Vikan


Vikan - 16.05.1985, Blaðsíða 26

Vikan - 16.05.1985, Blaðsíða 26
skemmdir af þessum sósíal-real- isma nútímans. Stephan G. oröaði þettg svo að menntamenn væru „andleg ígulker ótal skólabóka”. „Ég hald nú samt að forfeður okkar hafi að mörgu leyti verið óttalegir hálfvitar á okkar mæli- kvarða. Ein af minum uppáhalds- bókum er Ævisaga sóra Jóns Stein- grímssonar ..." „Já, hún er stórkostleg. En þar kemur fram alveg ægilegur hlutur sem við höfum sannarlega kynnst á síðari árum og ég í mínu lífi, og það er múgsefjunin. Og enn í dag er hægt að gera þjóðina einhuga um einhvem fjandann, bara ef allir leggjast á eitt. Það er nú til dæmis að þessir bankastjórar, sem voru nú ekki of- haldnir fyrir, þeir fengu ofurlítinn styrk til að halda við bUunum sín- um. Það er ekki talað um annað í blöðum, útvarpi eða sjónvarpi, ekkert annað en þetta, að þessum vesalings mönnum er hjálpað til að viðhalda bflunum sínum. Og við vitum öll hvað það kostar að hafa bfl. En öll önnur mál, meira að segja þetta ægilega gjaldþrot útgerðarinnar, þessir fátæklingar sem eru að gera út togara, þessir vesalings menn sem eru að gefa út bækur, þessum mönnum er bara gleymt, þeir eru ekki til þótt þeir þjáist líka. Það er ákaflega stutt í djöfulinn í okkur. Ég hef stundum lagt þá spumingu fyrir mjög heið- arlega menn, að ef þeir væru staddir einir í myrkri þar sem öllu væri óhætt, hvort þeir væru þá eins miklir guðir innan í sér og þeir þykjast vera. Við erum nefni- lega ekki komnir mjög langt á þroskabrautinni og það er hægt að móta okkur alveg ægilega með þessum fjölmiðlum. Og það sem gerist þama fyrr á árum er meðal annars það að PáU í Selárdal, þessi merki ættfaðir Jóns Hanni- balssonar, hann var gripinn þess- ari skelfingu líka og var þó enginn hálfviti, hámenntaður maður, og gekkst fyrir því að fólk var brennt fyrir galdra. Það er hægt að tryUa fólk. Þess vegna er það svo að ég er ekki eins hræddur við nokkum skapaðan hlut og múgsefjun og að einstaklingurinn sé látinn hverfa inn í einhvem allsherjarhóp. En það er, eins og ég segi, grunnt á því góða í okkur. Ég sá í virðulegu dagblaði um daginn, já, virðulegu innan gæsalappa, að meiri hluti fréttanna þann daginn var um alls konar fjársvik og fjárdrátt.” „Er það akki meðal annars af þvi að við fáum akki almannilaga borg- að fyrir útgarðina okkar? Verðum til dæmis sjálfir að borga bílana?" „Jú, en þeir sem muna og lifðu æsku sína á árunum 30—40 kaUa ekki aUt ömmu sína. Þá var fá- tækt á Islandi. En eftir að Bretinn steig hér á land getum við ekki tal- að um fátækt. Og þá skal ég ekki gleyma þeim píslarvottum sem hafa asnast til að kaupa eða byggja húsnæði síðan 79. Ég lenti nefnflega í því sjálfur 1980 að kaupa þetta raðhús héma og skuldimar sem ég tók við þá hafa breyst þannig að hver 20 þúsund sem ég tók við eru sennflega orðin hundrað og tuttugu núna. Og þó hef ég aUtaf borgað bæði vexti og afborganir. Þetta kaUa ég glæp.” „Ja — ég er ekki alveg viss. Ég veit að ég er fæddur 1916 en ég hef ekki gert það upp við mig hvað ég er í rauninni gamaU. Þó er ábyggi- lega hægt að reikna það út núna á tölvuöldinni.” „Ég er ekki viss um það, Kristján. Ég held að þeir sem eru sæmilega sáttir við tilveruna og hafa bærilega heilsu, þeir séu alltaf 28 ára." „Það er hugarfarið sem aUt veltur á. Ég get vel hugsað mér að ég sé þá svona 38 ára. Ég lenti í helvítis vandræðum. Það var 1950 að ég fór að asnast til að byggja og eyðilagði í mér hrygginn. Svo var þetta spengt og neglt saman og það hefur aldrei látið mig í friði síðan. Þaö hefur háð mér ansi mikið.” „Um það leyti verstu í Hvera- gerði, var það ekki?" „Já, við vorum eUefu ár í Hverageröi, 1950—’61. Þá fór ég hingað norður og gerðist samrit- stjóri vinar míns Þorsteins Jóna- tanssonar við blað sem hét Verka- maðurinn og var gefið út á Akur- eyri í 50 ár. Mjög merkflegt blað.” „Héma áðan, áður en við hófum eiginlegt samtal, hjó ég eftir merki- Ég er fæddur kommúnisti . . . Ég hef ekki gert það upp við mig hvað ég er í raun- inni gamall . . . 26 Víkan 20. tbl. Óðurinn til steinsins er bók órim- aðra Ijóða sem Kristján samdi við forkunnarfallegar steinamyndir. Þessi bók er mjög eftirsótt og ekki síst til gjafa, því í henni eru einnig enskar þýðingar Ijóðanna. Til stendur að gefa hana einnig út á sænsku, frönsku og þýsku. legri setningu hjá þér. Þú sagðir: ,,.... meðan ég var kommún- isti . . Var það langur kafli og löngu liðinn?" „Það var mjög langur kafli. Ég er fæddur kommúnisti og síðan var ég veiddur inn í það sem við köUum venjulegan kommúnisma Mörg ár síðan ég sór þess eið að kjósa ekki meir . . . og ég fylgdi þessari þróun nokkum veginn þangað tfl ég fór mjög að linast svona upp úr 1950 og ekki batnaði nú þegar Krúsjoff hélt ræðuna. Hins vegar var ég í Hveragerði og þar undir sterkum aga, þeir voru ekki famir að bila neitt í trúnni, Gunnar (Benedikts- son) og Jóhannes (úr Kötoum). Hins vegar var Kristmann á aðra hUðina og hann var nú ekki jafn- trúaður.” „En nógu trúaður varst þú til að koma hingað norður í Verkamann- inn." „Þá var þetta raunar farið að þynnast ansi mikið út. Það var nú þama langa nafnið — Sameining- arflokkur alþýðu Sósíalistaflokk- urinn, svo kom Alþýðubandalagið. Þetta hélt áfram að þynnast og ég fylgdi Bimi Jónssyni yfir í Frjáls-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.