Vikan

Tölublað

Vikan - 03.04.1986, Blaðsíða 25

Vikan - 03.04.1986, Blaðsíða 25
... ogegspyr bara: Afhverju bannaþeirþá ekki fótbolta eða skíðakeppni? Hvaðerumargir sem mölbrjóta sig ískíðakeppniá hverjuáriog verða aumingjar alltsittlíf?(( r*S að haustaði vel 1974. Litauðgi og fjör umlék hversdagsh'f jafnt sem heimsfréttir. Hugirmanna voru opnir - veröldin í gerjun. En það voru hvorki gengisfellingar Geirs né fallvaltleiki Fords sem mestu umróti ollu, ónei - þetta var haustið sem Muhammad Ali, ..mesti hnefaleikari allra tíma“, steig fram úr skugganum á ný. Sá er þessar línur skráir minnist vel heiftarinnar sem tröllreið jafnvel saklausum skólapiltum í Kópavogi dagana sem einvígi nautsins Foremans og fiðrildisins Alis var í uppsiglingu. Og ekki sparaði Vísir leturstærðina daginn eftir ósköpin Ali rot- aði rotarann. Það leit sem sé ut fvrir að hnefaleikalistin ætti meira en lítil ítök í brjóstum íslendinga tæpum tuttugu árum eftir endalok hennar hér á landi. Goðsögnin um hinn ..fallega" Ali er hins vegar löngu orðin sögulegur fróðleikur og mörg ár liðin síðan hann. þungur og stirður. tapaði heims- meistarakrúnunni til einhvers tannlauss berserks. hvers nafn enginn lagði á minnið. Og hver er þá handhafi krúnunnar í dag? - Skvldi nokkur vita það? Nei, á síðustu sorg- arárum hefur ljómi þessarar forsögulegu íþróttar rénað. á því leikur enginn vafi. Það er þá helst í Hollvwood sem merkinu er enn haldið hátt á lofti. BANNAÐ1956 En á íslandi eru enn til menn sem sakna horfinna dýrðardaga hinnar göfugu íþrótta- greinar sem Forn-Grikkir lögðu meðal annars mikla rækt við. Það var Skandinavi nokkur. Peter Wiglund að nafni, sem sögur herma að hafi fyrstur lagt grundvöll að frjóu hnefa- leikastarfi hér. Það var upp úr aldamótum sem sá kenndi nokkrum ungum mönnum undirstöðuatriðin og má meðal þeirra sveina nefna Eystein Jónsson, síðar ráðherra, sem eftir það ku ávallt hafa sýnt hnefaleikum skilning. Þetta var þó aðeins brautryðjanda- brölt rniðað við þá tíma sem í hönd fóru þegar skipulagðir hnefaleikar í öllum aldurs- og þyngdarflokkum í flestum gömlu íþróttafélög- unum sópuðu að sér áhorfendum - og fjár- munum. Það myndaðist því ekki alllítið tómarúm í lífi þessara manna þegar Alþingi íslendinga bannaði hnefaleika næstum ófor- varandis 1956. Margir kappanna sitja enn eftir með sárt ennið og harma örlög sín. ekki síst viðmælandi okkar, Þorsteinn Gíslason, eigandi Málarameistarans, en hann rak um- fangsmikinn hnefaleikaskóla um fimmtán ára skeið. Hann var beðinn skýringa á þessum sviplegu endalokum íslenskra hnefaleika. ..Þetta byrjaði eiginlega á því að ritstjóri Iþróttablaðsins fór að skrifa gegn okkur í blaðið sem hann náttúrlega sem hlutlaus aðili mátti ekki gera enda var hann rekinn eftir þetta. Þetta var staðlaus áróður sem ekkert átti skylt við raunveruleikann en þessu trúði læknir vestur á Isafirði sem komst á þing og gerði þetta að sínu helsta baráttumáli, að banna hnefaleika. En ég get nefnt þér fjölda lækna sem sáu i gegnum þetta og studdu okkar málstað. Og það var svo merkilegt að svona tveimur mánuðum eftir að þeir bönn- uðu þetta komu til mín tveir þingmenn. fyrr- verandi nemendur mínir, og sögðu: Heyrðu, Steini minn, geturðu ekki tekið okkurí nokkra tíma í sumar, við erum að komast úr æfingu. Nú, ég horfi á þá og segi: Ég má það bara alls ekki þó ég feginn vildi. Þið voruð nú að banna þetta á þinginu um daginn." Og vissu þeir þá ekkert um þetta, sjálfir alþingismennirnir? ..Nei, nei. ekki skapaðan hlut, þetta var rekið í gegn með svoddan látum, sjálfsagt fvrir