Vikan - 14.03.1985, Blaðsíða 11
n
Ástríkur
fjölskyldufaðir
Dustin Hoffman er þekktur fyrir að vera ást-
rikur fjölskyldufaðir og mjög heimakær. Þessi
hugljúfa fjölskyldumynd var tekin á Heathrow-
flugvelli i London. Eiginkonan, Lisa, ekur Becky,
18 mánaða, og Jake, 3 ára, i tvíburakerru en
Dustin heldur á því yngsta, syninum Max.
Rod Stewart, börnin og
ástin
Gamli rokkarinn Rod Stewart hefur alltaf haft gaman af því að sýna
börnin sín. Þau eru tvö, dóttirin Kimberley, fjögurra og hálfs árs, og sonur-
inn Sean, þriggja og hálfs. Móðir þeirra erfyrrum eiginkona Rods, Alana.
Rod Stewart hefur átt erfitt með að sætta sig viö að eldast og vill halda
áfram að leika ábyrgðarlausan glaumgosa þó kominn sé á fimmtugsaldur.
Fyrrum eiginkonan, Alana, hafði vonast til þess að börnin og hún hefðu
róandi áhrif á Rod en allt kom fyrir ekki. Hann reyndist ekki maður til þess
að halda út hjónabandskvaðirnar. Þrátt fyrir allt eru börnin hans honum það
besta og dýrmætasta í lífinu. Þess veana hyggjast bau taka sér gott fri i ár
til þess að geta verið sem mest samvistum við þau.
Nýjasta vinkona Rods er Ijósmyndaíyrirsætan Kelly Emberg. Samband
þeirra gengur vel og vinum hans og foreldrum líkar mjög vel við stúlkuna.
En Rod efast sjálfur um eigin staðfestu. Hann segir nú að hann vilji vera trúr
elskunni sinni og ef hann geti það ekki glati hann sjálfsvirðingunni. Hann
hefur þvi ákveðið að reyna að taka sig á en lofar engu um árangurinn.
Allt í besta lagi
Jaclyn Smith hefur tvívegis verið valin fegursta og eftirsóttasta kona
Bandaríkjanna en ýmsar sögur hafa gengið um skapsmuni hennar og
stormasamt líf.
Hún sló i gegn ásamt öðrum fegurðardísum í sjónvarpsþáttunum
Charlie's Angels og hélt síðan áfram i Rage of Angels. Miklar sögur gengu
af látum og afbrýði leikaranna i þáttunum og tvö hjónabönd og ástarsam-
band við Tony Curtis voru alveg búin að ræna Jaclyn trúnni á ástina. Hún
hellti sér út í starfið, sem þá stundina var hlutverk nöfnu hennar Kennedy-
Onassis, en bak við myndavélina leyndist stóra ástin, Tony. Þau urðu ást-
fangin en af þvi Tony átti konu og þrjú börn heima í Englandi kvöddust þau
og ætluðu aldrei að hittast aftur þegar myndatöku var lokið.
Ástin var þó öllu yfirsterkari og Tony rauk við fyrsta tækifæri aftur til
Ameríku. Þau giftu sig (hún var mjög leið yfir að hafa þurft að eyðileggja
hjónabandið hans en ástin var heitl og búa nú saman sæl og glöð með
tveggja ára draumasyni sinum.
Og mótleikararnir eiga engin orð yfir það hvað hún Jaclyn hefur skánað i
skapinu eftir að hún gifti sig!
j
í