Vikan - 24.10.1985, Page 27
og mikil tilfinningavera. Þaö er
dómhart og því hættir til fljótfærni
í dómum um menn og málefni.
Þetta er stolt fólk og miklir vinir
vina sinna. Gæti það sín ekki því
betur mun það iðulega liggja und-
ir ámæli fyrir skort á háttvísi.
Lífsstarf
Það er mjög áríöandi fyrir fólk
dagsins að hafa vítt verksviö og
nokkuö frjálsar hendur varöandi
starfið. Því er lagiö að skipuleggja
og kemur oft ótrúlega miklu í
verk. Þetta eru sannkallaöar
hamhleypur. Sölumennska hentar
þessu fólki vel, svo og þau störf
sem launuð eru með hliðsjón af af-
köstum. Fljótfærnin getur orðið til
baga og það má gæta þess að
ganga ekki fram af sér við vinnu.
Ástalíf
Það gefur augaleið að í sam-
skiptum við hitt kynið verður
aldrei nein lognmolla. Eldheitar
tilfinningar og alls kyns sveiflur
sjá til þess aö ævinlega veröur líf í
tuskunum. Afmælisbarnið krefst
þess að hafa töglin og hagldirnar á
heimilinu og komi til hjónabands
er það undir lagni makans komið
hversu friðsamt heimilislífið verð-
ur.
Heilsufar
Afmælisbarnið er þrekmikið og
heilsuhraust. Það verður samt að
muna að það þarf að sofa og hvíla
sig, að minnsta kosti af og til.
Gangi það ekki fram af sér við
vinnu eða í skemrotanalífinu ætti
fátt að geta orðið því að meini.
26.
OKTÓBER
Skapgerð
Fólk dagsins er tilfinninga-
næmt, ákaft í lund og afar metn-
aðargjarnt. Það er rökfast og rétt-
sýnt og því verður vel til vina.
Þetta er bókhneigt fólk og hefur
góðan bókmenntasmekk. Ráöa-
gott er það og vinum og fjölskyldu
betri en enginn í þeim efnum.
Lífsstarf
Afmælisbörn dagsins eru gædd
fjölbreyttum hæfileikum sem víða
fá notið sín. Þau verða þó að gæta
sín á að drepa kröftunum ekki á
dreif og ættu aö velja sér starf
með fjölbreyttum viðfangsefnum,
ella tolla þau ekki lengi í sama
starfi. Afmælisbarnið er fjárafla-
maður en helst illa á fjármunum
sínum. Það er þó samhaldssam-
ara vinni það sjálfstætt.
Ástalíf
Fólk dagsins á erfitt með að átta
sig á hinu kyninu og er nokkuð
óöruggt með sig í samskiptum við
það. Þótt það sé ákaflega heppið í
vali á vinum er það seinheppið í
ástamálum og mjög getur brugöið
til beggja vona hvað varöar hjú-
skap og heimilislíf. Allt ætti þó að
fara vel ef heilbrigöri skynsemi er
beittþegarviðá.
Heilsufar
Afmælisbörnin eru yfirleitt
heilsugóð en ýmsir bólgusjúkdóm-
ar sækja á þau. Verði þau slíkra
sjúkdóma vör ættu þau ekki að
draga að leita læknis.
27.
OKTÓBER
Skapgerð
Kraftmikið dugnaðarfólk er fætt
þennan dag. Það er hvatvíst og
hinir mestu orðhákar. Því hættir
til að láta fremur stjórnast af til-
finningum en skynsemi og kemur
það því iðulega í koll. Þetta er
hugmyndaríkt fólk með ákaflega
góða skipulagshæfileika.
Lífsstarf
Fólk dagsins ætti aldrei aö
vinna undir stjórn annarra. Þaö
rís vel undir ábyrgð og leysir störf
sín því betur af hendi þeim mun
meiri ábyrgð sem það ber. Best
nýtur þaö sín áreiöanlega í eigin
atvinnurekstri sem má þá ekki
einskorðast við þröngt svið.
Ástalíf
Afmælisbörn dagsins búa yfir
mildum persónutöfrum sem flest-
um sést því miður yfir. Þau verða
fljótt og oft ástfangin en hættir til
að leggja ást við þann sem enga
leggur á móti. Makavalið gæti
ráðist í fljótfærni og hending ein
þá ráðið hvernig til tekst. Afmæl-
isbörnin eru uppstökk en fljót til
sátta og sé makinn næmur og um-
burðarlyndur getur sambúðin
orðið farsæl.
Heilsufar
Smákvillar herja oft á fólk dags-
ins en það hristir þá jafnharðan af
sér því að það er sterkbyggt og
sleppur yfirleitt við meiri háttar
sjúkdóma.
