Vikan - 24.04.1986, Qupperneq 6
í ráðum,“ segir Garðar og heldur
áfram: „Nú koma karlmennirnir
einir og velja sér föt. Þó eru því
miður undantekningar - konurnar
eiga það til að vilja hafa hönd í
bagga með valið.“ Garðar bætir við
að það sé í sjálfu sér í lagi í sumum
tilfellum. „En mér finnst stundum
sárgrætilegt að horfa á eftir hjón-
um með föt sem ég veit að hæfa
engan veginn."
Hvað segir Garðar um snobbið í
kringum merkin?
„Það er ekki snobb að ganga í
góðum fötum. Ég er með gæðavöru
sem hentar öllum! Hins vegar benti
hann á að á jökkunum frá Daniel
Hechtervæn áfast merki sem hann
benti viðskiptavinum sínum ávallt
á að klippa af. „Þrátt fyrir það hitti
ég stundum menn með merkið
saumað kirfilega á. Það kalla ég
snobb,“ sagði Garðar.
„Ég get nefnt sem dæmi að
„upparnir" svokölluðu, það er að
segja ungt fólk á uppleið, lætur
undir engum kringumstæðum
merkin sjást utan á flíkinni."
GERÐUR PÁLMADÓTTIR í
Flónni er ein af þeim konum sem
hanna og láta sauma föt hér á
landi. Hún kaupir vönduð efni frá
Þýskalandi og Italíu.
Eftir að hafa litið á fötin hennar
Gerðar er ekki hægt að sjá að hún
standi langt að baki með sína fram-
leiðslu ef við berum hana saman
við innfluttu frægu merkin sem við
höfum nefnt hér að framan. Það
má segja að Gerður gjaldi máski
fyrir að hafa byrjað að versla með
notaðan fatnað. En það er liðin tíð
og aðspurð segir Gerður að við-
skiptavinunum sé alltaf að fjölga.
Hún segir að fólk sé óðum að gera
sér grein fyrir að íslensk fram-
leiðsla, sé hún vel unnin, uppfylli
sannarlega kröfur fólks um að vera
vel klætt.
Við spyrjum Gerði hvort til sé
snobblið á Islandi.
„Já, það er til. Og ég kalla það
Bing & Gröndahl týpurnar. Það er
fólk sem ekki kann að raða saman
fötum - blandar öllu saman. Þetta
er fólk sem kaupir merki án nokk-
urs næmis fyrir gæðum eða samvali
sem hæfir engan veginn, fólk sem
veit ekki hvernig það sjálft er - sem
varla er von þar sem þetta fólk er
oft að kaupa til að sýnast og reyna
að vera eitthvað annað en það er.“
Gerður er sammála hinum við-
mælendum okkar að manneskja sé
vel klædd ef hvergi sést í „merki".
Það er fólk sem ekki er að snobba
fyrir fötum.“
Gerður Pálmadóttir á síðusta
orðið:
„Ég lít á föt sem KARAKTER-
EINKENNI - KRYDD TILVER-
UNNAR.“
- segir Hjördís
Ein af þeim konum, sem
vakið hafa athygli fyrir
fágaðan klæðaburð, er
Hjördís Hvanndal. Hjör-
dís er annar eigandi
verslunarinnar Fiðrildis-
ins. Að reyna að giska á
aldur Hjördísar er ekki heiglum
hent. Hún klæðir sig ávallt á
þann veg að hver kona frá tví-
tugu til sextugs gæti verið stolt
af.
Við fórum á fund Hjördísar til
að spjalla smávegis um fataval
hennar.
Hjördís, ertu alltaf að kaupa
þér föt og lifirðu og hræristu í
fatatískunni?
„Nei, svo sannarlega ekki - en
þegar ég vel mér fatnað þá vanda
ég valið. Ég kaupi mér föt sem
ég get notað árum saman - úr
vönduðum efnum sem eru klass-
ísk. Ég nota kannski einhverja
Hvanndal
flík í ákveðinn tíma. Síðan tek
ég hana upp og nota hana við
eitthvað nýtt sem ég hef keypt
mér. I því felst að velja sér flíkur
sem eru alltaf „up to date“. Ég
hef til dæmis miklar mætur á
fötum frá Sonia Rykel og fatnað-
ur frá henni er alltaf klassískur.“
- Hjördís, eyðirðu miklu í fatn-
að?
„Nei, ég kaupi mér smátt og
smátt og reyni að velja við það
sem ég á inni í skáp heima. Og
það má bæta við að það er mikið
atriði að velja rétt saman. Slæð-
ur og belti geta gjörbreytt
ásýndinni. Og síðast en ekki síst
er mikilvægt að vera alltaf
hreinn og strokinn."
- Finnst þér fatnaður á Islandi
dýr?
„Nei, ég kaupi nær öll mín föt
hér heima. Úrvalið er mikið og
föt á íslandi eru ódýrari - að
minnsta kosti þessi sem við köll-
um dýrari merki.“
- Nú rekur þú sjálf verslun
með vandaðar flíkur. Finnst þér
fólk vera sér meðvitandi um gæði
vörunnar?
„Já, fólk veltir mikið fyrir sér
efnasamsetningu, fólk vill ekta
efni jafnvel þótt fatnaðurinn
sé dýrari."
Hjördís, eru konur á Islandi
vel klæddar?
„Mér finnst konur hér á landi
í flestum tilfellum bera mjög gott
skynbragð á hvað er góð flík. Já,
ég mundi segja að þær væru vel
klæddar."
- Að lokum, Hjördís, manstu
eftir sjálfri þér í morgunsloppn-
um, „Hagkaupssloppnum"
fræga?
„Nei, ég gekk aldrei í morgun-
slopp - ég notaði meira síðbuxur
við heimilisstörfin."
6 VIKAN 17. TBL