Vikan - 20.06.1985, Side 41
Þýðandi: Anna
usafn
töflum í hendinni á mér, svo hellti
ég þeim aftur í glasiö og tæmdi
lyfjaskápinn af alls kyns pillum.
Eg flokkaöi þær eftir tegundum og
síðan í undirflokka eftir litum og
lögun. Ég var með allar rauðu
töflumar í einni flösku, hvítar í
annarri og svo framvegis. Og
síðan ákvað ég að fara að safna
pillum, það er reglulega
skemmtilegt tómstundagaman og
fær mann til að slaka vel á.
Ég á áreiðanlega besta pillusafn
á landinu nú orðiö, í einkaeign. Ég
fæ viöbótarskammta hjá
ættingjum og vinum reglubundið.
Það er alveg ótrúlegt hvað fólk
liggur með mikið af ónýttum
lyfjum heima í skápum, löngu
eftir að það er búið að gleyma við
hverju þau eru.
Maríanna er ekkert sérlega
hrifin af þessu tómstundagamni
mínu. Hún heldur því fram aö hún
fái svima af því. Um daginn,
þegar ég kom í gleðivímu heim
með sérlega sjaldgæfar átt-
hyrndar metylanyl-macolin-töflur
og glas af sægrænum sjóveikitöfl-
um, þá neitaöi hún að líta á þær.
— Piliur, pillur, pillur, urraði
hún, — bráðum talar þú ekki um
annað. Manni verður illt af þeim.
— Ég borða aldrei eina einustu
af þeim, sagði ég henni til
huggunar.
— Það er ekki það, en þú ert
alltaf aö fikta í lyfjaskápum fólks
og ert að fá fáránlegustu
sjúkdóma af því, bara til að fá
pillur í safnið þitt.
Við ræddum þetta fram og
aftur. Eitt orð leiddi af öðru og allt
í einu rauk hún upp ævareið,
fleygði sér í sófann og kjökraði
móðursýkislega.
— Svona, svona, sagði ég
huggandi. — Taktu það rólega. Á
morgun ferðu til læknisins og færð
eitthvað róandi hjá honum. Ef þú
getur fengið dálítið af þessum
laxableiku, sporöskjulöguðu,
streitueyðandi töflum frá vestur-
þýska lyfjafyrirtækinu Bayer þá
er það...
Hún sendi mér reiðilegt augna-
ráö, stóð upp og fór. En daginn
eftir fór hún nú samt til læknisins.
Ég beið spenntur eftir því að hún
kæmi til baka. Kannski hafði hann
látiö hana fá eitthvað nýtt og
spennandi sem ég hafði aldrei séð
og átti ekki.
— Jæja, sagði ég, fékkstu
eitthvað gott?
Hún rétti mér lyfseðilinn. — Ég
á að taka þetta þrisvar á dag eftir
máltíðir.
Pentaefenazinlanimat, las ég af
seðlinum og var orðinn meira en
lítið forvitinn.
— Ég var að koma úr lyfja-
búðinni, sagði hún og náði í flösku
úr töskunni. Ég reif hana strax af
henni, tók utan af henni
umbúðirnar og leit betur á
gripinn.
— Þú ætlar þó ekki að fara að
éta þennan óþverra? sagði ég afar
vonsvikinn og leit mjög sár á
hana. Það var ekkert annaö í
flöskunni en skitin mixtúra sem
minnti helst á hóstasaft. Ekki ein
einasta almennileg pilla.
Til hvers eru menn að fara til
læknis?
Py Stjömuspá
Hrúturinn 21. mars-20. april
Þér mun ganga allvel
við hin venjubundnu
störf þín á næstunni.
Þú skalt reyna aö
leggja hart að þér því
það er tekiö eftir því.
Reyndu að hugsa
ekki um hitt kynið.
Þaö er ágætt aö taka
smáhlé.
Nautið 21. april - 21. mai
Það er dálítið anna-
samur tími framund-
an hjá þér en að
skömmum tíma
liönum mun þér gef-
ast færi á að slaka á.
Reyndu að vera nær-
gætnari við þína nán-
ustu og láttu þá ekki
gjalda þess sem miður
fer utan heimilisins.
Tvíburarnir 22. mai-21. júni
Þótt merkilegt megi
teljast eru líkur á því
að þú vinnir í
happdrætti á
næstunni. Þó má
vera að þetta happ,
sem stjörnurnar vilja
eigna þér, sé ekki af
svo hversdagslegum
toga heldur séu þetta
æðri verðmæti.
Krabbinn 22. júní - 23. júli
Reyndu aö taka ekki
nærri þér þótt þér
lyndi ekki við alla
sem eru þér
samferða á þessu
ferðalagi. Við getum
ekki alltaf valið
okkur samferðamenn
og verðum að gera
það besta úr því sem
við fáum.
Ljónið 24. júli - 24. ágúst
Farðu ekki of geyst í
vinnunni. Mundu aö
dagurinn í dag er
bara sá fyrsti af
mörgum og margar
vikur koma eftir
þessa. Reyndu
fremur aö skipuleggja
vinnuna og vinna af
viti. Þaö eru hyggindi
sem í hag koma.
Meyjan 24. ágúst 23. sept.
Þér sýnist flest
ganga á verri veginn.
En ef nánar er að
gætt eru þetta flest
lítilsverð smáatriöi
og engin ástæða til
þess aö örvænta.
Hamingjuhjólið mun
snúast þér i hag áöur
en þig órar fyrir og
með meiri krafti en
þú bjóst viö.
Vogin 24. sept. - 23. okt.
Það er útlit fyrir f jör
í ástamálunum hjá
þér á næstunni. Ef þú
ert giftur eöa lofaður
muntu lenda í ævin-
týri með öðrum og
njóta þess þótt þú
fáir ósvikiö
samviskubit á eftir.
Sporðdrekinn 24. okt. 23. nóv.
Þú veröur fyrir smá-
óhappi sem nær þó
ekki að raska því
sem þú hafðir ætlað
þér. Þaö virðist lika
vera eitthvert and-
streymi í vinnunni en
líklega rætist úr því
fyrir lok vikunnar.
Bogmaðurinn 24. nóv. -21. des.
Þú skalt ekki taka
það nærri þér þótt
einhver reyni að
breiða út ósannan
áburð um þig. Hið
sanna á eftir að
koma í ljós og sögu-
burðurinn verður
söguberanum ekki til
framdráttar.
Stemgeitin 22. des. 20. jan.
Líkur benda til þess
að ferðalag sé
framundan hjá þér.
Reyndu að slíta þig
frá því sem þú hefur
veriö að fást við und-
anfariö og njóta þess
sem að höndum ber.
Þú hefur sannarlega
unniðtilþessað
takaþérfrí.
Vatnsberinn 21. jan. 19. febr.
Þaö er ekki laust viö
aö þú sért óþarflega
svartsýnn. Reyndu
að herða upp hugann
og hættu aö gera
ómannlegar kröfur til
þín. Og vita skaltu að
fólk kann að meta
það sem þú gerir þótt
stundum sé djúpt á
hrósinu.
Fiskarnir 20. febr. -20. mars
Þú munt að öllum lík-
indum komast að
leyndarmáli. Nú
skiptir öllu að kunna
að fara með þessa
viðkvæmu vitneskju
því það getur komið
sér illa fyrir þig hafir
þú breitt út þessa
vitneskju. Þaö er best
að sitja að sínu.
25. tbl. Vikan 41