28.
OKTÓBER
Skapgerð
Glaöværð og hressilegt viðmót
einkennir afmælisbörn dagsins.
Þau eru veglynd og rausnarleg og
ákaflega góö heim að sækja. Þetta
fólk má ekkert aumt sjá og telur
ekki eftir sér aö liösinna þeim sem
eru hjálparþurfi. Þaö hefur já-
kvæðar lífsskoðanir og er ævin-
lega hrókur alls fagnaðar á
mannamótum.
Lífsstarf
Fólk dagsins á auðvelt með að
stjórna öörum og hefur alla burði
til að veröa vel látinn og farsæll
yfirmaður á vinnustað. Því henta
vel störf við heilsugæslu en sú list-
hneigö sem í því býr getur beint
því á brautir sem tengjast
menningu eða listum. Hvert sem
starfsvalið verður er mikilvægt aö
afmælisbarniö þurfi ekki að lúta
stjórn annarra við dagleg störf.
Ástalíf
Persónutöfrarnir valda því að
hitt kyniö dregst að afmælisbarn-
inu. Það getur vafiö fólki um fing-
ur sér ef því sýnist svo, skipt um
félaga eins og aðrir skipta um föt
og allar líkur eru á býsna fjöl-
skrúöugu ástalífi. Ekki verður
þetta þó eintómur dans á rósum en
fái afmælisbarnið að hlaupa af sér
hornin í friði verður það góður
maki þegar þar að kemur.
Heilsufar
Ekki þarf þessi lukkunnar pam-
fíll aö kvarta yfir heilsunni þvi að
hann sleppur við alla umtalsverða
kvilla.
29.
OKTÓBER
Skapgerð
Fólk dagsins er ljúft í viðmóti og
mjög vinsælt. Það er kjarkmikið,
einbeitt og afar viljasterkt. Þótt
það sé ört í lund og tilfinningaríkt
hefur það svo góða sjálfsstjórn að
lítið sem ekkert ber á þessum
eiginleikum. Vandvirkni og ná-
kvæmni eru áberandi í fari afmæl-
isbarnsins.
Lífsstarf
Engu er líkara en einhver lækn-
ingakraftur fylgi fólki dagsins.
Það og nákvæmni þess og sam-
viskusemi gerir það að verkum aö
þaö er sem kjörið til læknisstarfa
eða annarra starfa aö hjúkrunar-
og líknarmálum. Því hentar vel aö
vinna sjálfstætt og lætur betur að
hafa yfir öðrum að segja en að
vinna undir annarra stjórn.
Ástalíf
Afmælisbörn dagsins njóta hylli
hins kynsins og eru sjálf mjög ást-
heit. Þau flana ekki aö neinu í
þeim efnum en leggja rækt viö til-
finningasambönd. Þau eru því
allra manna líklegust til að njóta
hjúskapargæfu og góðs heimilis-
lífs.
Heilsufar
Þetta er hraust fólk og sterk-
byggt en því hættir til að slíta sér
út á of mikilli vinnu og ósérhlífnin
kemur iöulega niður á heilsunni.
30.
OKTÓBER
Skapgerð
Afmælisbarn dagsins er sjálf-
stætt í skoðunum og lætur ekki
auðveldlega snúa sér. Það er
hreinskilið, stundum óþolinmótt
og jaðrar við að vera sjálfbirg-
ingslegt. Sjálfstraustið fer ekki
fram hjá neinum og fer í taug-
arnar á ýmsum. Þegar á reynir
kemur staðfestan og ábyrgðartil-
finningin sér mjög vel.
Lífsstarf
Störf við viðskipti og verslun
hæfa þessu fólk vel enda er það
víða að finna í viðskiptalífinu. Það
er óhrætt aö taka djarflegar og af-
drifaríkar ákvaröanir og lætur
ekki deigan síga þótt á móti blási.
Það kann að verða öðrum oftar
fyrir öfund en því falla líka sjald-
gæf höppískaut.
Ástalíf
Samskiptin við hitt kyniö eru
ekki sterkasta hlið afmælisbarna
dagsins. Þau munu þó ganga í það
af dugnaði og eljusemi að koma
sér upp maka og fjölskyldu. Temji
fólk dagsins sér þolinmæöi heima
fyrir er líklegt aö hjónabandið
verði gott því aö þetta fólk kastar
ekki til höndunum við makavalið.
Heilsufar
Heilsan er góö hjá fólki dagsins
en hitapestir geta farið illa með
það ef það gætir sín ekki. Þaö ætti
að lúra heima fremur en að vera á
stjái með hita.
43. tbl. Vikan 27