Vikan - 24.04.1986, Side 11
íslenska landsliðið í handknattleik hafnaði í sjötta sæti á heimsmeist-
arakeppninni í Sviss og á bak við þennan glæsilega árangur stóð stór
hópur fólks. í forustusveitinni var Jón Hjaltalín Magnússon, gamal-
reyndur landsliðsmaður og stórskytta, núverandi formaður stjórnar
Handknattleikssambands Islands. Við tökum hann tali því eftir stór-
sigra eru íþróttahetjurnar okkar fljótar að gleymast.
- Hvað fmnst þér, Jón, um útkomuna nú þegar þið eruð vel lentir?
„Hún er frábær miðað við það að 128 þjóðir iðka handknattleik sem
orðinn er ein vinsælasta íþróttin í Evrópu, Asíu og Afríku.
Við settum markið hátt og allir eru ánægðir eftir keppnina. Æfing-
ar hjá landsliðinu liggja niðri núna og leikmennirnir leika með sínum
félagsliðum. Þeir hafa allir leikið mjög vel eftir keppnina svo undir-
búningurinn og þátttakan í heimsmeistarakeppninni hefur skilað sér
mjög vel.“
- Nú var mikil fjáröflun í gangi fyrir heimsmeistarakeppnina, hvern-
ig hafa peningamálin komið út?
„Stjórn HSI setti markið á ólympíuleikana í Seoul og vissi að það
væri hægt með þessu liði og Bogdan þjálfara og mjög góðum undir-
búningi bæði á leikvelli og fyrir utan hann. Því leituðum við til
margra fyrirtækja um stuðning og þau tóku því vel. Einnig leituðum
við til þjóðarinnar með tveimur landshappdrættum og ég verð bara
að segja eins og er að þessi happdrætti hafa gengið framar öllum
okkar vonum, sem sýnir að landsmenn eru mjög áhugasamir um fram-
gang landsliðsins.
í sambandi við peningamálin er rétt að geta þess að við höfum tek-
ið þátt í þremur heimsmeistarakeppnum á nokkrum mánuðum. Við
sendum í desember piltalandsliðið (21 árs og yngri) til Ítalíu á heims-
meistaramót pilta og kvennalandsliðið okkar í B-heimsmeistarakeppn-
ina í Þýskalandi og svo í febrúar karlalandsliðið til Sviss. Þetta hefur
að sjálfsögðu kostað mikinn pening, en okkur hefur tekist að fjár-
magna þennan undirbúning með stuðningi margra aðila."
- Þið hafið gert nokkra stóra auglýsingasamninga?
„Já, handknattleikurinn er gríðarlega vinsæll á íslandi í dag og
landsliðið er mikið í fjölmiðlum þannig að fyrirtæki, sem gera samn-
ing við okkur, eiga auðvelt með að koma nafni sínu á framfæri. Við
njótum stuðnings þjóðarinnar og það er Ijóst að þau fyrirtæki, sem
styðja okkur, njóta sama stuðnings."
Er það ekki hæpin heilbrigðispólitík að landsliðsstrákarnir séu
að auglýsa ávaxtagrauta og Svala og hafa þetta fyrir börnunum?
„Ég drekk Svala og borða grautana og börnin okkar gera það líka.
Ég tel þetta vera ágætismat, annars mundi hann heldur ekki seljast
svona vel og HSÍ ekki auglýsa hann.
Við höfum fengið auglýsingatilboð frá erlendum aðilum, en hafnað
þeim með einni undantekningu, Adidas, stærsta fyrirtæki í heimi á
sviði íþróttavöru. Vjð leitumst við að styðja íslenskan iðnað og kynna
íslenskar vörur og ísland. Samningurinn við Sól hf. er gerður í þeim
anda.“
- Hvernig ætlið þið að fylgja eftir þeim gífurlega áhuga sem skapað-
ist á handboltanum í kringum heimsmeistarakeppnina?
„Við stefndum að því að gera okkar besta í þessari keppni og náð-
um góðum árangri en mér finnst landsliðsstarfsemin ekki hafa mætt
þeim skilningi sem við vonuðumst eftir hjá félögunum, sérstaklega
ekki hér í Reykjavík. Unglingarnir flykkjast núna á handknattleiksæf-
ingar hjá félögunum svo það er sérstaklega þeirra að nýta sér þennan
áhuga sem landsliðið hefur skapað.
Við hjá HSÍ munum fylgja þessu eftir með handknattleiksskóla
fyrir unglinga, áframhaldandi uppbyggingu yngri landsliðanna, fleiri
þjálfaranámskeiðum fyrir þjálfara yngri flokkanna og endurbótum á
mótum og keppnisfyrirkomulagi þeirra, einnig með viðræðum við
bæjarfélög um byggingu íþróttahúsa."
- Nú er þing HSI framundan og núverandi stjórn hefur meðal ann-
ars verið gagnrýnd fyrir að gleyma öllu öðru en landsliðinu. Heldur
þú að þetta verði átakaþing?
„Ég vona svo sannarlega að fulltrúar félaganna taki þátt í þinginu
og leggi fram tillögur sem eru til góðs fyrir eflingu handboltans en
sitji ekki hljóðir, aðgerðalausir og ánægðir,“ segir Jón Hjaltalín bros-
andi. „Þegar við athugum hvað gert hefur verið á undanförnum
tveimur árum í uppbyggingu íþróttarinnar og berum það saman við
það sem gert var áður, þá er ég ekki hræddur-við þann samanburð.
Ég tel að þessi stjórn hafi staðið sig vel og á þinginu verði jafnvel
meiri gagnrýni frá stjórninni á félögin en frá félögunum á HSI. Hver
vildi að Island væri B eða C þjóð í handbolta núna? Við höfum unn-
ið okkur sæti á ólympíuleikunum í Seoul 1988!
Fyrir hönd stjórnar HSÍ vil ég nota tækifærið og þakka lesendum
yikunnar og öllum þeim sem hafa stutt okkur- á einn eða annan hátt.
Árangurinn á heimsmeistarakeppninni er sigur íþróttahreyfingarinn-
ar á íslandi og þjóðarinnar en ekki bara landsliðsins og þjálfarans.
Kristín Jónsdóttir
17. TBL VIKAN 11