Vikan - 21.02.1985, Blaðsíða 32
— Ný æsandi og
obbolítið djörf
framhaldssaga í Vikunni
Margir kannast sjálfsagt nú þegar við nafnið LACE
sem heiti á vídeómynd. En upphaflega er LACE mikil
skáldsaga, talsvert ítarlegri og fjölþættari en myndin. i
myndinni er til að mynda heilli sögupersónu alveg
sleppt, ýmsu breytt og annað tekið inn í. Þar við bætist
að sú útgáfa á LACE, sem fram undir þetta hefur verið
á myndbandaleigunum, er hraðsoðin og mjög sam-
þjöppuð útgáfa á myndinni sjálfri sem nú fyrst er að
koma á leigurnar hér í upphaflegri, réttri lengd.
LACE hefur orðið metsölubók víða um heim og flest
helstu tímarit heimsins, sem á annað borð flytja fram-
haldssögur, hafa flutt söguna LACE. VIKAN hefur
tryggt sér einkarétt á birtingu sögunnar hérlendis og
hefst flutningur hennar á næstunni.
Nú á næstunni hefst hér í Vikunni
ný framhaldssaga. Þar er á ferðinni hin
víðfræga saga, LACE, eftir Shirley
Conran, en á íslensku hefur hún hlotið
heitið VEFUR. Bók þessi var svo vikum
skipti á metsölulistum bæði austan hafs
og vestan þegar hún kom út árið 1983
en var reyndar orðin umræðuefni
manna á meðal áður en hún kom i bók-
sölur.
Sagan segir frá lífi og örlögum nokk-
urra kvenna sem hafa til brunns að bera
gáfur, fegurð, glæsileika og aðlaðandi
persónuleika. Varla er að spyrja að því
að lífshlaup slíkra kostakvenna er varla
nokkurt hversdagsbasl. Lesandanum
gefst kostur á að skyggnast inn i til-
breytingadríka tilveru þessa fólks og
upplifa ýmis ævintýri, gleði og sorgir
glæsiliðsins.
Hinn rauði þráður sögunnar er þó
nokkurs konar gáta, ekki morðgáta
heldur þvert á móti. Gátan felst i því að
finna út hver fjögurra vinkvennanna
hafi á æskuárum fætt af sér stúlkubarn
og látið það frá sér til vandalausra. ör-
lögin spinna þessari stúlku mikinn og
flókinn vef og þegar hún er orðin full-
tiða tekur hún að grafast fyrir um ætt-
erni sitt. Þannig liggja leiðir gömlu vin-
kvennanna Júdýjar, Kötu, Heiðnu og
Maxin og kvikmyndastjörnunnar Lilíar
saman. Ein þeirra fyrrnefndu er móðir
þeirrar síðastnefndu, en hver? Síðan
vikur sögunni aftur á unglingsár kvenn-
anna fjögurra og gátan leysist ekki fyrr
en í lokin.
Gerð hefur verið löng sjónvarpskvik-
mynd eða öllu heldur stutt þáttaröð eft-
ir sögunni og hefur myndin verið fáan-
leg á myndbandaleigum hérlendis.
Myndin fékk slakar viðtökur gagnrýn-
enda þegar hún var sýnd í Bandarikjun-
um en þeim mun betri hjá almenningi.
Fleiri áhorfendur horfðu á LACE í
Bandaríkjunum fyrri hluta ársins 1984
en nokkurt annað sjónvarpsefni. Sömu
sögu er að segja þegar myndin var síðar
sýnd i Bretlandi. Sjónvarpsmyndin er
þó allmikið stytt og nokkuð breytt út-
gáfa af sögunni. Þeir sem bæði hafa
lesið bókina og séð myndina taka hik-
laust undir með geitinni, að bókin hafi
verið betri.
Enginn sem gaman hefur af góðum
skemmtisögum er svikinn af LACE.
Höfundurinn, Shirley Conran, er rúm-
lega fimmtugur Breti. Þekktasta bók
hennar, áður en LACE kom út, er
Superwoman, en i þeirri bók hvetur
Conran konur til að drifa sig út í við-
skiptalífið og haStta að leika hjálparvana
hálfnytjunga. LACE er fyrsta skáldsaga
hennar. Markmið hennar með sögunni
var að skrifa æsandi skáldsögu sem félli
vel í kramið hjá lesendum á þessum síð-
ustu tímum þegar allt viröist leyfilegt i
skáldsögum, þegar flestallt virðist hafa
verið skrifað nú þegar. Þegar handritið
var tilbúið sendi Conran það til niu út-
gefenda í New York og krafðist milljón
dollara fyrir útgáfuréttinn. örfáum
dögum siðar höfðu þeir allir svarað
henni játandi.
Shirley Conran er menntuð i góðum, .
breskum skólum og svissneskum fram- |
haldsskóla eins og söguhetjur hennar.
Hún neitar því samt sem áður harðlega
að LACE sé ævisaga hennar sjálfrar eða
byggð á sönnum atburðum. Það fer þó
ekki á milli mála að hún hefur sjálf
kynnst þeirri veröld sem hún lýsir.
Shirley Conran er fyrrum eiginkona
Terence Conran, eiganda Habitat-versl-
anakeðjunnar, og eiga þau saman tvo
syni. Þau eru löngu skilin. Hún hefur
gifst tvisvar síðan en er nú kona ein-
stæð. Hún bjó lengi í Monte Carlo í út-
legð vegna skattmála en heimþráin dró
hana aftur til Englands. Þar býr hún nú í
18 herbergja, fimm hæða húsi nálægt
Regent Park í London.
3Z Vikan 8. tbl.