Vikan - 01.08.1985, Blaðsíða 18
— Þú hefur ekkert hugað að
framhaldsnámi?
Jú, einu sinni geröi ég tilraun til
þess en þaö rakst á svo margt —
heimilishald, börn, eiginmann. . .
svo ég hef aldrei gert meira í því.
— Hver eru svo helstu áhuga-
málin?
Satt aö segja eru þaö ekki kross-
gátur og þrautir heldur bóka-
lestur. Ég les bækur þegar ég á að
vera aö gera eitthvaö allt annaö.
Ég les allt frá verstu reyfurum
upp í bestu bókmenntaverk —
núna hef ég reyndar mestan
áhuga á ævisögum. Á sínum tíma
las ég allar Agöthu Christie bæk-
urnar, það er enn ein tegundin af
glímu viö gátur — þaö er ekkert
varið í reyfara þar sem maður
veit á fyrstu síöu hver var morö-
inginn!
— Lestu á erlendum málum?
Já, ég les á ensku og dönsku en
ekki á öðrum málum. Dönskuna
læröi ég þegar ég bjó í Danmörku í
þrjú ár ásamt fjölskyldunni. Ég
vann þar í banka og maöurinn,
Kristján Steinar Kristjánsson,
vann við veggfóörun.
Það sem ég hef kynnst öðrum
þjóöum finnst mér íslendingar
yfirleitt betur að sér. Það er ekki
bundið við menntun, við erum
yfirleitt mun lesnari en aðrar
þjóðir — ég veit ekki hvaö ég á aö
kalla það... Islendingar eru fljót-
ari að hugsa. Kannski er það
veðráttan, maður þarf að vera
fljótur að taka ákvarðanir um að
taka saman heyið, breiða úr því
eða eitthvað svoleiðis! Greindir og
fróðir einstaklingar eru alls ekki
endilega mikið skólaðir.
— Hefurðu samband við aðra
Mensa-félaga?
Tilgangur MENSA er þríþættur: að
koma á sambandi milli skynsamra
einstaklinga, að stuðla að
rannsóknum i sálfræði og félags-
visindum og að bera kennsl á og hlúa
að mannlegri skynsemi.
Félagið var stofnað í kjölfar út-
varpserindis sem Sir Cyril Burt,
sálfræðiprófessor við Lundúnahá-
skóla, hélt árið 1946. Hann gerðist
síðar forseti Mensa og gegndi því
embætti til dauðadags, árið 1971.
Mensa hefur innan sinna vébanda
skynsama einstaklinga, algjörlega
burtséð frá skoðunum eða stöðu.
Félagið tekur enga afstöðu í stjórn-
málum, trúarbrögðum eða
hugmyndafræði. Mensa er einungis
opið þeim sem teljast til efstu 2
prósenta íbúa hvað gáfur snertir.
Sálfræðingar Mensa stjórna inntöku-
prófunum.
Engum dettur í hug að tala um hita-
stig án þess að Ijóst sé hvort miðað er
Ýmsir Mensa-félagsmenn gefa
öðrum kost á að gista hjá sér þegar
þeir eru á feröalagi — það er hægt
að ferðast kringum allan hnöttinn
og gista hjá Mensa-félögum. Ég
fékk nýlega í heimsókn banda-
ríska konu sem var á leiö til
Skotlands og Englands. Hún er
menntuð sem læknir og starfar við
að skrifa greinar fyrir læknatíma-
rit.
Annars eru ekki einungis
menntamenn í Mensa, þar eru líka
landbúnaðarverkamenn, sjó-
menn, bændur og margar hús-
mæður. Aðild að Mensa miðast
ekki við að maður sé fróður, skól-
aður eða minnugur, þótt margir
félagsmenn séu þaö eflaust. Það
sem veriö er að leita eftir er
hæfnin til rökhugsunar, þaö er aö
segja rökvísi. Að gefnum
einhverjum forsendum á maður
að geta dregið réttar ályktanir.
