Vikan - 09.02.1984, Qupperneq 28
Ljósmyndakeppni Vikunnar:
Vetrarmyndir
fyrir 1. mars
Nú fara brátt að verða síðustu forvöð að
skila inn myndum í ljósmyndakeppni Vik-
unnar, þá fyrstu af fjórum á þessu ári. Hún
ber nafnið Vetur og þurfa myndirnar að geta
fallið undir það nafn. Frjálst er að senda
myndir af hverju sem er í þessa fyrstu
keppni, en til þess að hljóta verðlaun eða
viðurkenningu mega myndirnar ekki vera frá
sólarströnd eða einhverju þvílíku, annars er
um að gera að láta hugmyndaflugið ráða.
Dómnefndin er opin fyrir öllum
skemmtilegum myndum sem kunna að
berast. Hún er skipuð fjórum mönnum:
Sigurjóni Jóhannssyni, umsjónarmanni ljós-
myndaþáttar Vikunnar, Ragnari Th., ljós-
myndara Vikunnar, Emil Þór Sigurðssyni
ljósmyndara og Bjarna B. Halldórssyni, eig-
anda Ljósmyndaþjónustunnar og umboðs-
manni Polaroid á íslandi.
Skilafrestur er til 1. mars. Myndirnar þurfa
að vera vel merktar með nafni og heimilis-
fangi (símanúmer má gjarnan fylgja).
Það er í lagi að senda hvemig myndir sem er,
svarthvítar, litkópíur eða slides. Varast ber
þó að senda slidesmyndir í glerrömmum því
þeir geta brotnað i pósti eða flutningum og
rispað filmuna. Sendið myndimar í umslagi,
gjarnan með pappaspjaldi með til að þær
brotni ekki. Merkið umslagið: Ljósmynda-
samkeppni Vikunnar, pósthólf 533, 121
Reykjavík. Einnig má koma með þær á rit-
stjóraarskrifstofu Vikunnar sem er til húsa í
Síðumúla 33.
Eins og áður hefur verið getið em fyrstu
verðlaun Polaroid autoprocessor 35 slides-
framköllunarvél og Polaroid slidesfilmur
sem má framkalla í framköllunarvélinni á 60
sekúndum. Auk þess verða veitt 50 auka-
verðlaun sem em ókeypis framköllun og
kópering á litfilmum hjá Litsýn.
Hér á opnunni era þrjár litmyndir sem
íslenskur ljósmyndari, Gunnar Gunnarsson,
tók í Edinborg síðastliðið sumar. Hann tók,
ásamt öðmm nemendum í skóla sínum, þátt í
ljósmyndakeppni sem Polaroid í Englandi
efndi til. Skóli Gunnars hreppti verðlaunin
fyrir myndir Gunnars. Fékk hann í verðlaun
Polaroid autoprocessor framköllunarvél
ásamt slidesfilmum. Eru litmyndimar sem
hér birtast einmitt teknar á þessar filmur.
Gunnari finnst mjög gaman að leika sér með
þessar filmur og segir einstaklega spennandi
aö geta framkallað myndiraar um leið og
hann er búinn með filmuna. Gunnar notar
mikið soft eða Diffuser, filtera, eins og sést á
myndum hans.
Um leið og við hvetjum lesendur Vikunnar
til að taka þátt í ljósmyndakeppni Vikunnar
óskum við Gunnari til hamingju með verð-
launin sem hann fékk í Edinborg og þökkum
honum fyrir lánið á myndunum.
28 Víkan 6. tbl.