hálftómum sal." ÁHUGAMANNABOX Og getur ekkert réttlætt þessa ákvörðun? „Alls ekki. Þessir menn voru að blanda saman tveimur algerlega óskyldum hlutum - hnefaleikum hér og svo atvinnuboxi úti í Bandaríkjunum. Það eru allt aðrarreglur og langtum strangari í áhugamannaboxinu en hinu, það er nú tvennt ólíkt. Til dæmis eru þrjár lotur hámark í áhugamannaboxi og algengt að menn vinni á stigum. Hins vegar er þetta miklu harðara í atvinnubransanum en var hérna nokkurn tímann og ég tel raunar mannréttindabrot að láta banna þetta á fölskum forsendum og auk þess stjórnar- skrárbrot þar sem ÍSÍ er æðsti dómstóll íþróttamála hér á landi - en það var ekki einu sinni spurt álits. Þarna fremur Alþingi klárt stjórnarskrárbrot og reyndar ætti að vera búið að kæra Islendinga fyrir mann- réttindadómstóli Santeinuðu þjóðanna fyrir löngu." - Og gátu þessir hnefaleikar sem sé engu heilsutjóni valdið? „Það er af og frá. þetta er einhver heilsu- samlegasta og mest uppbyggjandi íþrótt sem fólk getur stundað. Ég get til dæmis bara sagt þér að ég tók saman slvsaskýrslu fvrir ÍSI og þar var slvsatíðnin næstlægst í hnefa- leikum af öllurn íþróttagreinum... og ég spvr nú bara: Afhverju banna þeirþá ekki fótbolta eða skíðakeppni? Hvað eru margir sem möl- brjóta sig í skíðakeppni á hverju ári og verða aumingjar allt sitt líf? Eða hvernig heldurðu að sé að fá í hausinn á sér bolta, rennblautan og harðan bolta afmargra metra færi... ?" - Er það hættulegra en hnefahögg? „Þú getur nú rétt ímyndað þér- og sumir fá í höfuðið mörg hundruð svona skallabolta á einni knattspyrnumannsævi. Hvernigheld- urðu að menn fari á þessu? Ég get sagt þér að ég hef hitt þónokkra fyrrverandi atvinnu- knattspyrnumenn úti í Bretlandi og þeir eru allir meira og minna vankaðir...“ - En nú er til dæmis Muhammad Ali ekki nema svipur hjá sjón - útbrunnið skar. Ekki hefur hann haft gott af hnefaleikum? „Hvað er að Ali? Veit það nokkur? Er hann ekki bara með Parkinsonsveikina. Annars er ekki hægt að trúa þessum slúðursögum. Kunningi minn hitti Ali til dæmis í fyrra og sagði að hann hefði bara litið vel út." En Sonnv Liston hné nú út af og rotnaði í marga daga heima hjá sér. „Það geta allir fengið heilablóðfall en ekkert frekar boxarar en aðrir, það er engin sérstök hætta fyrir hendi hjá þeim. Þú sérð nú mig bara. ég er sjötíu og tveggja ára og var í þessu frá tíu ára aldri og enn er allt í lagi með mig." ÍSLENDINGAR GÓÐIR HNEFA- LEIKAMENN Hvað gekk þessum bannmönnum þá eig- inlega til úr því að allar skýrslur studdu ykkar málstað? „Öfundsýki - hrein og klár öfundsýki. Það þurfti ekki annað til en að þeir misstu af stelpu á balli í hendurnar á einhverjum box- ara og þá var bara að hefna sín svona.“ Þar sem ekki tjáði að hafa Þorstein í linnu- lausri vörn var hann fenginn til að rifja upp gamlar stemmningar frá gullöld hinna ís- lensku hnefaleika. „Já, við vorum oft með landskeppni, keppt- um oft við Dani en þeir voru lélegir í boxinu, við fórum létt með þá. íslendingar voru nefni- lega taldir góðir hnefaleikamenn og það er ég alveg viss um að hefðum við fengið að halda áfram hefðum við margoft komist á verðlaunapall á ólympíuleikunum...“ - Og naut þetta alltaf almannahylli hérna? „Allan tímann og hún fór vaxandi ef eitt- hvað var. Til dæmis var alltaf fullt út að dyrum inni á Hálogalandi, stóra íþróttabragg- anum sem herinn byggði. Þetta var ein af aðalskemmtunum i bænum og taktu eftir, við höfðum númeraðar sætaraðir eins og hjá siðmenntuðu fólki. Þetta er ekki eins og inni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.