Vikan - 24.04.1986, Blaðsíða 8
ur ekti m startsins
segir Guðmunda
Jónsdóttir,
sjónvarpsþula
og flugfreyja
Það er svo með þulurnar í
sjónvarpinu að við teljum
okkur þekkja þær tals-
vert - enda ekki nema
von þar sem þær birtast
inni í stofu hjá okkur
flest kvöld vikunnar.
Guðmunda Jónsdóttir er með-
al kunningjanna sem við fáum í
heimsókn. Og á hvað horfum við?
Jú, hvernig hún er klædd og
greidd? Vissulega hlustum við -
en klæðaburður og hár er það
sem við virkilega tökum eftir.
Vikan heimsótti Guðmundu til
að spjalla við hana um fötin og
þetta með almenningseignina.
- Er höfuðverkur fyrir hverja
útsendingu að velja þau föt sem
þú ætlar að klæðast?
„Nei, það er enginn höfuð-
verkur fyrir mig - ég fer bara í
það sem mér líður best í. Vissu-
lega athuga ég að klæðast ekki
flík sem ég er nýlega búin að
koma fram í. En það er hægt að
breyta svo miklu með því að vera
kannski í sömu blússunni og fara
í annað vesti eða setja upp
slaufu. Þá er komið allt annað
útlit.“
- Færðu stundum lánað hjá
ættingjum og vinum?
„Nei, ég geri lítið að því, helst
þá hjá mömmu eða vinkonum
mínum.“
- Verðurðu mikið vör við að
fólk sé að tala um hvernig þú ert
klædd?
„Eg neita því ekki að ég heyri
stundum úti í bæ að Guðmunda
hafi verið svona og svona um
daginn og oft er það í neikvæðum
tón. En ég tek það ekki nærri
mér því ég held að fólk haldi um
okkur þulurnar að við séum ein-
hverjar tískudrósir. Það erum
við alls ekki og ég held að fólk
geri sér óraunhæfa mynd af okk-
ur.“
- Er ekki dýrt að gera sjálfa
sig út - ég á við að vera alltaf
að kaupa sér föt til að koma fram
í?
„Nei, ég á ekki fulla skápa af
fötum. Og eins og ég sagði hér á
undan þá nota ég sömu fötin aft-
ur og aftur en geri smábreyting-
ar. Við hjónin höfum verið að
koma þaki yfir höfuðið á okkur
og nýlega eignuðumst við dóttur
þannig að það segir sig sjálft að
buddan leyfir ekki mikil fata-
kaup. En ég er ekkert að leyna
því að ég vildi gjarnan geta geng-
ið inn í dýru verslanirnar og
valið mér föt. Einn góðan veður-
dag kemur kannski að því.“
- Nú hefur því verið fleygt að
þið fáið háa fjárhæð hjá sjón-
varpinu til fatakaupa. Er eitt-
hvað til í því?
„Nei, það er af og frá - hrein
fjarstæða - en ég hef heyrt þetta
líka. Sannleikurinn er sá að við
fáum okkar laun og það eru eng-
ir fatapeningar inni í því dæmi.“
- Að lokum, Guðmunda, ertu
almenningseign?
„Nei, ég finn ekki svo mikið
fyrir því - það er þá helst í flug-
inu. Farþegarnir þekkja mig og
nefna það stundum - það kemur
ekki við mig. Fyrst og síðast er
ég bara ég sjálf- ekki þræll
starfsins."
8 VIKAN 17. TBL