Vikan - 09.02.1984, Blaðsíða 6
Tím|^gjfemubúninganna
r'.. Texti: Guðrún
Nú fer tími grítaubúninganna að nálgast í mörg-
um löndum hins stóra heims. Menn reyna þá að
gleyma amstri hversdagsleikans og útbúa sér alls
kyns gervi sem þeir mæta í á götum úti og á grímu-
dansleikjum. Hjá kaþólskum hefur tíðkast að við-
hafa sprell á götum úti í tilefni föstubyrjunar og ber
kjötkveðjuhátíðirnar líklega hæst. Hver hefur ekki
heyrt um hina villtu kjötkveðjuhátíð í Rio þar sem
blóðheitir Brasilíubúar útbúast stórkostlegustu bún-
ingum, þyrpast út á götur og stíga trylltan dans?
Hér á landi hafa grímuböll lengi tíðkast og eru
venjulega haldin í kringum öskudaginn. Sums
staðar á landinu hefur tíðkast að börn fari í skrúð-
göngur í grímubúningum sínum og á Akureyri hafa
grimuklædd börn jafnan slegiö köttinn úr tunnunni
og sungið hástöfum við mikinn fögnuð þeirra sem
hafa upplifað þennan dag með þeim.
Þessi siður hefur nú borist til höfuðborgarinnar
þar sem leikskólabörn mæta á Lækjartorg og
skemmta sér og öðrum í kattarslag..
Nú er um að gera fyrir alla, hvar sem þeir nú
mæta á grímusprell, að gefa hinum blóðheitu
Brasilíubúum ekkert eftir og klæðast því sem hugur-
inn girnist og láta hugmyndaflugið njóta sín.
Andlitsmálning er nokkuð sem
tilheyrir öllu „húllumhæinu” í
kringum grímuböllin. Látiö endi-
lega hugmyndaflugið ráða þegar
þið takið til við málninguna, það er
ekki svo oft sem hægt er að fara
svona frjálslega með andlitsmáln-
inguna og herrarnir geta nú fundiö
fyrir því hversu vandasamt það er
að ná góðum árangri með penslun-
um og blýöntunum. Andlitslitir
hafa fengist í versluninni Pennan-
um og föndurversluninni Handíð,
þá hafa duft- og þekjulitir fengist í
Skólavörubúðinni. Gætið þess vel
að þeir litir sem notaðir eru séu
skaðlausir, það á að standa á um-
búðunum. Mjúk barnahúðin þolir
ekki sterka liti. Trúðar, dvergar,
svertingjar, prinsessur og hinar
skrautlegustu verur standa upp að
málningu lokinni.
6 Vikan 6. tbl.