Vikan - 03.04.1986, Qupperneq 9
Bryndís Schram er í forsíðuvið-
tali í þessari Viku. Venjulega
vekur það athygli sem hún
hefur fram að færa. Myndina
tók RagnarTh.
14. tbl. 48. árg. 3.-9. apríl 1986. Verð 125 kr.
GREINAR OG VIÐTÖL:
4 Glæsilegt gamalt einbýlishús í nýju
hlutverki. Heimsókn í húsnæði
Reykviskrar endurtryggingar.
11 Stjörnuspeki. Viðtal við Gunnlaug
Guðmundsson.
16 Læknisvitjun. Sex íslenskir læknar
svara spurningum lesenda.
18 Dans á rósum. Hvers vegna tjáum
viðokkurídansi?
20 Húsráð.
21 Eldgos gjörbreyttu veröldinni.
24 íslendingar góðir hnefaleikamenn.
Þorsteinn Gíslason rak eitt sinn
hnefaleikaskóla.
32 Ég skil þetta ekki. ég sem var svo
feimin. Viðtal við Bryndísi Schram.
44 Reykjavík 200 ára. Draugur kveðinn
niður fyrir pott af brennivini.
47 Pennavinir.
FASTEFNI:
22 Vídeó-Vikan.
30 Heilabrot.
36 Popp. Simple Minds.
38 Krossgáta, skák og bridge.
39 Barna-Vikan.
50 Draumar.
51 Póstur.
LÍFOGLYST:
57 Ungur og hugmyndarikur. Rósberg
Snædal gerirfötin sín sjálfur.
60 Bilaprófun Vikunnar. Volvo FL6.
62 Spúkar. Vikan heimsækir sjón-
varpssa!.
SÖGUR:
52 Arfleifð Lemesurierættarinnar. Saka-
málasaga eftir Agöthu Christie.
UTGEFANDI: Frjáls fjölmiðlun hf. RITSTJÓRI: Sigurður G. Valgeirsson. BLAÐAMENN: Guðrún Birgisdóttir, Kristin
Jónsdóttir, Þórey Einarsdóttir. LJÓSMYNDARI: Ragnar Th. Sigurðsson. ÚTLITSTEIKNARI: Guðný B. Richards. RIT-
STJÓRN ÞVERHOLTI 11, SÍIVII (91) 2 70 22. AUGLÝSINGASTJÓRI: Geir R. Andersen. AFGREIDSLA OG DREIFING:
Þverholt 11, simi (91) 2 70 22. PÓSTFANG RITSTJÓRNAR, AUGLÝSINGA OG DREIFINGAR: Pósthólf 5380, 125
Reykjavik. Verð i lausasölu: 125 kr. Áskriftarverð: 420 kr. á mánuði, 1260 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega
eða 2520 krónur fyrir 26 blöð hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram. Gjalddagar nóvember. febrúar, mai og
ágúst. Áskrift i Reykjavik og Kópavogi greíðist mánaðarlega.
NÚTÍMINN
Þeir sem uxu upp á hippatím-
anum dönsuðu ekki. Þeir sátu
í reykelsismettuðum herbergj-
um þar sem var búið að rífa allar
lappirnar undan húsgögnunum
og hlustuðu á framsækna rokk
tónlist, dreyptu í mesta lagi á
hunangsblönduðu tei og lifðu
á jurtafæði. Vöðva höfðu
íþróttaunnendur og þeir sem
lent höfðu í erfiðisvinnu. Allt
framtak var heldur talið af hinu
illa nema það tengdist leir og
leðri. Best var að sitja með
krosslagða fætur í rólegheitum
og ræða djúpt og innilega
saman í mussunum og með
leðurböndin á réttum stöðum.
Nú er öldin önnur. Æskulýður
landsins vill meika það. Hann
velur sér framhaldsmenntun
sem hann vonar að gefi arð.
Stundar líkamsrækt, gengur í
glæsilegum fötum sem bera
formfestu vitni, er karamellu-
brúnn á litinn af legum í sói-
arlömpum. Allir dansa eins og
þeir eigi lífið að leysa, neyta
áfengis í hófi. Það er halló að
reykja. Leðrið er notað í eggj-
andi undirföt sem eru sýnd við
góðar undirtektir á skemmti-
stöðum.
Svona sveiflast pendúllinn
fram og til baka. í blaðinu að
þessu sinni komum við við í
fortíð og nútíð. Sigurður Breið-
fjörð hafði einu sinni brennivín
með hrekkjum út úr einfeldn-
ingi. Hnefaleikar voru eitt sinn
leyfðir og við rifjum það upp.
En við erum líka í nútiðinni.
Dansinn og Bryndís Schram
eru efni sem eru ofarlega á
baugi í dag.
Það er því von okkar að allir
finni eitthvað við sitt hæfi í
þessu blaði. gamlir hippar sem
sólaríumbrún æska.
14. TBL. VIKAN 9