Vikan


Vikan - 16.05.1985, Blaðsíða 14

Vikan - 16.05.1985, Blaðsíða 14
tekið út með sæl að vera JOHN john Tayior — nafnið eitt fær hjörtun í stelpunum til að slá örar. Samkvæmt nýlegri skoðanakönn- un meðal poppunnenda er hann vinsælasti meðlimur Duran Duran, sá félaganna sem álitlegastur þykir á veggmyndum, öðru nafni plakötum, og hefur tvisvar verið valinn fallegasti karlmaður í Bret- landi. En John Taylor er ekki bara sætur strákur. Auk þess að vera bassaleikari Duran Duran hefur hann komið nálægt ýmsu öðru. Hann leikur á plötunni The Power Station með Andy Taylor, Robert Palmen og tveimur liðsmönnum hljómsveitarinnar Chic. Hann leikur í framhaldsþáttum fyrir sjónvarp, Timeslip, sem verða sýndir í Bretlandi á árinu og samdi kynningarlag nýju Bond- myndarinnar. Hann er 24 ára gamall og millj- ónamæringur á breska vísu (en það er 45 sinnum meira en vera milljónamæringur á Islandi). Hann á tvö hús í Englandi og lúxusíbúð í New York og marga bíla, bæði nýja og af gömlum ár- gerðum. „Ég held að ég kunni ekkert sérlega vel við það að vera fræg- ur. Ég nýt bara lífsins. En ég er ekkertuppi í skýjunum. Ég hef áhyggjur af viðskiptahlið mál- anna og því ríkari sem maður verður því meira er að hafa áhyggjur af. Þegar maður á ekki neitt þarf maður ekki að hafa áhyggjur af því að tapa því, er það nokkuð?” Svo mælti John Taylor í viðtali við breskt tímarit fyrir skömmu. Og það fer ekkert á milli mála að Duran Duran hefur nógu að tapa ef út í það er farið. John Taylor er ólofaður en sést tíðum í fylgd fagurra stúlkna og þá sjaldnast oft með hverri. „Það er alltaf einhver kona í lífi mínu og verðuralltaf,”segirhann. „En ég er ekkert alltaf að básúna það út umallt.” John Taylor var um tíma trúlof- aður sýningarstúlkunni Janine Andrews. Samband þeirra var blásið út í blöðunum í Bretlandi og alls konar þvættingur á kreiki sem ekki átti við neitt að styðjast. Allt þetta umtal fór illa í þau bæði og hafði sín áhrif til þess að eyði- leggja sambandið. John Taylor má líka, eins og margt annað frægt fólk, þola margs konar illt umtal í blöðum sem lítt eru vönd aö virðingu sinni. Iðulega eru líka ummæli í viðtölum skrumskæld og lögð út á versta veg. Það hefur oft komið fyrir að móðir Johns Taylor hefur hringt í hann í öngum sínum út af einu og öðru sem hún hefur mátt lesa um soninn í blöðunum og sonurinn lítið getað gert annað en reyna að sannfæra mömmu um að þetta sé allt tóm vitleysa. En þetta er það sem frægðin hefur í för með sér. Annað sem ergir John Taylor stundum er þegar aðdáendumir hanga fyrir utan húsið hans nótt sem nýtan dag. Hann býr í rólegu og fínu hverfi og þykir krakka- skarinn oft koma sér í bobba. Hann segir aðdáenduma vera mjög kröfuharða pg ef þeir fái eÚri eiginhandaráritun hans í 31. skipti saki þeir hann um að vera mikinn með sig. Og ef hann reki þá í burtu fái hann kvörtunar- bréf frá foreldrum þeirra! Ef hann talar ekki við krakkana móðgast þeir og segja: „Við gerð- um þig að því sem þú ert!” Og John tautar í barminn svo enginn heyrir: „Já, en ég hef líka unnið baki brotnu fyrir því.” Einn aðdá- andinn gekk svo langt einu sinni að segja: „Við borgum fyrir þetta hús.” Þá svaraði John: „Hvað er það sem þið viljið? Borga líka fyr- ir mig uppihaldið á geðveikra- hæli? Þið eruð alveg aö gera mig brjálaðan!” Sumir myndu ef til vill segja að þetta væri allt þess virði. Allir meðlimir Duran Duran komust í hóp milljónamæringa í Bretlandi á síðasta ári. En milljón pund geta líka horfið fljótt ef ekki er rétt að málum staðið og því er John Taylor farinn að fara varlega í peningamálum. Þegar hann var spurður að því í áðumefndu viðtali hvort hann myndi gera kaupmála, ef hann gifti sig, til þess að halda eigum sínum við skilnað þá svaraði hann: „Já, ég held það. Það eru fordæmi fyrir því. Fyrir sex mánuðum hefði ég ekki gert það. En maður verður að vera raunsær í þessum málum. „Svo hlær hann og hristir höfuðið. „Það gæti orðið djöfullegt að þurfa að gefa helminginn af öllu. ...” 14 Vikan ZO. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.