Ef ég ætla að feröast get ég
fengið nöfn og heimilisföng
Mensa-félaga í þeim löndum sem
ég ætla að heimsækja, þeirra sem
vilja fá til sín gesti. Ég fór
reyndar til Flórída eftir að ég var
orðin meölimur í Mensa en hafði
ekki rænu á að hafa samband við
neinn!
— Fannst þér þetta ekki nógu
merkilegt til að notfæra þér það?
Jú, ég hef bara verið svo
einangruð. Ég skrifaði til þeirra í
Bandaríkjunum vegna yfirlits yfir
félagsmenn sem þeir voru að
koma upp hjá sér og báðu fólk að
láta vita svo að „hægt væri aö
koma þeim á kortið”. Ég skrifaði
þeim til aö koma íslandi á kortið
— og bréfið mitt var birt í frétta-
bréfinu „Isolated M” (eöa
einangraðir félagsmenn).
Eftir útkomu fréttabréfsins hef
ég fengið bréf og kort víða að og
meðal annars hafði konan, sem
gisti hjá mér fyrir nokkrum vik-
um, fengið heimilisfangið mitt
þannig.
— Eru flestir félagsmenn Mensa
kannski búsettir i Bandarikjunum?
Mér þætti það ekki ótrúlegt, þótt
ég hafi ekki neinar handbærar
tölur um meðlimafjölda í heildina
talið. Konan sem heimsótti mig
býr í Illinois-fylki og þar eru
margir Mensa-klúbbar starfandi,
sjálf er hún í hópi sem hittist til að
lesa saman ljóð og leikrit. I
Bandaríkjunum sinna Mensa-
félagar áhugamálum meö þessum
hætti, en þeir hittast ekki síður
bara til að spjalla saman.
— Þetta eru semsagt nokkurs
konar spilaklúbbar?
Þetta er í raun og veru ekkert
annað en fólk sem hefur gaman af
að hittast. Það má líkja Mensa við
taflfélag eða ferðafélag eða hvað
sem er.
— Er Mensa nokkuð í ætt við
dulspeki?
Nei, en á hinn bóginn virðast
ákveðin mál hljóta mikla umræðu,
eins og til dæmis núna er verið að
ræða af miklum ákafa um ýmsar
hliðar þess siðferðis að konur
gangi með böm fyrir aðra, annað
fólk sem tekur svo við barninu.
— Hvað hyggstu fyrir með
Mensa, ætlarðu að afla fleiri félags-
manna?
Ég vil endilega að fleiri taki
þetta próf svo að það séu fleiri
með mér í þessu. Fólk þarf ekki
annað en skrifa til „Mensa Inter-
national” og óska eftir
upplýsingum. I þessum félags-
skap er fólk úr öllum þjóðfélags-
til dæmis við Fahrenheit-gráður eða
Celsíus-gráður. Sama gildir um
gáfnapróf, greindarvisitalan 130
veltur á því hvaða próf er verið að tala
um en af þeim eru til ýmsar gerðir. Á
hinn bóginn hefur verið sýnt fram á
að útkoma úr greindarprófum dreifist
þannig meðal þjóðarinnar að flestir fá
meðallagseinkunn, það er að segja
gáfnavísitöluna 100. Sum próf sýna
svo minnstu greind með tölunni 55 en
önnur með tölunni 70.
Til að hægt sé að bera saman
greindarpróf notar maður einfaldlega
prósentutölur. Með þvi að láta fjölda
fólks úr öllum áttum taka prófin hefur
komið í Ijós hvernig fólksfjöldinn
dreifist á visitölukvarðann. Efstu tvö
prósent þjóðarinnar mundu í áður-
greindum prófum lenda fyrir ofan
vísitöluna 148 á öðru en 132 á hinu.
