæmis
halda borgarbúar í maí og júní ár-
lega eina merkilegustu tónlistar-
hátíð Breta — „Bath International
Festival of Music”.
1 Bath eru mörg listasöfn, söguminjasöfn og forngripasöfn. Eitt þeirra
stendur við upphaf einnar frægustu húsaraðarinnar, „Royal Crescent”
númer 1. Húsið var byggt í georgískum stíl og inni getur að líta innrétt-
ingar eins og þær tíðkuðust á blómaskeiði Beau Nash.
Horft niður eina af götunum í þeirri undravel skipulögðu borg, Bath.
Borgarskipulagið, sem enn þykir til fyrirmyndar, var hannað af John
Wood sem einnig teiknaði mörg hús fyrir borgarbúa.
Og þetta er sjálfur
höfuðpaurinn, Beau
Nash.
1674-1761
6. tbl. Vikan 5