Vikan - 20.06.1985, Blaðsíða 15
Kvikmyndagerð hér byggist mikið
á velvild og trausti því fé til þess-
ara hluta er af skomum skammti
— og við erum kannski verr sett
en margir aðrir. Okkar fé er fyrst
núna að byrja að láta sjá sig, meö
því að búið er aö selja myndina til
sjónvarpsstöðva í Bayem. Við
höfum því þurft mikið að leita til
fólks og biðja um lánstraust. Og
það er ótrúlegt hvað fólk er hjálp-
samt.
Og þá má ekki gleyma þætti
bíleigandans, hennar Dagbjartar
Snæbjömsdóttur, sem á bílinn
sem við erum á. Hún er hjarta
þessa leikhóps. Við værum ekkert
hefðum við ekki þennan bíl. Eftir
að Iðnó hætti að nota hann höfum
við fengið hann lánaðan hvað eftir
annað og bara fyrir að reyna að
sjá um viðhaldið. Þetta er þrjátíu
ára gamall bíll og alveg ótrúlegt
hvað hann gengur. En það má
heldur ekki fara illa að honum,
heldur bara fara mjúkt og gæti-
lega og tala við hann, umfram allt
tala við hann. Og nú fær hann að
fara með okkur til Sikileyjar.
Það er gaman að kynnast þýsku
nákvæmninni og vinnubrögðum
Lutz Konermanns. Hann er
komungur, aðeins 27 ára, en fékk
Bundespreis verðlaunin fyrir sína
fyrstu mynd í fullri lengd, Auf den
Mauer. Og Þorgeir Gunnarsson er
aðstoðarleikstjóri. Annars lítum
við á þetta sem íslensk-þýska
mynd — við erum sex íslenskir
leikarar á móti einum þýskum. Og
við stefnum að frumsýningu á
Islandi, þetta verður vonandi jóla-
myndinhér 1985.”
25. tbl. Vikan 15