Og það eru einmitt þessi tvö prósent
sem geta gerst félagar i MENSA.
I kynningarbæklingi frá Mensa er
sagt frá gagnrýni á gáfnaprófið: Við
föllumst fúslega á ýmislegt i þessari
gagnrýni, gáfnaprófið okkar er ekki
fullkomið. Samt sem áður teljum við
prófið hæfa markmiðum Mensa og
það hefur þessa kosti til að bera:
1. Próftakinn annast það sjálfur.
2. Prófið var hannað með það
fyrir augum að prófa þá sem
eru yfir meðallagi og sýnir því
skarpari skil en önnur gáfna-
próf.
3. Þetta er áhugavekjandi próf,
flestum þykir gaman að glima
við spurningarnar.
4. Prófið er tölfræðilega áreiðan-
iegt. Endurtekning þess með
stuttu millibili sýnir mælingar-
skekkju sem svarar aðeins
fimm stigum á kvarðanum.
Það má leggja ýmsan skilning í
greindar- eða gáfuhugtakið. Tilgátur
hafa verið settar fram um meðfædda
hæfni taugakerfis en engar sönnur
hópum og með margvísleg áhuga-
mál.
Prófgjaldið er 6,50 sterlings-
pund (um 350 krónur) og þarf aö
borga það áður en fyrsta prófið er
tekið. Síðara prófið fær maður
sent án aukagjalds ef maður
stenst það fyrra. Eina vandamálið
er að meðan enginn Mensa-
klúbbur er starfandi á Islandi
þurfum við að hafa prófdómara til
að sjá um seinna prófið og það
væri vel hægt að halda það fyrir
nokkra í einu.
Vonandi fjölgar Mensa-félögum
á næstunni, mig langar til að geta
stungið upp í pabba gamla og um-
orðað kersknivísuna hans svona:
Ofvitinn á ósköp bágt
því enginn getur viö hann rœtt
á viðeigandi vitran hátt
— nú verður fIjótt úr þessu bœtt.
— En hvað á fólk að gera ef það
fellur á prófinu?
Nú, það getur reynt aftur,
Mensa International tekur skýrt
fram að maður þurfi ekki að
örvænta þótt ekki gangi vel í
fyrsta skipti. Þaö er hægt að reyna
aftur og sumir hafa jafnvel farið
beint í seinna prófið.
— En nú eru það ekki nema tvö
prósent af þjóðinni sem geta náð
prófinu?
Ég er viss um að íslendingar
eru greindari en það,
helmingurinn af þjóðinni gæti náð
þessu prófi þess vegna! En þetta
próf segir í rauninni ekkert annað
en það að maöur sé rökvís, það
segir ekkert um að maður sé betri
manneskja — alveg eins og ein-
staklingar eru ekkert betri
manneskjur þótt þeir kunni að
tefla eða geti synt hratt eða
eitthvað svoleiðis.
færðar á hana og ekki hefur tekist að
mæla þessa hæfni. Þá tala menn oft
um almenna hæfileika sem börn eða
fullorðnir sýna í hversdagslegu atferli
sinu og telja jafnvel að þessir
hæfileikar ráðist að einhverju marki af
meðfæddri hæfni til að öðlast þá.
Loks er talað um einkunnir í gáfna-
prófum á borð við Mensa-prófið.
Útkoman i þeim jafngildir alls ekki
þessum almenna hæfileika sem áður
var getið.
Af þessum ástæðum ættu menn
ekki að taka það nærri sér þótt þeim
gangi illa á Mensa-prófinu — og
heldur ekki að fyllast drambsemi þótt
þeim gangi vel. ,,En við vonumst til
þess," segir að lokum i kynningar-
bæklingnum, ,,að þér finnist þetta
skemmtilegt og áhugavert próf."
Heimilisfang International Mensa:
50 — 52 Great Eastern Street
London EC 2
Bretlandi
18 Vikan 31. tbl.