Vikan - 09.02.1984, Side 46
'■M*. M
immm
|| <mmr
Vinsælustu bíltæki í heimi
KP 3230 Útvarpskassettutæki
LW/MW/FM STERÍÓ. Sjálfvirk endurspólun. Hrað-
spólun í báðar áttir. Verð kr. 7.110.-.
KP 4230 Utvarpskassettutæki.
LW/MW/FM STERÍÓ. Spilar báðum megin. „PNS“-
truflanaeyöir, „ATSC“-öryggiskerfi. „ARC lll“ „Loud-
ness“. Verð kr. 8.470.-.
TS 1655 Hátalarar, NÝTT
16 sm. Niöurfelldir, þrefaldir. 30—20.000 Hz, 90 W.
Verð kr. 2.160.- stk.
KE 8300 Útvarpskassettutæki, NÝTT
LW/MW/FM STERÍÓ. Spilar báðum megin. „Dolby
Metal", Sjálfvirkur lagaleitari, „Loudness" o.fl. Verð
kr. 16.260.-.
KE 4300 Útvarpskassettutæki
LW/MW/FM STERÍÓ. Fast stöðvarval. „ARC" stjórn-
ar móttökustyrk. Spilar báðum megin. „Loudness",
„PNS“. Verð kr. 12.230.
TS 162DX Hátalarar
16 sm. Niðurfelldir, tvöfaldir.
TS 106 Hátalarar
10 sm. Passa í flestar gerðir bíla. Innfelldir eöa niður-
40—20.000 Hz, 20 W. Verð kr. 990,- stk. felldir. 50—16.000 Hz, 20 W. Verð kr. 880.- stk.
PIONEEn
HLJOMBÆR
HVERFISGÖTU 103
HLJOM«HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI SIMI 25999
greinilega í taugarnar á honum
ekki síður en Lash.
Lorraine tók eftir þessu og sagði
biðjandi: „Elsku Tyson, sestu! Þú
gerir okkur öll taugaveikluð.
Hvers vegna förum við ekki aftur í
rúmið?”
„Ég geri þaö ekki vegna þess aö
ég yrði að fara á fætur um leið og
lögreglan og læknirinn kæmu,”
sagði Tyson. „En ég sé enga
ástæðu fyrir ykkur að hanga
hérna. Eina fólkiö sem þeir viija
tala við er ég og ungfrú — humm
— ungfrú. . .”
„Kitchell,” hvæsti Lash.
Tyson leit brúnaþungur á hann
og sagöi: „Það er ekkert sem
mælir gegn því að þú farir í rúmið
svo að þú skalt ekki láta okkur
halda fyrir þér vöku. Þú varst
ekki einu sinni hérna þegar þetta
gerðist enda veit ég ekki hvern
fjandann þú ert að gera hér.”
„Eg ekki heldur,” sagði Lash
önugur en hann gerði sig ekki lík-
legan til aö fara og aftur leit hann
á Dany, hugsandi og líkt og óróleg-
ur.
Amalfi sá þetta og leit í sömu átt
og hann. Hún píröi augun ögn og
fagur, bogadreginn munnurinn
varð heldur ljótari þegar rauöar
varirnar uröu næstum hörkuleg-
ar. Hún haföi ekki litið á Dany
síðustu klukkustundina en nú virti
hún hana fyrir sér.
Dany sat í hnipri eins og barn og
stellingin heföi átt aö vera án alls
yndisþokka en var það ekki því að
nú sást hvaö hún var grannvaxin
og hve leggirnir voru langir og fal-
legir. Hún hafði líka gert eitthvað
við háriö á sér, burstað það aftur
og losað sig við þessar fáránlegu
krullur — og tekið af sér gler-
augun. Hún var hlægilega ung án
þeirra, nægilega ung til að Amalfi
fyndi óþægilega til eigin aldurs og
hrukka sást á hvítu enninu. Hún
leit snöggt á Lash, en Lash starði
á teppiö og virtist niðursokkinn í
eigin hugsanir sem voru heldur
óskemmtilegar eftir svipnum að
dæma.
Eduardo haföi líka litiö á Dany
og af Dany á Amalfi Gordon. Dökk
augun urðu allt í einu árvökul og
einkennilega gætin. Hann flýtti
sér að segja eins og svar við
spurningu Tysons?
„Ja, ég held aö ég fari aftur í
rúmið. Þér hafið rétt fyrir yður.
Það þarf enginn að spyrja mig
neins og mér finnst aö ég verði
bara fyrir. Þessi ungfrú Bates —