Vikan


Vikan - 16.05.1985, Blaðsíða 48

Vikan - 16.05.1985, Blaðsíða 48
Pósturirw A I R M A I L PAR AVION Æðislega hrifín Kœri Póstur! Ég er úr Grindavík og á við mjög mikið vandamál að stríða. Þannig er mál með vexti að ég er alveg œðislega hrifin af strák sem heitir S. og er 15 ára. Ég veit ekki hvort hann er hrifinn afmér. En hvað á ég eiginlega að gera? 1) Á ég að vekja á mér athggli ? 2) Á ég að skrifa honum bréf og segja honum skoðun mína á honum? 3) A ég að bjóða honum upp á diskóteki ? 4) Eða hvað finnst þér að ég œtti að gera? Ein hrifin. Þú átt endilega aö vekja athygli hans á þér með einhverju móti, en faröu samt fínlega í það. Fífla- gangur og læti við þessar aðstæður kunna sjaldnast góðri lukku aö stýra. Bjóddu honum alveg endilega upp á diskóteki en Pósturinn heldur að þú ættir ekk- ert að vera að skrifa honum. En það er til í dæminu að fá einhvem vin eða.vinkonu, sem þekkir hann líka, til að vera milligöngumann. hvers þáttar eins og Laga unga fólksins þar. Ég grátbið þig um að segja mér þetta eða gefa mér upplýsingar um þetta eða segja mér hvar ég get fengið að vita þetta. Með fyrirfram þökk. S.A.A. Til þess að fá upplýsingar um hvernig þú átt að hringja skaltu hringja í síma 08 og spyrja ráða, en þar á að vera hægt að fá upp- lýsingar um erlend símanúmer. Varðandi seinni spurninguna hefur Pósturinn ekki hugmynd um þetta en þú gætir prófað að skrifa Radio Wales, CBC Radio í Cardiff eða jafnvel BBC Radio 1 og spyrja að þessu og biðja fyrir kveðju því stundum er hægt að koma á framfæri í þáttum því sem kallast „long distance dedication”. Radio Wales, Broadcasting House, Llandrisant Road, Llandaff, Cardiff CF5 2QY, Wales. CBC Radio, Radio House, West Canal Wharf, Cardiff CFl 5XJ, Wales. BBC RADIO1, Broadcasting House, Portland Place, LondonWlA lAAEngland. Hjálp? Elsku Póstur. Þú ert mín síðasta von. Eg vil bgrja á að þakka gott blað en þó sérstaklega Póstinn. Svo að ég snúi mér beint að efninu þá langar mig að biðja þig um að segja mér (efþú getur) hvað maður þarf að hringja í fyrst ef maður hringir beint til Caeleon, Newport, Gwent, Wales og segja mér hvort það er hœgt að skrifa til ein- Hvað er Prince gamall og hár og er hann giftur? Kœri ráðagóði Póstur. Ég er ein sem hef svolítið mikinn áhuga á Prince. Það er margt sem mig langar að vita um hann. Eg vona að þú svarir þessum spurningum vegna þess að ég er búin að spyrja marga um þetta en enginn veit neitt. Jœja, hér koma spurning- arnar: 1. Hvað er Prince gamall? 2. Hvað er hann hár? 3. Er hann giftur? 4. I hvaða stjörnumerki er hann? , Getur þú að lokum gefið mér utanáskrift aðdáenda- klúbbs Prince? Með ástar fyrirfram þökk. G. Prince mun vera fæddur 7. júní 1959 og verður því 26 ára í ár. Hann er ekki giftur, ein góð vin- kona hans, sem lék í Purple Rain, segir hann vera giftan tónlistinni! Út frá áðurnefndum fæðingardegi má sjá að Prince mun vera í tvíburamerkinu. Pósturinn hefur hvergi séð líkamshæð hans skráða en veit að hann er mjög lágvaxinn og gengur jafnan á hælaháum skóm, en þaö segir víst lítiö. Pósturinn hefur ekki utanáskrift aödáendaklúbbs en hjá Warner Brother Records, 3 E 54th Street, New York, N.Y. 10022, U.S.A. má fá upplýsingar og myndir af kappanum. Ef einhver iesandi veit um aðdáendaklúbb Prince er hann vinsamlegast beðinn að senda Póstinum línu. Aðdáenda- klúbbur NENU Um daginn barst beiðni um utanáskrift aðdáendaklúbbs NENU. Þá hafði Pósturinn hana ekki á reiðum höndum en síðan hafa lesendur haft samband og hér koma ekki færri en tvær: NENAFan club 1801 Century Park West Los Angeles California U.S.A. og Fabrik Rakete NENA Segitzdamm 2 1000 Berlin 61 BRD Erlendir pennavinir Sœll elsku Póstur. Þetta er í fyrsta skipti sem ég skrifa þér og ég vona að þú getir hjálpað mér. Mig langar til þess að eignast erlendan pennavin en ég veit ekki hvert ég á að snúa mér. Jœja, ég hef þetta þá ekki lengra. Bœ bœ. Ég. P.S. Takk fyrir gott blað, aðallega Póstinn. Hér koma nokkir pennavina- klúbbar erlendis sem þú getur skrifað til. Pen Friend League International 74 Bayswater Road Perry Barr Birmingham B20 3AJ England Association of Pen Friend Clubs of Japan Azabu P.O. Box No 1 Minotku Tokyo Japan International Youth Service P.O. Box 125 SF -20101 Turku Finland Internationales Korrespondenz- Burc A.M.Braun Postfach 527 D-8260 Muhldorf 2 West Germany SMÁAUGLÝSINGADEILD ÞVERHOLTI 11 SÍMI 27022 48 Víkan 20. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.