Vikan - 24.10.1985, Qupperneq 15
Hafnfirðingur nokkur kom hjól-
andi eftir Reykjavíkurveginum á
ljóslausu hjóli um kvöld. Lögregl-
an stöðvaði hann tafarlaust.
— Þú ertljóslaus!
— Alveg rétt.
— Við því er 300 króna sekt! Og
þú ert heldur ekki með bjöllu, það
eru 300 krónur í viðbót. Svo ertu
ekki einu sinni með glitljós. Það
eru 300 krónur enn, samtals 900
krónur.
Hafnfirðingurinn fór að skelli-
hlæja.
— Hvað er svona fyndið?
— Ég var bara að hugsa um
þennan sem kemur labbandi
þarna. Hann er líka ljóslaus, engin
bjalla, ekkert glitljós, ekki einu
sinnihjól. . . .!
Svo var það meðlimur kviðdóms-
ins sem fékk leyfi til að spyrja hinn
ákærða einnar spurningar beint: —
Afsakið, herra ákærði, en gætuð
þér nokkuð gefið mér uppskriftina
að kökunni, það er að segja
sleppa arsenikinu.
— Heyrðu mig nú, maður minn,
sagði dómarinn, þetta er í tíunda
skipti sem ég sé þig í réttinum!
— Já, herra dómari, ekki get ég
gert að því þó þú fáir ekki stöðu-
hækkun!
— Er þetta i fyrsta skiptið sem
þér komist í kast við lögin?
— Ja, ég fékk 50 aura sekt á
Borgarbókasafninu 1948.
— Herra lögfræðingur, ég er
ákæröur fyrir þjófnað og ég vil
endilega fá þig til að taka málið að
þér.
— Já, það er nú það. Geturðu
látið mig fá einhverja tryggingu
fyrir greiðslu?
— Já, ég er hérna með BMW ár-
gerð 1984.
— Já, það ætti að duga. Fyrir
hvað ertu ákærður?
— Að stela BMW árgerð 1984.
Dómarinn leit ströngum svip á
hinn ákærða:
— Þú ert ákærður fyrir að stela
60.000 krónum þegar þú braust inn i
Sláturfélagið. Ertu sekur eða sak-
laus?
— Ja, það er nú einmitt það sem
allt málið fjallar um.
Fangavörðurinn: Jón minn, þú
þarft ekkert að vera að merkja
dagana á klefavegginn. Ég skal
bara láta þig vita þegar 23. októb-
er 2007 kemur.
(SHflMTU)
HÁRLAGNINGARFROÐA MEÐ
HÁRNÆRINGU
Fyrir venjulegt,
feitt eða slitið hár,
ein tegund sérstaklega
fyrir karlmenn.
SHflMTU)
HÁRLAKK
Fyrir venjulegt.
(SHflMTU)
HÁRLAGNINGARFROÐA
Venjulegt, feitt
eða slitið hár.
Einnig sérstaklega
sterk og haldgóð.
LITARSKOL (FROÐA)
14 litir.
Þvæst úr eftir 3—4 þvotta.
Undirstrikaðu
líWáiílH-Waf,»«w *
glæsileika hársins með SHAMTU
Loksins gefst þér (hvort sem þú ert karl-
eöa kvenkyns) tækifæri á aö undirstrika
glæsileik hárs þíns með hárvörunum frá
SHAMTU.
Undirstrikaðu með
Úrvaliö er glæsilegt og þú finnur örugg-
lega það sem sniðið er einmitt með þitt
hár í huga.
SHAMTU fæst nú alls staðar þar sem
máli skiptir.
(SHflMTU)
Heildsala:
KAUPSEL
Laugavegi 25
Sími: 27770 27774
43. tbl. Vikan 15