Vikan - 24.04.1986, Blaðsíða 61
EFTIR ÚTTAR GUÐMUNDSSON
Það sem vekur athygli manns í Belgíu
er smæð landsins. Allar vegalengdir
eru steinsnar og óðar en varir er
komið á áfangastað. Belgar segjast
vera einhverjir mestu kokkar í heimi
og halda því fram að hvergi í landinu
sé nema 15 mínútna bílferð á næsta stjörnu-
veitingahús. Miðað við stjörnuveitingahús á
hverja 1000 íbúa munu Belgar vera fremstir
og slá jafnvel Frökkum við hvað þetta varð-
ar. Belgar láta mikið af mataráhuga sínum
og matarkunnáttu og segjast leggja allt í
sölurnar fyrir góðan mat. Á einhverju veit-
ingahúsi, sem við komum á, höfðu menn
prentað á matseðilinn gamalt belgískt heil-
ræði til ungra manna varðandi kvonfang
sem hljómaði einhvern veginn þannig að
menn eigi heldur að kvænast ófríðri konu
sem geri góðan mat en laglegri konu sem
ekki hafi neina matargerðarhæfileika. Mitt
ráð til verðandi biðla er að þeir skuli velja
þá konuna sem þeim líst best á en elda mat-
inn sjálfir, enda verði hann bestur þannig.
Mataráhugi Belga kemur alls staðar fram. í
höfuðborginni, Brussel, eru til dæmis götur
sem heita Impasse des Groseilles (Vínberja-
gata), rue Chair et Pain (Kjöt- og brauðgata)
og Impasse du Potage (Súpugata). Næstum
allt árið er einhver hátíð einhvers staðar
mat og drykk til dýrðar. Þannig er rétt fyrir
páska haldin hátíð í Tillff-sur-Ourthe til
heiðurs púrrulauknum, jarðarberjahátíð er
haldin ár hvert í Wépion og rækjuhátíð í
Oostduinkerke. í ágúst er haldin hátíð til
heiðurs cabu (káli) í Mussy-la-ville og gengn-
ar skrúðgöngur og í Lederberg er haldin
laukhátíð og svona mætti lengi telja. Þetta
sýnir svo ekki verður um villst að Belgar
eru menn sem bera virðingu fyrir þeim lands-
ins gæðum sem halda i þeim lífi. Þetta er
siður sem íslendingar mættu gjarnan taka
sér til fyrirmyndar og til dæmis ganga í
skrúðgöngu einu sinni á ári til heiðurs sauð-
kindinni eða þorskinum. Slíkar göngur gætu
orðið skemmtileg tilbreyting í lognmollu
haustmánaðanna og yrðu örugglega lyfti-
stöng fyrir langsoltna bændur og blanka
útgerðarmenn sem sjá fram á hrun og ör-
deyðu á hverjum degi. Hvert hérað landsins
hefur sína sérrétti. Polders er þekkt fyrir
fiskrétti. I Ardenneafjöllum eru menn miklir
snillingar í matreiðslu villisvína og fugla.
17. TBL VIKAN 61