Vikan - 22.05.1986, Page 13
Michael Jackson
hefur keypt sér
sex kóalabirni
frá Ástralíu fyrir um 600
þúsund krónur vegna
þess að vinkona hans,
Olivia Newton-John,
mælti með þeim sem
gæludýrum.
agt er að Diönu prins-
essu leiðist biðin eftir því
að verða Englands-
drottning og hefur gefið
það í skyn að hún vilji gjarna
fá sér vinnu. Hún ætlar þó
ekki að fara neitt að vinna
hálfan daginn á skrifstofu eða
í búð. Nei, hún vill verða Ijós-
myndafyrirsæta. Mónakó-
prinsessurnar, Caroline og
Stephanie, hafa báðar reynt
fyrir sér á þessu sviði með
góðum árangri og því ekki
hún? Diana hefur allt til að
bera til að geta orðið góð Ijós-
myndafyrirsæta. Hún er
hávaxin, grönn, herðabreið,
lagleg og aðlaðandi. Margir
tískuhönnuðir myndu án efa
greiða væna fúlgu fyrir að fá
hana til að klæðast fötum frá
sér: En vitanlega fengi Eliza-
beth tengdamamma áfall ef
úr yrði. En ef málið er skoðað
þá kemur reyndar í Ijós að
Diana er í rauninni hálfgerð
Ijósmyndafyrirsæta. Engin
kona erjafnmikið Ijósmynduð
og hún. Hún má aldrei birtast
í nýjum tískuklæðnaði án þess
að það komi flennistórar
myndir af því í blöðum og
tímaritum. En hún fær að vísu
ekki borgað sérstaklega fyrir
það.
Lífið hefur haft sínar björtu og dimmu hliðar hjá Oliviu Newton-John
eins og gengur. Sambandið við eiginmanninn, Matt Lattanzi, hefur stund-
um gengið brösuglega og oftar en einu sinni hefur honum verið sagt
að hypja sig. En nú er allt í lukkunnar velstandi og Olivia segist aldrei
vilja skilja. Þau hjónin eiga litla dóttur, Chloe, sem fæddist í desember
síðastliðnum. Foreldrar Oliviu skildu þegar hún var barn og hún segist
ekki vilja leggja skilnað foreldra á nokkurt barn.
21. TBL VIKAN 13